Vikan


Vikan - 06.04.1966, Síða 45

Vikan - 06.04.1966, Síða 45
Modesty Blaise Framhald af bls. 23. hvddi handlegginn á stýrishjólinu og slóttugt bros færðist yfir andlit hans. — Taki nú allir hauslausir ofan, sagði hann fullur aðdáunar. — Eigi er betri sú músin, sem læðist, en hin, sem stekkur! Annar kafli. Modesty Blaise stóð og studdi sig upp við trjábol um það bil tíu fet frá rjóðrinu. Nóttin var fallin á fyrir löngu. Fuglarnir voru þagn- aðir og fyrir aftan hana heyrðist aðeins skrjáfið og þeyrinn f sof- andi skóginum. Á stjörnubjörtum himni var bleikur máni, sem glamp- aði niður á veginn, sem hlykkjað- ist milli skógarins og grassléttunn- ar. Fangelsið stóð f troðnu rjóðri, þar sem skógurinn hafði verið rudd- ur f stóran hálfhrlng að og frá veginum. Þetta var bráðabirgða- fangelsi, löng einnar hæðar bygg- ing úr sólþurrkuðum múrsteini, f laginu eins og stórt té. Þverleggur- inn sneri að veginum en leggurinn f áttina aS skóginum, og þeim meg- in voru breiSar dyr. Strax handan við þessar dyr voru klefar varð- mannanna. Þarna hafSi Modesty staðið hreyfingarlaus f tvær klukkustund- ir. Á tfu mfnútna fresti slangraði varðmaður framhjá meS Garand riffil um öxl, styttra en þrjátfu fet frá henni. Tilgangslaus varðmaður, hugsaði hún. ÞaS heyrðist þegar hann kom og fór, glamraði f riffl- inum hans, og rauða glóðin í sfg- arettunni sást f hundraS metra fjar- lægð. Fyrir sex vikum hafði hann ver- ið uppreisnarmaður. Nú voru hann og vinir hans stjórnarliðar. Hinir fyrrverandi stjórnarliðar voru nú uppreisnarmenn, en ekki mikiS lengur. Uppreisn Kalzaro hershöfð- ingja hafði heppnazt svo vel, að héðan f frá varð ekki snúið við, svo vel, að hann þurfti ekki að fara gætilega í það, hvernig hann losaði sig við þá; sem tapað höfðu. Sex dagar voru liðnir, sfSan fund- ur hennar og Tarrants fór fram og hún vissi nú, að mat hans á ástand- inu hafði verið réttmætt. Santos f Buenos Aires hafSi staSfest þetta mat fyrir aSeins fjörutfu og átta klukkustundum. Ef takast átti að ná Willie Garvin lifandi, varS þaS að ske mjög fljótt. Hún var f svörtum gallabuxum, hæfilega vfðum til þess að hún gat hreyft sig frjálsmannlega, og aS neðan var skálmunum stungið of- an f sólaþykk herstígvél. Að ofan var hún f þunnri, svartri peysu, hárri í hálsinn meS langar ermar. Hendur hennar og andlit var hvort- ♦veggja smurt meS dökkum lit. Hár- hnúturinn var nú bundinn fast upp í hnakkagrófina. Hún horfði á hrörlégan vörubil skrönglast út á götuna í átt frá fangelsinu. Það vældi í dekkjunum, úttroðnum með grasi, þegar hann hvarf fyrir beygjuna, og f honum voru varðmennirnir, sem á daginn fylgdust með föngunum, sem látn- ir voru vinna að vegabótum tveim milum lengra norður frá. Fimmtán mfnútum síðar var varðmaðurinn, sem varði þessa opnu bakhlið fang- elsisins, leystur af. Nú gat hún farið að hefjast handa. Þægilegur ylur hið innra með henni færði henni einkennilega vellíðunartilfinningu og hamingju. Hún reyndi að berjast á móti þessu að kæfa það niður, en gerði sér Ijóst, að það var aðeins sóun á kröftum og viljaþreki, og hætti því. Það er ekki hægt að breyta sér, þegar maður er orðinn tuttugu og sex ára. Hún hafði lært þá lexíu á síðustu tólf mánuðum. Willie hlaut að hafa lært það líka, en dul- ið það vandlega fyrir henni, á sama hátt og hún hafði falið það fyrir honum. Á dökku árunum, sem nú voru löngu liðin, næstum frá þvi að hún mundi fyrst eftir sér, hafði hver nótt og hver dagur búið yfir ótta og hættu fyrir einmana barn, sem barst eins og lítið villidýr í gegnum stríðsólgu Balkanlandanna og Miðjarðarhafslandanna. Seinna, þegar kom fram á þroskaárin, kom fyrir að óttinn varð að örvun, og andartök hættunnar, sem áður höfðu vakið skelfingu, báru nú að- eins með sér skýrari vitund þess að vera á lífi. Þetta var slæmt, Það voru svo margar leiðir til að njóta lífsins. En nú var það of seint; hún hafði fyrir löngu lært að syrgja ekki það sem ómögulegt var að ná. Nýi varðmaðurinn kom nú aftur úr vestri. Modesty Iiðkaði fingurn- ar utan um hlutinn, sem hún var með f hægri hendi. Þetta var Kongó eða yawaravopn, hlutur úr sléttum viði, skaft sem fór vel í hendi, með hálfskálar í laginu eins og gorkúlur, sem stóðu sitt hvorum megin út úr hnefanum. Hún fetaði sig varlega af stað. Það heyrðist ekkert, því jörðin var þakin þykku, röku teppi af rotn- andi laufi. Varðmaðurinn var að hugsa um konur. Sérstaklega um stúlku í þorp- inu, sem þeir höfðu tekið fyrir viku. Það hafði aldeilis verið nótt. Hann brosti með sjálfum sér yfir minning- unni, og blóðið þaut hraðar um æðar hans. Hún var um það bil átján ára og hafði aldrei gert það fyrr, en var hlýðin eins og barin tík, þegar Alvarez undirforingi hafði útskýrt fyrir henni, hvað annars yrði gert við hana. Það var líka Alvarez, sem hafði komið fram með þá skemmtilegu hugmynd, að heita viskfflösku hverjum þeim manni, sem gæti fundið upp fjarstæðustu stellinguna. \ Framhald í næsta blaði. AUSTURSTRÆTI 14. - SÍMI 12345. LAUGAVEGI 95. - SÍMI 23862. VXKAN 14. tbl.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.