Vikan


Vikan - 06.04.1966, Page 13

Vikan - 06.04.1966, Page 13
Hér er Britt Sellers með dótt- ur sína Victoriu. Hún er tölu- vert lík pabba sínum Peter Sellers, þótt hún sé óneitan- lega töluvert fríðari. •JACQUELINE OGBÖRNIN Þær eru glaðar á svip mæðg- urnar Jacqueline og Caroline Kennedy, enda eru þær í Ida- lio, langt frá skarkala stór- borgarinnar og stunda skíða- íþróttina af kappi. John hefur aldeilis fengið góðan leikfélaga, lítinn eski- móahund, og þykir honum tryggara að halda sig hjá lionum heldur en að fylgja móður sinni og systur á skíðaferðum. Rakettu-hpaðlestip milli Tokyo og Opsakaepflfðtapi og þægilegpi en tlugvél Japan er fremsta land í heimi í öllu því sem að umferð lýt- ur og nú hafa Japanir komið með það nýjasta nýja: rak- ettu-hraðlest sem er jafn hrað- skreið og flugvél. Lestin gengur á milli Tokyo og Osaka, sem er mesta iðn- aðarborg landsins. Hún ekur þessa leið, 500 km. á þrem tímum og tíu mínútum og er þegar orðin skæður keppi- nautur flugþjónustunnar. Vissulega flýgur þota milli Tokyo og Osaka á hálftíma, en bílferðin milli borgarinnar og flugvallarins tekur meira en tvo og hálfan tíma. Árang- urinn er: flugið tekur jafn- langan tíma og lestin, en er óþægilegra og dýrara. Flug- félögin tvö, Japan Airlines og All Japan Airlines, sem ann- ast flutninga á þesari leið töpuðu strax á fyrsta mánuði, 28% það fyrrnefnda og 25% það síðarnefnda, af umsetn-| ingu sinni. Flugfélögin hafa ekki ennþá fundið neina leið til að mæta þessari sam- keppni. Japanskir kaupmenn og iðjuhöldar, sem eru iðnastir allra, meta það mest hve hraðlestin rennur mjúklega og án alls hristings, svo það er auðvelt að vinna við bréfa- skriftir og annað á leiðinni, en það er ómögulegt að gera í bílum eða strætisvögnunum, sem notaðir eru til og frá flug- völlunum. Það er staðreynd að Kikari-lestin (hraðlestin) þýtur svo hljóðlega áfram, að fjöldinn allur af verkamönn- um við brautirnar hafa ekki orðið þess varir og látið lífið, vegna þess að þeir hafa ekki getað forðað sér .... Tízkan frá Kennedyhöfða Nú er gull og gylling ekki lengur jafn hátt skrifað í tízkuheiminum og áður. Nú er það stálið og silfrið, sem gildir. Ástæðan: Búningur geimfara og geimförin sjálf eru silfurgljáandi. Þessi tízka er upprunnin á Kennedyhöfða. Spegilglamp- andi búningar geimfaranna hafa haft gagnger áhrif í tískuheiminum. Nú er farið að silfra allan mögulegan fatnað: sokka, peysur og þó einkum frakka og jakka. Silfrað „meik-öpp“ er líka komið á markaðinn og að sjálfsögðu silfurlit undirföt. Mikið af þessu nýja dóti er úr plasti, og fylgir með sögunni að framgangur þess efnis séu meiri tíðindi í tízku- heiminum þetta árið en til- koma stutta kjólsins. VIKAN 14. tw. jg

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.