Vikan


Vikan - 27.05.1971, Qupperneq 46

Vikan - 27.05.1971, Qupperneq 46
KÓRÓNA F. ★ Fætur framan, fætur aftan hjól, Teak, Palesander. Sófi 4. sæta, sófi 3. sæta, sófi 2. sæta. Stóll, lár. Áklæði eftir vali. Myndalistar með efnisprufum fyrirliggjandi. ★ v______________________________________________________y HÚSGAGNAVERZLUNIN AUÐBREKKU 59 að halda hanastélsboð, þegar seinni farþegar komu um borð. „Fyrri gestir“ fengu merki fé- lagsins við þetta tækifæri, en það er þríarma malta-kross úr silfri. Eftir fimm ferðir fá menn gullmerkið og kona, sem var að fara í sína elleftu sigl- ingu fékk hátíðlega afhent merkið skreytt demöntum. Einu sinni í viku fá karl- mennirnir sér hádegissnarl, og þá hittast þeir eins og þýzkra er siður, drekka bjór og segja tvíræðar sögur. Hver hátíðin tekur við af annarri, veizla skipstjórans, Kólumbusardans- leikurinn, Sjóræningjadans- leikurinn auk óformlegra skemmtana svo sem dansleikn- um til heiðurs áranna 1920— 30, vígslu sundlaugarinnar o. fl. Danskennsla, enskukennsla og skokk á þilfari, já, allt fylgir það með. Ef við þorum að líta á far- þegana í heild, sjáum við, að hér er afar lítið um börn og unglinga. Að vísu breytist tal- an eilítið, þegar Bandaríkja- mennirnir koma um borð í Flórída, en samt held ég að meðalaldurinn sé um sextugt og flestir eru feitlagnir. í klæðaburði eru farþegarnir frekar íhaldssamir og hér sér maður naumast bregða fyrir tízkutilhneigingum Norður- landaþjóða. Það eru allir álíka á þilfarinu. í hvítum frotté- baðsloppum með merki skipa- félagsins í rauðu á barminum og karabískt sólarlag á andlit- inu minnum við á taminn hóp hvítra fíla — eða eru það drykkirnir, sem valda ofsjón- um? Það er rétt að hrósa farþega- klefunum á þessu fljótandi hóteli. Hér er aðeins eitt far- rými — fyrsta — og farþeg- arnir geta ferðazt um allt skip- að. Aðeins stærð klefanna og lega þeirra ákveða verðmun- inn. íbúðirnar eru dýrastar, en í þeim er setustofa með tveim ferhyrntum gluggum og 22 þumlunga sjónvarpstæki, svefn- herbergi og baðherbergi með baði, tveim salernum og „bídet“. En jafnvel „ódýrustu" klefarni'r eru búnir sérbaði og sjónvarpstæki Þetta ódýrt er kannski svo- lítið villandi hugtak. Kolum- busarferðin kostar alls frá 9.000 til 16.000 danskra króna — síðari talan er fyrir íbúð. En menn geta ákveðið sinn gang á leiðinni. Það er hægt að forðast duttlungana á Bis- caya-flóanum og fara um borð í Las Palmas, eða stíga af skipi í Flórida. Eða haga sér eins og Bandaríkjamennirnir og sigla aðeins til Vestur- Indía. Skipafélagið viðurkennir, að ferðin sé dýrseld, en þó ekki um of. „Hamborg“ ein kostaði 120 milljónir vestur-þýzkra marka — eða næstum því Vi milljarð danskra króna. Og þar með hafa menn lagt rúmlega 400 þúsundir danskra króna í hvern farþegaklefa eða tæpa milljón í tveggja manna klefa. I ofanálag má telja kostnaðinn við 400 manna valda áhöfn — en þar eru aðeins þeir beztu nægilega góðir. Þrátt fyrir það, að farþegarnir séu allir mjög góðu vanir hafði enginn þeirra, sem við ræddum við neitt út á þjónustuna að setja — þvert á móti. Eins og einn Svíanna sagði: „Það er ekki hægt að fara inn á bað til að hnerra, án þess að manni sé réttur hreinn vasaklútur!“ Það eina neikvæða, sem við getum hengt okkur í eftir lang- varandi umhugsun er það, að það er þreytandi að finna ekk- ert, sem hægt er að kvarta und- an . . . . ☆ HVAÐ ERU HUGLÆKNINGAR? Framhald af hls. 9. stöðu til að fylgja rannsóknun- um nógu vel eftir; sex tilfelli hafi þó borið jákvæðan árang- ur, enda þótt þau hafi ekki ver- ið talin hafa fullt sannanagildi. 46 VIKAN 21.TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.