Vikan


Vikan - 27.05.1971, Side 3

Vikan - 27.05.1971, Side 3
21. tölublaS - 27. maí 1971 - 33. árgangur Vikan Hver verður næstur? Mannrán hafa veriö óhugnanlega tíð að undan- förnu. Sérstaklega verða sendiherrar erlendra ríkja fyrir barðinu á ræningjun- um. Á síðasta ári var 13 sendiherrum rænt. Það segir nánar frá mannránum í greininni „Hver verður næstur“ á blaðsíðu 14. Amerísk jómfrú Smásagan í þessu blaði er eftir kunnan bandarískan höfund, James McArdwell. Hún nefnist „Amerísk jómfrú“, og er þar lýst snilldarlega tilfinningum ógiftrar konu um fertugt sumarið, sem hún hafði írskan kaupamann í þjón- ustu sinni. Sjá blaðsíðu 12. Ugla sat á kvisti... Ný framhaldssaga hefst í þessu blaði. Hún heitir „Ugla sat á kvisti“ og er eftir Elsi Rydsjö. Þetta er nútíma ástarsaga og fjallar um hið eilífa vandamál hjónabandsins: framhjá- hald. Fyrsti hluti þessarar spennandi sögu er á blað- síðu 16—19. KÆRI LESANDI! Áhugi á dulrænum fyrirbær- um hefur löngum verið óvenju mikill hér á landi. Á hverju hausti koma út á jólamarkaði milli tiu og tuttugu bækur um dulræn fyrirbæri ýmiss konar, og oft verða einhverjar þeirra met- sölubækur. Þegar þetta er ritað dvelst hér brezkur miðill, og kom- ast færri en vilja á fundi hans. Og ekki alls fyrir löngu var háður kappræðufundur í sjónvarpinu, þar sem tveir læknar og einn huglæknir leiddu saman hesta sína. Þannig mætti lengi halda áfram að nefna dæmi um þann mikla áhuga okkar á dulrænum fyrirbærum. í þessu blaði birtist grein sem nefnist Hvað eru huglækningar? Hún er að mestu byggð á nýlegri grein eftir bandarísk hjón og seg- ir frá vaxandi áhuga Bandaríkja- manna á huglækningum. Enn- fremur er greint frá vísindalegri rannsókn, sem gerð hefur verið til þess að reyna að komast til botns i, hvað huglækningar eru. Huglæknirígar vekja fleiri iipurningar en hægt er að svara. Margir tortryggja fyrirbærið og telja það óskhyggju eina og hug- arburð. En þeim læknum fjölgar æ, sem eru þeirrar skoðunar, að hnglækningar séu ekld einióm vitleysa og finnst það ömaksins vert að rannsaka þær með vís- indalegum aðferðum. EFNISYFIRLIT GREINAR Bls. Hvað eru huglækningar? 8 Hver verður næstur? 14 Lúxuslíf með skemmtiferðaskipi, grein myndir: Clary og Anders Nyborg og 26 SÖGUR Amerísk jómfrú, smásaga eftir James Ardwell Mc- 12 Ugla sat á kvisti, ný framhaldssaga 16 Þar til dauðinn aðskilur, framhaldssaga, 3. hluti 10 Gullni pardusinn, sögulok 22 ÝMISLEGT Sumargetraun Vikunnar 6 Eldhús Vikunnar, umsjón Dröfn H. Farest- veit, húsmæðrakennari 28 Nærfatatízkan, myndaopna 24 FASTIR ÞÆTTIR Pósturinn 4 Simplicity-snið 23 Heyra má 32 Stjörnuspá 31 Myndasögur 35, 38, 42 Krossgáta 34 í næstu viku 50 FORSÍÐAN Hver vildi ekki óska þess, að hann mætti eyða sumarleyfi sinu á skemmtiferðaskipi og lifa því lúxuslífi, sem þar tíðkast? Dönsku hjónin Clary og Anders Nyborg segja frá slíkri ferð í máli og myndum í þessu blaði. Þau ferðuðust með stærsta og finasta skemmtiferðaskipi Vestur- Þjóðverja, Hamborg. Myndin á forsiðunni er af skipinu á siglingu. (Ljósmynd: Anders Nyborg). VIKAN Útgefandl: Hilmir hf. Ritstjóri: Gylfi Gröndal. Blaöamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur Edwald og Ómar Valdimarsson. ÚtUtsteikning: Sigurþór Jakobsson. Auglýsingastjórar: SigriBur Þorvaldsdóttir og Sigríður Ólafsdóttir. — Ritstjóm, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing: Skipholti 33. Símar: 35320 — 35323. PósthóH 533. VerS í lausa- sölu kr. 60,00. Áskriftarverö er 575 kr. fyrir 13 tölu- blöð ársfjórðimgslega eöa 1100 kr. fyrir 26 blöö misserislega. Áskriftargjaldið greiðist fyrirfram. Gjalddagar eru: nóvember, febrúar, maí og ágúst. 21. TBL. VIKAN 3

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.