Vikan - 26.09.1968, Side 44
arfyllri. Bláa sængin, sem þú
tæmir í vatnið, gæti bent til þess
að þú varpaðir frá þér í hugsun-
arleysi einhverju góðu, og gætu
köld ráð einhvers, sem þú grun-
ar ekki um græsku eða jafnvel
þekkir ekki, valdið þar nokkru
um. Allavega er að sjá að ein-
hver breyting á högum þínum sé
í vændum. Þú virðist verða fyrir
ofsóknum, en eiga erfitt með að
átta þig á hver fyrir þeim stend-
ur og njóta lítillar aðstoðar ann-
arra gegn þeim, jafnvel ekki
þinna nánustu. Biðjir þú ein-
hverja um ráð og fáir þau, geta
þau stundum reynst hafa tvírætt
gildi. Svo er að sjá að þú um
síðir teflir á tæpt vað til að
losna við ofsækjanda þinn og tak-
ist það. ☆
Smyglaði gulli
Framhald af bls. 21
það liðu fimmtán klukkutímar
þar til við lentum í Honkong.
Þegar ég steig út úr flugvél-
inni fannst mér flugþernan hafa
auga með mér. Það var rétt svo
að ég gat gengið upprétt. Við
stóðum svo í biðröð við tollskýl-
ið, og ég fann hvernig svitinn
bogaði af mér. Mér fannst sem
allir hlytu að sjá að ég var ó-
eðlilega digur um mittið.
Ég get ekki lýst hve fegin ég
var, þegar ég gat farið úr maga-
beltinu á hótelinu. Ég fór í bað,
til að ná vel af mér förunum
eftir gullstengurnar, og ég var
eins og ný manneskja á eftir.
Ég hringdi til móttakandans,
sem var kallaður Mike, og hann
kom eftir hálftíma. Þetta var
Ijómandi geðugur náungi. Hann
bauð mér út að borða, og sagð-
ist vera bróðir Mamouns og heita
réttu nafni Fayek Takieddine.
Með honum var hávaxin, ljós-
hærð og mjög lagleg stúlka, þýzk
að ætt, og kölluð Uschi. Hún
sagðist vera flugþerna hjá Brit-
ish Eagle. Mig grunaði að hún
væri líka við gullsmyglið riðin,
en ég spurði einskis. Hún fór
eftir stundarkorn, sagðist þurfa
að athuga eitthvað í flugvélinni.
Við Fayek fórum á nætur-
klúbb og skemmtum okkur vel
fram eftir nóttu. Ég kom ekki
til hótelsins fyrr en klukkan
fjögur um nóttina og ég sofnaði
strax.
Eftir nokkurra daga skemmti-
lega dvöl í Hongkong flugum
við Fayek til Beirut. Ég hitti
Steve þar og við ákváðum að
fljúga saman til Stokkhólms.
Þegar ég var búin að vera í
Stokkhólmi í nokkrar vikur, var
hringt til mín frá Beirut. Það
var Raymond, og hann bað mig
um að koma til Beirut. Tveim
dögum síðar fékk ég sendan flug-
farmiða með Swissair, og ég lagði
af stað daginn eí'tir, áieiðis til
Beirut.
f húsi Raymonds hitti ég nú
nokkrar af stúlkunum, sem hann
hafði í þjónustu sinni. Kenni-
nöfn þeirra voru Joe, Fred, Liza,
Ann, Jackie, Judy, Kathy, Rose
og Uschi. Þær voru frá Englandi,
Ástralíu, Frakklandi og Þýzka-
landi.
Við Uschi vorum saman um
herbergi.
Strax næsta morgun lagði ég
af stað, í þetta sinn til Taipei, og
hafði 30 kíló af gulli meðferðis.
Næsta sinn fór ég til Hong-
kong, og síðan fór ég margar
ferðir, ýmist til Taipei eða Hong-
kong.
Milli ferða bjuggum við í ein-
býlishúsi Raymonds. Við áttum
dásamlega daga, böðuðum okkur
í sjónum og sleiktum sólskinið.
Eitt kvöldið syntum við Uschi
í sjónum án þess að biðja um
leyfi. Við nutum þess að svamla
í sjónum í glaða tunglskini.
Raymond varð fjúkandi vondur,
þegar hann komst að því og kall-
aði okkur öllum illum nöfnum.
Mér fannst hann ekki hafa neinn
rétt tii að koma þannig fram við
okkur, svo ég sagði honum að
halda kjafti.
Augu hans urðu myrk af reiði,
og hann gerði sér lítið fyrir og
sló mig. Blóðið rann af andliti
mínu, en ég var samt ekki hættu-
lega meidd.
Tveim dögum síðar brauzt
stríðið út fyrir botni Miðjarðar-
hafs.
Ég hraðaði mér heim til
Stokkhólms. Fayek og Mamoun
buðu mér að koma aftur til Bei-
rut og halda áfram við gull-
smyglið eftir stríðið.
FERÐIN TIL DJAKARTA
VARÐ SÍÐASTA FERÐIN MÍN,
OG ÞAÐ LÁ VIÐ AÐ
ÉG LENTI ILLA í ÞVÍ
Síðast í júlí fékk ég sendan
flugfarmiða frá Swissair, og
flaug til Beirut. f þetta skipti
ætlaði ég að virina fyrir Takied-
dine bræðurna. Þeir voru búnir
að losa sig úr sambandinu við
Raymond Nash.
