Vikan


Vikan - 22.03.1968, Side 24

Vikan - 22.03.1968, Side 24
00 / HJÁLMUR ER SETTUR YFIR KVIÐ KONUNNAR OG PLASTBELGUR ÞAR YFIR. SÍÐAN ER PLASTB KVIÐARHOLINU TIL MUNA OG ÞAR MEÐ ÞRÝSTINGURINN Á FÓSTRIÐ. Fölt og tekið andlit ungu kon- unnar kipraðist af kvölum, hún virtist ekki taka eftir læknum og hjúkrunarkonum, sem viðstödd voru, en beindi athygli sinni að manni, sem stóð í miðju herberg- inu og var að hagræða einkenni- legum stól. A honum var eins konar poka úr plasti komið fyrir. Læknir kom til konunnar og leiddi hana yfir að stólnum. Þótt hún hefði ekki séð þennan stól fyrr, vissi hún til hvers hann var ætlaður, og hafði fengið nákvæmar lýsingar af þessu tæki áður og hafði með glöðu geði samþykkt að láta prófa þetta við sig. Onnur sársaukahríðin kom og fór. Hún losaði takið um bólstr- aða höfuðhvílu stólsins og starði kvíðafull á hópinn í kringum sig. Þetta átti sér stað á stóru sjúkra- húsi í Cardiff, einni beztu heilsu- verndunarstöð Bretlands. Rennilásinn á plastpokanum var opnaður, konan settist í stólinn og hagræddi sér innan í pokanum. Svo var lásnum rennt upp að mitti og sterkum plasthjálmi rennt yfir kvið konunnar undir plastpokanum, og hliðar hjálmsins látnar hvíla f þar til gerðum grópum sitt hvorum megin við mjaðmir konunnar. Hjálmurinn huldi alveg kvið henn- ar og var svo aftur hulinn plast- pokanum, sem var vandlega lokað með rennilás og náði konunni und- ir hendur. Barkaslöngu, sem var ein og kvart tomma á vídd var komið fyrir efst á hjálminum og þrýstingsmælir settur í rörbút við hliðina á slöngunni. Hinn endi slöngunnar hvarf ofan í kassa, sem myndaði neðri hluta stólsins. Hendi konunnar var hagrætt á lítilli vog- arstöng, sem var staðsett við hægri arm stólsins. Þessa vogarstöng hreyfði hún, hálf hræðslulega fram á við, þegar hún fann fyrir hríðar- verkjunum. Andlit hennar afmynd- aðist og hún reyndi að hreyfa sig til innan í þessum hjúp, eins og til að lina kvalirnaar. Suðið í vélinni jókst og hjúpurinn lagðist fast að fótleggjum hennar, það glansaði á hann eins og silkiormshýði. Hún andaði djúpt að sér, hélt niðri í sér andanum, eins og lungu hennar vildu ekki skila loftinu aftur. Kvala- svipurinn hvarf og hún brosti ósjálf- rátt, slakaði á og kinnarnar fengu litarvott. Maðurinn sem sá um að koma þessu tæki í gang, fulltrúi frá Elec- trolux fyrirtækinu, athugaði þrýst- ingsmælinn og sneri sér svo við til að svara spurningahríð, sem dundi á honum frá þessum lækningafróða hóp, sem stóð andspænis honum. Nokkrum mínútum síðar var stóll- inn tekinn úr sambandi og konunni hjálpað á fætur. Það var greinilegt að hún var ófús að yfirgefa tækið, það sýndi að hún hafði fengið hvíid frá kvöl- um. Hjúkrunarkona fylgdi henni og einn læknirinn fylgdi henni að dyr- unum, lofaði henni setu ! stólnum síðar um daginn. Hann þurfti ekki að efna það loforð, vegna þess að barn hennar fæddist klukkutíma síðar. Þessi sýniaðgerð hafði heppn- azt vel og var áhrifarík sönnun um ágæti þessarar aðferðar, sem er nefnd Decompression. (Afþrýsting- ur). Þótt kynning þessi hafi átt sér stað fyrir tæpu ári síðan, á þetta lengri aðdraganda. Árið 1959 kom prófessor Robert Keller frá Edin- borg fram með þessa hugmynd, eftir að hafa verið í Jóhannesar- borg. Þegar hann kom heim til Skotlands, var búið til tæki eftir hans fyrirsögn, og tilraunir hófust; það voru þeir dr. John Loudon og dr. Donald Scott sem framkvæmdu þær. Árangur af þessum tilraunum var birtur í maí 1960 og ritið köll- uðu þeir ,,A Method of Abdominal Decompression in Labor". (Aðferð til að létta á þrýstingi f kviðarholi við fæðingu). Burtséð frá nokkrum slíkum grein- um og stuttri frásögn f sjónvarpi, var ekkert gert til að kynna þessa nýjung, hvorki meðal læknastéttar- innar eða leikfólks, þangað til El- ectrolux verksmiðjan komst í sam- band við þekktan fæðingalækni í London. Þessi læknir hafði heyrt að upphafsmenn þessarar aðferðar til að létta á þrýstingi í kviðarholi barnshafandi kvenna hefðu notað til þess áhald eða vél, sem hann langaði til að prófa, og líkja eftir eins nákvæmlega og mögulegt væri, svo hann fór fram á það við fyrirtækið að fá lánaðar tvær ryk- sugur til þessara rannsókna. Fyrir- tækið fór þá að afla sér upplýs- inga. og komst að þvf að læknir- inn hafði hug á að koma sér upp afþrýstingstæki (Decompressor). — Þetta skeði árið 1963, og síðan hef- ur Electrolux fyrirtækið komið fram á sjónarsviðið með þetta tæki, sem vakið hefur bæði áhuga og vantrú, eins og venja er um tilraunir braut- ryðjenda á flestum sviðum. Afþrýstingskenningin á upphaf sitt árið 1954, þegar dr. O. S. Heyns, deildarformaður lækna- deildarinnar við háskólasjúkrahús- ið f Witwatersrand f Suður-Afríku, reyndi að finna einhver vélræn ráð til að létta barnshafandi konu óþægindi af þrýsting sem orsakast 24 VIKAN “• tbl-

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.