Vikan


Vikan - 25.02.1971, Síða 39

Vikan - 25.02.1971, Síða 39
 carmen með aðstoð carmen Carmen töfrar lagningu í hár yðar á 10 mínútum. Hárið verður frísklegra og lagningin helzt betur með Carmen.__________ Sendum í póstkröfu hvert á land sem er. Afborgunarskilmálar, útborgun kr. 1.000,00. Carmen 7 með tösku...... kr. 2.071,00 — 11— —............ —2.317,00 — 17 — — ______ — 2.966,00 — 18 — — ....... — 2.966,00 Carmen 20 í tösku .......... — 3.264.00 Taska sér kostar kr. 367,00. Iqt Klapparstíg 26, sími 19800, Rvk. búð'in og Brekkugötu 9, Akureyri, sími 21630. u?5 frá sjúkrabeði hans undir fölsku yfirskini. Þegar hún kom aftur eftir tuttugu mínút- ur, var einn af höfuðsmönn- um Cesare nýbúinn að kyrkja Alfonso. Keyptur eiginmaður Lucrezia Borgia var þá tví- tug að aldri. Til þessa hafði hún góðfúslega hlýtt hverri skipun föður síns og bróður og aldrei ámælt þeim fyrir hryðju- verk þeirra. Hún hafði að vísu varla elskað Alfonso; það hefði verið undarlegt hátterni af manneskju af Borgia-ætt. En henni hafði líkað dável við hann. Og upp frá þe'ssu fór að gæta hjá henni nokkurs sér- sinnis. Án þess að spyrja föður sinn um leyfi, tók hún með sér sex hundruð riddara og víggirti sig í Nepi-kastala, þar sem hún hélt til í átján daga eftir morð- ið á Alfonso. Páfi hafði nýja biðla á reiðum höndum, en hún vísaði þeim frá. Þess konar þvermóðska hefði kostað alla nema Lucreziu lífið. Um síðir gaf hún þó upp að hún vildi gjarnan manni gefast á ný, en aðeins einum og engum ella: hinum tuttugu og fimm ára gamla erfingja hertogadæmis- ins Ferrara í Norður-ftalíu, Al- fonso d'Este. Jafnvel fyrir sjálfa páfadótt- urina var þetta stór ósk. Este- ættin var ein sú elzta og göf- ugasta á Ítalíu; hirð hennar í Ferrara háborg anda og lista. Hún hélt sig mestanpart frá morðum og launráðum, sem ein- stakt var í þá tíð. Ríki hennar var öruggt og auðugt. Alfonso d'Este var það mikill af sjálfum sér og ætt sinni að hann hefði vel getað leitað ráðahags við dóttur sjálfs Frakkakonungs. Þennan mann vildi Lucrezia eiga og hreyfði sig ekki frá Nepi fyrr en faðir hennar hafði lofað að stuðla að ráðahagn- um með öllum ráðum. Este- ættin reyndist ekkert ginkeypt fyrir mægðum við Borgia- slektið, en lét sig þó þegar páfi hafði boðið henni í heim- anmund þrjú hundruð þúsund dúkata, eða yfir sex hundruð milljónir króna, auk margvís- legra annarra hlunninda. Lu- crezia tók sjálf þátt í öllum samningum við Este-fólkið og sýndi þar bæði þolgæði, lagni, kalda skynsemi og greind, sem enginn hefði að óreyndu trúað þessari tuttugu og eins árs gömlu stúlku til að hafa til að bera. Hún sýndi að henni var ekki úr ætt skotið. Hún vissi að faðir hennar og bróðir gátu keypt ríki. Nú krafðist hún eigin ríkis, hvað sem það kost- aði. Hún vissi að Alfonso d‘Este fyrirleit hana. Hún neyddi hann til að kvænast sér. Um þetta leyti var ráðríki hennar svo mikið, að heita mátti að hún hefði karl föður sinn í vasanum. Þegar hann brá sér úr Róm, gerðist hún staðgeng- ill hans í Vatíkaninu. Þetta er einstætt fyrirbæri í saman- lagðri kristnisögunni: kona í hástól Péturs postula. Rauð- sokkur gætu með góðri sam- vizku gert Lucreziu að vernd- ardýrlingi sínum. H j úskaparsamningurinn milli Borgia og Este var undir- ritaður annan september 1501. Lucrezia hélt þann atburð há- tíðlegan með því að láta skjóta af kanónum á Engilsborg — og með gleðikonuhófinu sem fyrr var nefnt. Síðan fór hún að pakka niður fyrir ferðalagið til Ferrara. Skráin yfir eigur hennar væri ærið efni í stóra bók. Silfurborðbúnað átti hún að verðmæti yfir sjö milljónir króna, eðalsteina og skartgripi fyrir tuttugu og fjórar milljón- ir króna, feikna birgðir af dýr- asta silki, flaueli og brókaði, stafla af bjórum af hreysiketti, merði og safala, gimsteinum skreytta hatta svo þúsundum 8. tbi. VIKAN 39

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.