Ég smyglaði nú gulli til Tokyo,
Taipei og Hongkong. Ég fór sjö
ferðir alls.
En svo varð ég þreytt á þessu,
og ákvað að fara eina ferð ennþá
og í það skiptið til Djakarta. Þar
var ég hætt komin.
Uschi hafði, af einhverjum á-
stæðum, sem mér voru ekki
kunnar, fundið upp á því að láta
taka mig fasta. Hún sendi skeyti
til unnusta síns, sem var kallað-
ur Ed, og hann var í Djakarta:
„Kærðu hana fyrir tollinum.“
Þegar ég kom út úr vélinni,
kom tollvörður á móti mér og
sagði:
— Þessa leið, gjörið svo vel.
Hann var ákaflega kurteis og
vingjarnlegur, en ég grunaði
JEFIHGATJEKIBIILLWORKER 2,
hefur valdið gjörbyltingu í líkamsrækt um heim allan.
Myndskreytt æfingatafla og' þýddar æfingaskýringar fylgja hverjn tæki.
Þ‘v::?.r r yndir sýn?. sjö æíingar mcö Bullworker 2. Bullworker-æfingarnar eru ýmist þrýstings- eða togæfingar, og
cr Y: *■crri æflngu æílaöar 7 sekúndur á dag.
1. Þessi æfing styrkir brjóstvöðvana, og eru það aðaláhrif h?nnar. Önnur áhrif: Upphandleggsvöðvar, framhandleggs-
vöðvar og axlavöðvar. 1
(vöðvar framan á upp-
handlegg). Önnur áhrif:
Axlavöðvar og fram-
handleggsvöðvar.
3. Aðaláhrif Þríhöfði
(vöðvar aftan á upp-
handlegg). Önnur áhrif:
Tvíhöfði og bakvöðvar
axla.
4. Áðaláhrif: Upphand-
leggvöðvar. Önnur á-
lirif: Breiðvöðvar á
baki.
5. Aðaláhrif: Styrkir
brjóstvöðvana. Önnur á-
hrif: Framhandleggs-
vöðvar og framvöðvar
axla.
6. Aðaláhrif: Ax'lavöðv-
ar. Önnur áhrif: Upp-
handleggsvöðvar og
efstu bakvöðvar.
7. Þessi ænng er í flokki
megrunaræfinga. Aðal-
áhrif: Kviðvöðvar. Önn-
ur áhrif; Breiðvöðvar á
baki og upphandleggsv.
Olympíulið Bandaríkjanna og Vestur-Þýzkalands notuðu það til æfinga fyrir Olympíuleikina í Tokyo 1964, og er notkun þess talin hafa átt mikinn þátt í
framúrskarandi árangri þeirra.
Þótt þessi staðrcynd tali sterku máli um þau not sem íþróttamcnn geta haft af tækinu, er þó hitt eftirtektarverðara, að það er EKKI SÍÐUR VIÐ IIÆFI
ÞEIRRA, SEM EKKI STUNDA ÍÞRÓTTIR, en þurfa að sýna líkama sínum' ræktarsemi til nauðsynjaþarfa. Flestir láta sig liafa það að slá slöku við, og þótt
þeir „kenni sér einskis meins“ séu ,,í fullu fjöri“ eins og sagt er, er staðreynöin engu að síður sú, að þeir eru að eldast um aldur fram. Menn fara yfirleitt
undan í flæmingi, bera fyrir sig tímaleysi, æfingar séu tímafrekar og krefjist átaks sem þeir hafa sig ekki upp í. SLÍKAR AFSAKANIR ERU ÓFRAMBÆRI-
LEGAR EFTIR AÐ BULLWORKEIl 2 KOM TIL SÖGUNNAR. Eftir 10 ára þrotlausar
rannsóknir tókst liinni heimsfrægu Max Planck stofnun í Vestur-Þýzkalandi að skapa
æfingatæki og æfingakerfi, sem kcmur bæði þaulæfðum íþróttamönnuin og oftálguðum
eða of-tútnuðum almcnningi að gagni.
í Bullworker 2 kerfinu geta menn valið eftir þörfum á milli 24 æfinga, en í EINFALDASTA
ÆFINGAFLOKKNUM ERU 7 ÆFINGAR. IIVER ÆFING TEKUR 7 SEKÚNDUR, OG
ÞARF EKKI AÐ GERA ÞÆR NEMA EINU SINNI Á DAG. Engin ástæða er til að fara
í æfingabúning, því að þér getið gert æfingarnar heima hjá yður eða á skrifstofunni, hvar
scm er og hvenær sem er ÁN SVITA OG ERFIÐIS, EN EKKI ÁN ÁRANGURS. Þegar, að
14 dögum liðnum, getiö þér fullvissað yður um að árangur hefur náðst með því að bregða
málbandi um upphandleggsvöðvana, herðarnar og brjóstkassann og bera saman við málin
áður en þér byrjuðuð. Ilafi tækið ekki sannfært yður um að yður sé gagn að því, að
þessum 14 dögum liðnum, er yður frjálst að endursenda það og mun þá endurgreiðsla
fara fram umyrðalaust.
------------- Klippið hér — og sendið í dag -----------------
Vínsamlegast sendið mér litmyndabækling yðar um Bullworker
2 mér að kostnaðarla.usu og án skuldbindinga frá minni hálfu.
Nafn .... .......
Heimilisfang
Skrifið með prentstöfum.
BULLWORKEIt UMBOÐIÐ
V/2S098 Pósthólf 69 — Kópavogi