Vikan - 22.03.1968, Side 41
mai'tini svo vatnsglösum skipti
og varð fullur á engri stund, svo
dó hann og hinir mennirnir báru
hann út og settu haxín í bólið.
Ég spjallaði svolítið við hann,
áður en hann varð allt of fullur.
Svo króaði ég Bonny Yates af,
inni í litla herberginu með eld-
stæðinu, inn af forstofunni, hún
var alveg mátulega full. Ég leit
á hana með mínum mesta sak-
leysissvip og sagði að það hefði
líklega verið afar heppilegt að
hún hefði verið hjá Kelsey, þeg-
ar hann fékk fréttirnar um
Lucille. Hún viðurkenndi það, en
svo varð hún afar æst og tauga-
óstyrk. Hún neitaði því, en ég
sagði að Kelsey hefði sagt mér
að hún hefði verið hjá honum.
Þá bölvaði hún honum í sand og
ösku og sagði hann hann væri
svívirðilegur kjaftaskur og svo
fór hún að gráta. Hún talaði um
fallegu börnin sín og eiginmann-
inn, sem væri of önnum kafinn
til að sinna henni og hvað Kelsey
þarfnaðist einhvers nauðsynlega.
Ég býst við að henni hafi fund-
izt hún vera að leggja sál sína
fram. Þau hafa staðið í þessu í
allt sumar. Hún ók út að báta-
húsinu fyrir hádegi þennan dag,
hún var með Kelsey hverja
stund, frá því hún kom og þar til
síminn hringdi.
— Vel gert, Barbara.
Hún andvarpaði. — Ég hefði
átt að láta þetta nægja, en eftir
matinn fór ég að koma með dul-
arfullar athugasemdir og gefa
morð í skyn. Þau létu eins og ég
væri að stofna til voðalegs
hneykslis. Ég hélt að ég myndi
kannske komast að einhverju,
ég var víst orðin svolítið full
þá. Einn mannanna virtist taka
mig alvarlega, hann lét í það
skína að hann vissi kannske
eitthvað. Svo tók hann mig af-
síðis til að tala um það. Allt
ákaflega dularfullt. Hann vildi
endilega kyssa mig meðan við
vorum að tala um það. Eins og
komið var fyrir mér fannst mér
það ekki nema sanngjarnt. Eftir
um það bil tuttugu mínútur varð
mér það ljóst að það var ekki
einasta að hann vissi ekkert um
morð, heldur hafði honum tek-
izt að koma mér í fast að því
ósæmilegt ástand. Ég varð að
berjast til þess að losna og þá
hló hann að mér og sagði að ég
væri alveg jafn tepruleg og
Lucee hefði verið. Þá hringdi ég
til þín, Bart. Hann hafði gert
mig að bjána.
— Ekki að eins miklu marki
og hann vildi. Tók nokkur al-
varlega hugmyndina um morð?
— Það held ég ekki. Skip
Kimberton tekur það alvarlega.
Hún beindi allri sinni athygli
að honum meðan hann gaf henni
nákvæma skýrslu um hvað gerzt
hafði og það hverju hann hafði
komizt. Þegar hann hafði lokið
máli sínu sagði hún lágt: — Þá
...... er það sennilega allt rétt.
DANISH
GOLF
Nýr stór! gódur
smávinaill
Smávindill í réttri stærd, fullkominn smávindill, fram-
leiddur úr gædatóbaki. DANISH GOLF, nýr, stór!
Smávindill,sem ánægja er ad kynnast.DANISH GOLF
erframleiddur af stærstu tób aksverksmidju Skandina-
viu, og hefir í mörg ár verid hinn leidandi danski
smávindill.
Kaupid í dag DANISH GOLF í þœgilega 3stk.pakkamm.
SCANDINAVIAN TOBACCO COMPANY
DENMARK
u- tbl VIKAN 41