Vikan - 18.05.1967, Blaðsíða 32
EINKAUMBOÐ:
I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F. RFYKJAVÍK
Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl):
Þú setur fyrir þig um stund ergelsi kunningja þíns,
en þú þekkir hann ekki nógu vel, láttu rjúka úr
honum og taktu honum eins og ekkert hafi í skor-
i:'t næst þegar þið hittist. Heillalitur er blár.
Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí):
Þú færð tækifæri til að launa góðvild og umhyggju-
semi ættingja þíns og gerðu það eins vel og þú með
nokkru móti getur. Ættingi þinn, sem liggur á
sjúkrahúsi, hefði gaman af að sjá þig.
| Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní):
Það er allt í óreiðii í kringum þig og flpstir hlutir
tyndir sem þig vanhagar um. Þú veizt að það er
sjálfum þér að kenna og veizt líka að þú þarft að
setja þér ákveðnar reglur. Þú vinnur í happdrætti.
Krabbamerkið (22. júní — 23. júií):
Þú reynir að aðstoða kunningja þinn en það reyn-
ist erfitt að gera honum til hæfis. Þú verður lítið
heimavið, skemmtir þér mikið og með margskonar
fólki. Smá ferðalag um helgina.
Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst):
Kunningjakona þín stundar nú atvinnu sem leiðir
til góðra sambanda. Þú átt nokkuð erfitt með að
samlagast fólki og þesvegna skaltu leggja áherzlu
á að treysta á sjálfan þig og vera sjálfum þér nógur.
Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september):
Revndu að koma á sáttum er kunningjar þínir deila.
Nokkur hætta er á rýrnun fjármuna þinna. Þú færð
fréttir sem þér finnast of óljósar til að taka af-
stöðu og ertu því nokkuð órólegur.
Vogarmerkið (24. september — 23. október):
Þú þarft á aðstoð að halda en því miður verðurðu
að vera að mestu án hennar því kunningjar þínir
eru mjög uppteknir eins og þú sjálfur ert líka oft-
ast. Vikan verður yfirleitt þægileg.
Drekamerkið (24. október — 22. nóvember):
Þú ert nokkuð óviss og fálmandi í gerðum þínum.
Innan skamms mun þó rætast úr fyrir þér. Gættu
þess að vera ekki of sjálfselskur í hugsunum og
gerðum, þú þarft einnig að hugsa um umhverfi þitt.
Bogamannsmerkið (23. nóvember — 21. des.):
Taktu engar ákvarðanir í fljótheitum, þér liggur
ekkert á. Það er ætlazt til ákveðinna hluta af þér
sem þú kemst því miður ekki undan, en mikið er
komið undir að þú reynir að vera samvinnuþýður.
Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar):
Það er viðsjárvert fyrir þig að bera mikla peninga
með þér. Vendu þig á að hafa ekki meira en þú
nauðsynlega þarft á að halda. Vertu sem mest í
samvistum við fjölskyldu þína.
Vatnsberamerkið (21.
lanuar
19. febrúar):
Farðu rólega að öllu og íhugaðu vel það sem þú
ert að gera, hvar sem þú ert, heima og heiman.
Leggðu mesta áherzlu á að leysa skyldustörf þín
óaðfinnanlega af hendi.
Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz):
Þú afkastar miklu þessa vikuna, en þú beitir þér
þó ekkert að ráði fyrr en skriður kemst á verkin
og þau ýta á eftir þér. Reiknaðu með nokkrum ó-
væntum töfum, þá fara þær ekki eins í skapið.
32 VIKAN
20. tbl.