Vikan - 22.03.1968, Page 2
DÚVmiMI
BIFREIÐA
TRYGGINGUM
HAGKVÆM — EINFÖLD — OG ÓDÝR TRYGGING fyrir allar tegundir og gerðir bifreiSa.
HALF
KASKO
Þessi nýja trygging bætir skemmdir, sem verða á ökutækjum af völdum
VELTU og/eða
HRAPS og er sjáifsáhætta tryggingartaka 50% i hverju sliku tjóni.
ELDSVOÐA, eldingar eða sprengingar. ÞJÓFNAÐAR eða tilraunar til sliks
Og auk þess RÚÐUBROT af hvað orsökum, sem þau verða.
IÐGJÖLD fyrir þessa nýju tryggingu eru sérlega lág, og um verulega
iðgjaldalækkun á brunatryggingum bifreiða er t.d. að ræða. Ársiðgjald
nokkurra bifreiðagerða eru sem hér segir:
EINKABIFREIÐIR
FÓLKSBIREIÐIR, gegn borgun
JEPPABIFREIÐIR
VÖRUBIFREIÐIR, einka
VÖRUBIFREIÐIR, atvinnu
VÖRUBIFREIÐIR, gegn borgun
SENDIFERÐABIFREIÐIR
REIÐHJÓL m/hjálparvél
DRÁTTARVÉLAR
ársiðgjald
Kr.
850.00
1.200.00
850.00
850.00
1.000.00
1.050.00
950.00
150.00
450.00
Við undirbúning þessarar tryggingar hefur verið leitazt við að koma til móts við þá mörgu bifreiða
eigendur, sem ekki telja sér hag i þvi að hafa bifreiðir sinar í fullri kasko tryggingu.
Allar nánari upplýsingar veitir Aðalskrifstofan, Armúla 3, svo og umboðsmenn vorir um allt land.
SAIVfVIlXrVUTRYGGirVGAR
ARMULA 3
SIMI38S00
r
Vegastafrófið
Nýlega stóð í einu dagblað-
anna, að hægiumferðin væri
víst jafn óumflýjanleg og sjálf
örlögin og dauðinn. Þetta má
til sanns vegar færa, þótt
hressilega sé til orða tekið.
Hópur manna vinnur nú að
því daginn út og daginn inn, að
öllum landslýðs verði kunnugt
hvað gerist 26. maí 1968. Þá
verður enginn venjulegur vor.
dagur. Þá verður Hádagur. Á-
róðurinn glymur í eyrum okk-
ar, og ekki er augunum hlíft
heldur: sjónvarpið og blöðin
brýna sjónminnið eftir beztu
getu. Allt er þetta gott og
blessað. Ekki veitir af að und-
irbúa svo róttæka breytingu
vel og rækilega.
Með það í huga hefur lík-
lega fleiri en undirritaðan rek-
ið í rogastanz, er hann fékk í
hendur nýja útgáfu af Vega-
stafrófinu, sem er kennslubók
í umferðarreglum fyrir börn.
Þetta er hið ágætasta kver;
skemmtileg teikning og ljóð-
lína fylgir hverjum staf. Gall-
inn er hins vegar sá, að það
er gefið út í marzmánuði „í
samvinnu við Framkvæmda-
nefnd hægriumferðar 1968“,
en samt er eins og aðstandend-
ur þess hafi ekki hugmynd um
hvað gerist 26. maí! í kver-
inu stendur meðal annars
þetta:
Okkur ber að vægja
og víkja eftir nótum,
fyrir umferð frá VINSTRI
á vegamótum.
Þessar umferðarreglur eru
sem sagt miðaðar við vinstri-
akstur, þótt þær séu gefnar
út örskömmu áður en hægri-
akstur gengur í gildi.
Það er kannski illgirni að
minnast á hænsnin, er gleyma
öllum reglum í heimsku sinni,
en umræddu kveri lýkur ein-
mitt á vísu í þeim dúr. Hvað
sem því iíður er mjög baga-
legt, þegar hægri höndin veit
ekki hvað sú vinstri gerir.
G.Gr.
u