Vikan


Vikan - 06.04.1966, Qupperneq 9

Vikan - 06.04.1966, Qupperneq 9
öllu framandi áður. íslenzk- ir sjómenn, sem lent hafa í tuski við lögregluna í Ham- borg og víðar, hafa sumir ljót- ar sögur af ruddaskap henn- ar að segja, og eru þeir ekki einir um það. Þannig varð heljarmikill hávaði út af því í heimspressunni nýlega, að þýzkættaður Bandaríkjamað- ur, Ernst Haas að nafni, var laminn til bana í fangelsi í Hamborg, eftir að hafa dval- ið um hríð í pyndingaklefa, sem þetta fangelsi er útbúið með. Út af þessu varð þó nokk- uð hneyksli og var pyndinga- klefanum lokað, og meira að segja múrað fyrir dyrnar. En hvorki dómsmálaráðherra Hamborgar eða fangelsisstjór- inn hafa verið ákærðir fyrir það að hafa yfirleitt látið það viðgangast, að slíkur klefi væri til í fangelsinu — og í brúkun. Klefi þessi var mjög kaldur og þar voru hvorki rúm né ábreiður. Stundum voru fangar látnir standa þar naktir, meðan beint var að þeim sterku ljósi. Þessutan voru þeir stundum barðir og pyndaðir á fleiri vegu. Svipuð tækni er viðhöfð í fleiri vestur-þýzkum fangels- um. í unglingafangelsinu Roc- kenberg eru óþægustu fang- arnir lokaðir í rökum kjallara, þar sem úir og grúir af rott- um. Og sé einhver staðinn að þvi að reyna að strjúka með því að klifra yfir fangelsis- múrana, er miskunnarlaust skotið á hann. Yfirvöldin virðast heldur ekkert hrifin af tillögum um úrbætur varðandi aðbúnað í fangelsum. Þannig ráku þau fyrir skömmu fangelsisstjóra einn, sem þótti sýna föngum sínum meiri mannúð en hæfi- legt var talið samkvæmt þýzku réttlæti. Cliurchill afftur a Parlamentlð Myndhöggvari að nafni Oscar Nemon er um þessar mundir að gera myndastyttu af Churchill heitnum, og á að stilla henni upp á góðum stað í neðri málstofu Parlaments- ins. Nemon á að kunna sitt verk, því að hann hefur margsinnis áður höggvið út myndir af gamla manninum. Churchill hafði sjálfur mikið álit á Nemon og sagði um eina höggmynd hans af sér: Hún lítur út eins og ég. Churchillstyttur Nemons eru því víða á virðulegum stöð- um, til dæmis í Windsorkast- ala og ráðhúsi Lundúna. FYRSTA UPPLAGIÐ AF HLJÓMPLÖTU JÓNASAR ÁRNASONAR „LÚKARSÖNGVAR" SELDIST UPP Á NOKKRUM DÖGUM. SÝNIR ÞAÐ HINAR MIKLU VINSÆLDIR PLÖTU ÞESSARAR. NÚ ER HÚN AFTUR KOMIN í HLJÓMPLÖTUVERZLANIR. FÁLKINN H.F. Hljómplötudeild. Útvarpserindi Hannesar Jónssonar félagsfræðings um fjöl- skyldu- og hjúskaparmól fóst nú í bókarformi, ásamt ýmsum viðbótum, undir nafninu Samskipti karls 09 konn Þetta er heilbrigð, heillandi og þörf bók, sem á erindi til karla og kvenna á öllum aldri. Foreldrum, unglingum og trúlofuðu og nýgiftu fólki er sérstaklega bent á bókina. Einnig vekjum við athygli á bókinni FJÖLSKYLDUÁ/ETL- ANIR og SIÐFRÆÐI KYNLÍFS en hún fjallar á heilbrigðan og hispurslausan hátt um fjölskylduáætlanir, frjóvgunar- varnir og siðfræði kynlffs. 60 skýringarmyndir. Bækurnar fást hjá bóksölum og beint frá útgefanda. FÉLAGSMÁLASTOFNUNIN Pósthólf 31. — Reykjavík. Pöntunarseðill: Sendi hér með kr......... til greiðslu á eftirtalinni bókapöntun, sem óskast póstlögð strax: ...... Samskipti karls og konu, kr. 225,00. ...... Fjölskylduáætlanir og siðfræði kynlífs, kr. 150,00. Nafn: ................................................ Heimili: ............................................ VIKAN 14. tbl. Q

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.