Vikan


Vikan - 05.06.1969, Blaðsíða 32

Vikan - 05.06.1969, Blaðsíða 32
 Reykurinn fer ca. 22,5 sm. í gegnum kælikerfi RONSON pípunnar og kemur kældur og þurr út. U00 OUBIIH APPLE_BILUARD 9 0 SMALL BILLtAHO BULLOOG Það eru fleiri en ein pípa í sömu pípunni, 10 mismun- andi kóngar og tvenns konar munnstykki fyrirliggjandi. Það er hægt að velja á milli. EINKAUMBOÐ: I. GUÐMUNDSSON & CO. H.F. HVERFISGÖTU 89, REYKJAVÍK. nnfwgnrr-i—^n—————————n^———« STJÖRNUSPÁ % % % •- ^hTmow Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): Framan af verða dagarnir hversdagslegir; en skyndi- lega kemur ný persóna fram á sjónarsviðið og breyt- ir öllu. Láttu þér annt um þessa persónu og reyndu að vinna hylli hennar, þá er þér borgið. 0 Vogarmerkið (24. september — 23. október): Vertu vel vakandi og láttu ekki tækifærin ganga úr greipum. Smámunasemi þín hleypir illu blóði í þá sem umgangast þig mest. Ágjarn maður veldur þér nokkrum erfiðleikum. Þú ferð í sérstæða ferð. ■sjgaar Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Óvænt vitneskja á eftir að hafa mikil áhrif á þig og gera þér gott. Starfsorka þín er mikil og skaltu ekki veigra þér við nýjum verkefnum. Félagar þínir halda smá fund heima hjá þér. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Atburðarásin veltur mjög á afstöðu þlnni; hafðu í huga að það er hægt að komast langt með þolin- mæðinni. Þú færð tækifæri til að treysta samband þitt við persónur, sem reynast æði áhrifamiklar. S® llJl Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): Þú gerir mikla lukku í hópi félaganna. Aðstæður haga því þannig til að þú færð næg tækifæri til að umgangast þá sem þér eru kærastir. Afskiptasemi nágrannanna gerir þér gramt í geði. Bogmannsmerkið (23. nóvember — 21. des.): Umgengni þín við fjölskylduna verður óvenju mikil. Líklega verðurðu meðlimur i stóru samkvæmi, höldnu til heiðurs ættingjum þínum. Forföll ann- arra koma í veg fyrir ferðalög þín að sinni. Krabbamerkið (22. júní — 23. júlí): ÞaS fer mikill tími til spillis fyrir þér sökum áhuga þíns á forgengilegum hlutum. Ef þú ætlar að standa þig í samkeppninni verðurðu að fara að spjara þig. Á vinnustað er lítið um framfarir. SteingeitarmerTið (22. desember — 20. janúar): Vinveitt fólk býður þér aðstoð sem þú skalt þiggja. Vingjamleiki og ákveðnl fleyta þér lengst. Gættu þín á manní sem reynir að hafa áhrif á skoðanir þínar. Þú stundar mikið útilíf. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ógúst); Eitthvað i umhverfinu þvingar þig og hindrar fram- tak þitt. Vertu fús að semja og taka vægt á hlutun- um; vinsældir geta haft úrslitaþýðingu. Þú sækir á ný mið við að afla þér kunningja. QPI Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Þrátt fyrir nokkra erfíðleika miðar allt í rétta átt fyrir þér og máttu vel við una. Hafðu gát á verk- efnum þínum, í þeim gætu leynzt gildrur. í mál- efunm hjartans skaltu ekkl íiana að neinu. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú tekur þátt í miklum gleðskap með gömlum fé- lögum. Taktu ekki neinar bindandi ákvarðanir varð- andi framtíðina. Þú ferð í nokkurra daga ferðalag og ferð vítt yfir. Hæfileg sjálfsgagnrýni er sjálfsögð. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Tómstundastörfin hafa tekið full mikið af frítíma þínum. Þú þarft að umgangast margt fólk og leysa úr hvers kyns vanda. Þú hefur möguleika á að gera þér mat úr einhverju sem aðrir hafa geflzt upp við.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.