Vikan - 31.07.1969, Side 11
heldur tilbreytingalaust líf. Ég les jú blöð-
in, og hlusta töluvert á útvarp, en sjónvarp
sé ég sjaldan, enda fæ ég illt í augun ef ég
horfi lengi á það.“
Kúnnunum var farið að fjölga á „núll-
inu“, svo ég fór að hugsa mér til hreyfings,
og eftir íburðarmikla myndatöku þakkaði
ég fyrir og kvaddi með kurt og pí.
Það var hætt að rigna, en ennþá var sami
næðingurinn og mér varð hrollkalt um leið
og ég kom upp á „yfirborðið“, svo ég ákvað
að gera smá-hlé á „góðviðrisrabbinu" og
hverfa aftur upp á VIKU.
Þegar ég fór svo aftur á stjá nokkrum
dögum síðar, var ég í mikið betra skapi,
enda skein sólin í heiði, og bærðist varla
hár á höfði. Leiðin lá beint niður í miðbæ,
og lét ég alveg eiga sig að ferðast með
ófreskjustrætó. Ég get ekki ímyndað mér að
neitt sé skemmtilegra en að labba um mið-
bæinn í góðu veðri á vorin, því þá er eins
og allar fallegustu stúlkur í heimi séu komn-
ar í pínupilsin og spóki sig í góða veðrinu.
Það voru fleiri að spóka sig í góða veðr-
inu þennan dag en stúlkur í pínupilsum.
Við Útvegsbankann stóð lágvaxinn maður í
hermannaskikkju, eða einhverju svoleiðis,
og bauð vegfarendum frímerki til sölu. Það
var enginn annar en nærri-því-þjóðsagna-
persónan Pétur Hoffmann Salómonsson,
riddari af Stóru Selsvör með meiru. É'g
áræddi að ávarpa mikilmennið, og spyrja
hvernig gengi. „Jú, elskan mín, það gengur
ágætlega en ég verð aldrei milljóneri á
þessu. En ef ég hefði nokkrar milljónir, þá
væri ég sko ekki í vandræðum. Það er svo
margt sem ég myndi gera, að þig myndi
aldrei óra fyrir því. Það er sko stóriðja, sem
ég er að tala um, væni minn. Og álarækt-
Ég veit allt um það, enda gaf ég út bækl-
ing um álarækt fyrir fáum árum. Já, það er
ekki fyrir neina aumingja sem eru komnir
af kaghýddum þrælum í 39 ættliði, að standa
í svoleiðis. Svoleiðis fuglar eru þessir menn
hér, sem ætla nú að fara að rækta mink,
sem er ein skaðræðisskepna, og sem ætla að
fara að hefja saltnám á Reykjanesi. Vita
þessir draumóramenn og aumingjar ekki að
það gæti gosið þarna út af Reykjanesinu
hvenær sem er. Nei, það er sko álaræktin
Framhald á bls. 34.
Sessilíus: Búinn að vera við höfnina í
54 ár.
Pétur Hoffmann, sjóræningi úr Selsvör:
„Ekki fyrir neina aumingja komna af
kaghýddum þrælum í 39 ættliði.“
„Ég flutti nú aðallega í bæinn fyrir
drengina,“ sagði Jóhannes Guðjónsson.
Jason á Hallærisplaninu vildi ekki lejda
myndatöku.
Jakob er ánægður með lífið og nýju
hljómsveitina.
31 tbi. vikan II