Vikan - 06.04.1966, Qupperneq 2
í FULLRI HLVÖRU
ÞAÐ VITA MARGIR EN EKKI ALLIR
að Cortina hefur ýmist gírskiptingu í gólfi eða á stýri
að Cortina er fáanleg með sjálfskiptingu
að hægt er að velja um tveggja og fjögurra
dyra ásamt Station
að loftræstikerfið er frábært
að Cortina hefur diskahemla að framan
að Cortina ER fimm manna bíll
að hvernig sem á það er litið, þá borgar það sig, að kaupa Cortina.
( 1 1 M B 0 Ð m HR. HRISTJÁNS SUDURLANDSBRAUT 2 so • sí/ N H.F. (Al 3 53 00
Hvenær kemur
tækniþróunín
neytandanum
til góða?
í Vikunni hefur stundum ver-
ið vakin athygli á því, að tækni-
þróunin í byggingariðnaðinum
gangi vonum hægar. Þó kemur
fyrir að sagt sé frá verulegum
framförum og hafa þær helzt
orðið í sambandi við steypu-
vinnu. í Vísi, 8. marz s.l., var
sagt frá feiknanlegri afkasta-
aukningu, er Árni Guðmundsson
múrarameistari og hans menn
steyptu 760 fermetra plötu í nýW
hús Mjólkursamsölunnar á ®
tímum. Þarna kom fram,
mennirnir fá kr. 110 á rúmmetr-
ann og sex menn, sem unnu við
þetta verk, höfðu í daglaun um
það bil 4.500 kr. hver þeirra.
Þessi tæknilega framför og af"
kastaaukning byggðist á ným
steypudælu, sem dælir heitn
steypu eftir slöngum, þangað sem
steypan er lögð. Mundi þessi
beiting nýrrar tækni ekki vera
mikið hagræði fyrir neytandann,
í þessu tilfelli Mjólkurstöðina?
Til að ganga úr skugga um það,
hafði Vikan tal af Birni Péturs-
syni, verkfræðingi hjá Mjólkur-
stöðinni. Hann staðfesti, að þessi
nýju vinnubrögð kæmu því mið-
ur ekki fyrirtæki hans til góða
nema síður væri. Tveir kranar
og tveir menn myndu hafa af-
kastað þessu á 10 tímum og Þa
hefði það kostað 12.500 kr. Þess
í stað varð nú að borga 28.000
og að auki 120 kr á rúmmeter
í leigugjald til Steypustöðvarinn-
ar fyrir dæluna, eða samtals fyr-
ir hana kr. 30.000.
Þarna sjá húsbyggjendur sína
sæng út breidda.
Enn er það siðleysi látið við
gangast, að tæknileg þróun komi
einhliða verktakanum til góða.
Iðnaðarmönnum leyfist að búa
til nýja taxta fyrir hvert skref,
sem næst í áttina til bættra
vinnubragða. Dæmið, sem hér
hefur verið tekið frá byggingu
Miólkursamsölunnar, sýnir enn
sem alltaf áður, að tækniþróun-
in kemur ekki neytandanum til
góða; hún lækkar ekki bygging-
arkostnaðinn og verður einung-
is til að auka gróða þeirra manna,
sem taka að þér byggingar.
GS.
2 VIKAN 14. tbl.