Vikan


Vikan - 05.06.1969, Blaðsíða 18

Vikan - 05.06.1969, Blaðsíða 18
Þegar lamlitf fær mál ÞRJAR ÍSLEN2KAR FIÁSAGNIR EFTIR ÞORSTEIN MATTHfASSON LÉTT Á LÍIVJENEJIM FLÝGll FISKISAGA IRÍOAGDAGII Á STEINADALSHEIDI Inn af Hvammsfirði liggur Dalahérað. Landslag er þar óvíða stórbrotið eða fjöll há og rismikil. Milli dalanna eru víð- ast lágir hálsar og línumjúk fjöll. Landið er vel gróið og bú- sældarlegt um að litast. Tærar bergvatnsár falla í fjörðinn, flestar lygnar með léttum straumi milli flúða. Börn dalanna hafa aldrei séð brimöldu rísa hátt við strönd byggðar sinnar, því Hvamms- fjörður er nánast sem stöðuvatn, þar sem eyjaband Breiðafjarðar ligur fyrir mynni hans. Ströndin er víðast mjúk sand- fjara, sem smásævi leikur um þegar vindar blása og hreyfa kyrran flöt fjarðarins. Innst í firðinum sefur selur á skerjum og lax byltist í lóni á leið sinni upp í árnar, er ekki vitað að þessi sambúð valdi neinum þeim erfiðleikum, sem af verði ófrið- ur. Eitt þeirra straumvatna, sem í fjörðinn falla er Fáskrúð, milli Glerárskóga og Ljárskóga. Hún kemur framan úr Gaflfellsheiði og á þar uppsprettu í heiðar- tjörnum og fjallalækjum, sem finna sér sameiginlegan farveg eftir lægð milli lágra hæða allt fram að ósi. Sunnan árinnar, þar sem hátt ber á heiðinni er fjallabýli, sem nú er löngu í eyði fallið — Ljárskógasel. Þar ólst upp Jó- hannes Jónasson, skáldið, sem þekkt er undir nafninu Jóhannes úr Kötlum. — En klettaborgir þar niðri við ána og djúpar kvarnir í gljúfrinu kallast „KATLAR“ og þar af tók hann sér kenninafn. ..Bleikur er varpinn bærinn minn í eyði. Syngja þó ennþá svanir fram á heiði.“ Æskuljóð þessa vinsæla skálds, bera ótvírætt svipmót þessa um- hverfis er hann ól. Mildur svip- ur dalanna, heiðaró, lindahjal, svanasöngur og mófuglakvak, er undirtónninn í fyrstu söngv- um hans. Þannig er einnig um annað Dalaskáld. Jón frá Ljár- skógum. „Hvað er það sem snertir hjartans innsta streng? Allt sem áður seiddi ungan sveitadreng. Létt á lóuvængjum líður hugurinn, yfir haf og heiðar heim — í dalinn minn.“ Tónninn í náttúruljóðum þessara skálda er ekki brimgnýr eða boðaföll, heldur ljúfur þeyr og létt ölduhjal, sem bernskuhreim- ur þeirra var ríkastur af. Þótt ekki væri hátt risið á gömlu torfbýlununm, skýldu þau vel fyrir svölum vindinum og vetr- arhríðunum. Það er fyrst þegar öldur rísa hátt á hafi þess mann- lífs, sem þeir kynnast utan sinn- ar heimabyggðar, að brjóta tek- ur úr báru í ljóðum þeirra. Fyrir rúmlega fjörutíu árum bar mig fyrst að garði Dala- manna og síðan hefur leiðin oft legið þar um. — Það er júlíkvöld. Ég hef daglangt labbað með veiðistöng- ina mína fram með ánni, rennt í hylji og iðukast léttra strauma, en ekki haft þar erindi sem erfiði hvað veiðiskapinn snerti, enda fyrsta reynsla mín af við- skiptum við laxinn. Þó hafði mér um morguninn tekizt að krækja í einn 6 punda hæng, svo í mig kom nokkur veiðihrollur, sem þó minnkaði eftir því sem á daginn leið. — Hellufljót, Hrafnakvörn og hvað það nú allt heitir. Að síðustu er ég kominn fram í KATLA. Og þá fann ég, að til nokkurs var unnið, þótt enginn fiskur biti þar á krókinn. Sólin var langt til vesturs gengin. Veðrið var kyrrt og milt. Upp í heiðinni sá ég hilla undir rústir hins forna býlis Katla- skáldsins. Og skuggamyndir Katlanna urðu fyrir mig ævin- týri kvöldsins. Ég lagði leið mína upp á hæðina þar sem rústin stóð. Túnið, sem forðum var nytjað af fátækum fjallabónda, var nú þéttskipað fénaði byggða- manna, og virtist vel mega sjá, að þau lífgrös, sem þar höfðu þroskazt vegna ræktarsemi huga hans og handa, höfðu enn ekki tapað kjarna sínum og því eftir- sótt af þeim fjallabúum, sem nú gengu þar frjálsir í haga. Eyru mín námu lágvært skvaldur mófuglanna og marg- 18 VIKAN **• tbl'

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.