Vikan - 22.03.1968, Side 36
verndarlögin og er ekki fáanlegt á
opinberum markaði. Fulltrúar Elec-
trolux segja, að heilbrigðismála-
ráðuneytið hafi viðurkennt nýjustu
tækin, sem fyrirtækið hefur fram-
leitt. Það er aðeins fyrsta hindrun-
in, sem hefur verið yfirunnin, áður
en tækin verða boðin fram á frjáls-
um markaði, með ábyrgð yfirvalda
heilbrigðismálanna.
— Þótt sjúklingurinn geti sjálfur
stjórnað tækinu, segir dr. Faulkes,
— er þetta ennþá meðferð sem þarf
oð vera undir umsjá læknis.
Dr. Faulkes varð nokkuð hissa,
beqar hann heyrði hver áhrif
■:.,rsla hans um flogaveikina hafði
á sjúklinga hans. Hann segist hafa
verið grunlaus um þau áhrif. —
Þetta hljóta að vera byrjunaráhrif,
síðar eiga þær eftir að komast að
því, hve þessi meðferð léttir fæð-
inguna. Ég hef heyrt því haldið
36 VIKAN n- tbl-
fram, að þetta séu sálfræðileg áhrif,
en ég hef ekki trú á því. Það er
ekki hægt að flýta fyrir fæðingu
með hugsunum einum. Ég hef tvær
Ijósmæður mér til aðstoðar, og þær
eru báðar mjög hrifnar af þessari
tækni. Já, þær eru jafnvel ennþá
sannfærðari en ég um ágæti þess-
arar meðferðar. Þetta er mjög
áhrifaríkt, þar sem þær eru yfir-
leitt lengur hjá sjúklingnum en ég.
Sinnuleysi gagnvart afþrýstings-
aðferðinni, eins og á sér stað með-
al brezkra lækna, er líka að finna
í Bandaríkjunum, þótt nokkrar
sjúkradeildir hafi haft hana til at-
hugunar í nokkur ár. Nokkrir lækn-
ar, eins og t. d. Meeker við Uni-
versity of Minnesota, hafa notað
hana við raunhæfar rannsóknir síð-
an 1964, en yfirleitt eru meðlimir
læknastéttarinnar í Ameríku mjög
fáfróðir um þetta. Þótt nú séu liðin
sjö ár síðan byrjað var að prófa
þessa aðferð í Bretlandi, er það
fyrst nú sem fréttir um þetta koma
fyrir almenning. Þrátt fyrir mjög
góðan árangur í Suður-Afríku á síð-
ustu tólf árum, þurfti hóp vfsinda-
manna, nokkra framsýna lækna og
djarfar mæður, áður en hægt var
að Ijúka við þennan útbúnað.
Skyldu læknar í Ameríku verða
eins daufir fyrir þessari nýjung og
starfsbræður þeirra í Evrópu? Einn
viðurkenndur læknir í New York,
sem spurður var um álit sitt á af-
þrýstingsaðferðinni svaraði:
-- Við höfum vitað um þessar
tilraunir um nokkra hríð, en eng-
inn getur sagt með vissu, hvort
þessi meðhöndlun eykur súrefnis-
birgðir fóstursins, — hvort þessi súr-
efnisaukning kemst f blóð fósturs-
ins. Þetta virðist furðuleg skoðun
læknisfróðs manns, ófullnægjandi
ástæða til að kæfa spurningar við-
víkjandi afþrýstingsaðferðinni, og
neita því að þetta geti orðið til
hjálpar fyrir milljónir mæðra.
Það er varla hægt að finna meiri
aðdáendur afþrýstingsaðferðarinnar
og skoðana dr. Heyns en Coombs-
hjónin í Dulvich, sem er útborg í
London. Þegar talað var við frú
Coombs var hún á áttunda mán-
uði, og hefur alls notað afþrýstings-
aðferðina í 14 vikur, þegar barn
hennar fæðist. Þau hjón keyptu af-
þrýstingstæki hjá Electrolux f apríl,
og hafa í huga (þegar þetta er
skrifað), að leigja tækið út eftir
fæðinguna. Ljósmóðir frúarinnar
þekkti ekkert til þessa tækis fyrr en
hún sá það á heimili hjónanna, en
hún hefur nú fengið konur, sem eru
á hennar vegum til að tala við frú
Coombs og jafnvel að prófa tækið.
Frú Coombs segir: — Það er at-
hyglisvert, að barnið sparkar yfir-
leitt þegar ég stöðva mótorinn f
nokkrar sekúndur. Og þegar ég hef
verið tilsettan tfma í tækinu dag-
lega, þá sparkar það mikið. Ég finn
greinilega hvernig vöðvarnir f kvið-
arholinu lyftast, og mér finnst eins
og mjaðmagrindin víkki. . . .
Electrolux vill helzt gera lítið úr
því, að börn sem fæðast við þessar
aðstæður, séu gáfaðri en gengur og
gerist. Flestir foreldrar, aðspurðir á
þessum vettvangi, eru greinilega
frekar skefldir yfir tilhugsuninni um
að búa með slíkum börnum. Flestir
foreldrar vilja helzt vera f samræmi
við börn sfn. Við og við heyrist get-
ið um undratórn, sem geta ráðið
flóknar, stæroFræðilegar gátur um
fimm ára aldur, læra að lesa
tveggja ára, skrifa þriggja ára, og
hafa jafnvel kunnað að telja fjögra
mánaða. Tilkoma slíkrar kynslóðar
hlýtur að rugla okkur í rfminu. —
Menn geta huggað sig við það að
gáfnaljós á borð við þetta eru enn-
þá fjarlæg hugmynd, jafnvel þótt
kenningar dr. Heyns reynist réttar.
Takmark prófessorsins er miklu
hógværara. Hann óskar eftir full-
komlega heilbrigðum börnum og
trúir því að ,,tvö af fimm börnum
verði mitt á milli greindra og mjög
greindra barna. Við erum að
reyna að stuðla að því að börn-
in verði yfirburðabörn líkamlega.
En Ifklega er það ákjósanlegast, að
barnið fái traust og jafnvægi, og
hafi sem minnst af þeim göllum,
sem gætu orðið hættulegir hæfi-
leikum þess."
Dr. Heyns furðar sig á þvf hve
mörg af stórmennum sögunnar hafi
eignazt miðlungsgefin börn. — Hvað
verður af frumuspírunum? spyr
hann. — Hvernig má það vera, að
erfðayfirburðir þurrkast út?
Brautryðjendastarf dr. Heyns,
ásamt rannsóknum stéttarbræðra
hans, hefur að minnsta kosti kom-
ið fram með læknisfræðilega hug-
mynd, sem lofar góðu um að auð-
velda mæðrum framtfðarinnar hlut-
skipti sitt. Ef við tökum mestu
möguleika, sem þessar tilraunir
gætu haft í för með sér, gæti svo
farið að fbúar jarðarinnar yrðu það