Vikan - 27.05.1971, Blaðsíða 4
P0STURINN
Heimilisvandamál
Elsku Póstur!
Ég þakka þér fyrir allt gamalt
og gott, ég veit ekki hvernig
færi fyrir Vikunni ef þú værir
ekki fastur liður (eins og venju-
lega).
Jæja, það er víst bezt að snúa
sér að efninu. Ég er í alveg
hryllilegum vanda. Svo er mál
með vexti að ég er 15 ára (að
verða 16) og fæ aldrei að vera
úti nema til kl. 10. Ef ég er
ekki komin inn þá, er húsinu
læst. Ég á náttúrlega lykil að
útidyrunum en þau læsa alltaf
millihurðinni og þá verð ég að
banka og banka alveg vitlaust
og botnlaust.
Og svo er annað: Hún mamma
er nýgift, ef svo mætti segja,
og karlhelv . . . er svo illa við
mig að það nær ekki nokkurri
átt. Svo spilar hann svo í
mömmu að ég get ekki einu
sinni hugsað til þess.
I fyrrakvöld var ball hér og ég
var í partý og þegar mesta
fjörið var frétti ég að lögreglan
væri að leita að mér um allt.
En þá var mér allri lokið. Ég
sko þoli þetta ekki lengur. Ég
hef tvisvar verið slegin.
Elsku hjartans Póstur minn,
gefðu mér ráð. Þótt þér berist
mörg bréf þá bið ég þig að
Svara mér og veita mér ráð. Og
þó þetta sé fyrsta bréfið mitt,
þá verSurðu að geta svarað
þessu. Svo að lokum langar mig
að spyrja þig hvort Sigurjón í
Ævintýri sé trúlofaður?
Vertu svo ævinlega margbless-
aður og sæll.
Ein sem þolir
þetta ekki lengur.
Það er ekki óalgengt aS stjúp-
feður láti (stjúp)börn sín fara í
taugarnar á sér og oft er ástæð-
an dulin afbrýðisemi. En það
bezta sem við getum ráðlagt
þér er að reyna að ræða þetta
mál við móður þína og stjúp-
föður þó víð gerum okkur fulla
qrein fyrir að fólk á þínum aldri
á oft erfitt með að tala í ein-
læqni við sér eldra fólk og þá
öfugt líka. Annars skaltu fara í
einhvern sem þú treystir vel,
kennara, prest, etc. og reyna að
komast að samkomulagi eftir
þeim leiðum. En það er vandi
að vera til og á þessum aldri er
maður baldinn og ögrandi; þess
vegna hefur þú — að öllum lík-
indum — verið slegin. Reyndu
að setja þig í þeirra spor og að
fá þau til að setja sig í þín: út
úr því ætti eitthvað jákvætt að
fást.
Sigurjón er ólofaður.
Póstur, Póstur,
herm þú mér...
Kæri Póstur!
Ég hef alltaf ætlað að skrifa þér,
en aldrei hefur neitt orðið úr
því fyrr en nú. Þannig er, að
ég er alvelg að sálast úr ást til
stráks sem ég var með fyrir
tveimur árum síðan. Vinkona
mín var með honum núna fyrir
stuttu og við vorum oft í partý
heima hjá honum þegar vinkona
mín var með honum. Ég varð
alltaf svo aumingjaleg þegar
hann sagði eitthvað við mig og
eldroðnaði þar að auki niður í
tær. En getur þú nú, Póstur
góður, sagt mér hvernig ég á
að ná í hann. Og enga útúr-
snúninga.
Astfangin KM.
Nú á timum rauðra sokka og
kvenréttinda ættir þú að fara
nákvæmlega eins að og strákar
hafa farið að við þig: Reyndu
við hann. En ef þú leggur ekki
í svoleiðis, skaltu reyna að
töfra hann á einhvern hátt, til
dæmis með því að láta í Ijósi
aðdáun þina á honum — í hófi
þó, því annars er hætt við að
hann missi allan áhuga á þér
og megi ekki sjá þig án þess að
fá í magann.
Jesus Christ -
Superstar
Hæ, Póstur minn!
Þakka allt gamalt og gott sem
frá ykkur Vikunnar mönnum
kemur og hefur komið. Sérstak-
lega þakka ég Ómari Vald. fyrir
hans góða þátt ,,Heyra má".
Jæja, mitt mál er nú ekki stórt,
en ég vona samt innilega að
þið svarið fljótt og vel. í rokk-
óperunni „Jesus Christ — Super-
star" er Júdas Iskaríot sunginn
af söngvara sem heitir Murray
Head, eða er það ekki rétt? Nú
langar mig að vita eitthvað um
þennan Murray. Hefur hann
ekki leikið í kvikmynd? Hvaða
mynd var það? Hvar og hve-
4 VIKAN 21. TBL.