Vikan


Vikan - 27.05.1971, Side 39

Vikan - 27.05.1971, Side 39
hugsaiM hún, er ekki fýldui1 eða önuglyndur, hann virðist aðeins dapur og hefur alltaf verið það, síðan þessi flæking- ur var á ferðinni. En áður var Kevin hamingjusamur. Kann- ske verður hann hamingjusam- ur aftur. Hún hætti að sti-okka og rií'jaði upp fyrir sér orð hans, þegar hann glotti feimn- islega til hennar fyrsta daginn: ..Heimili mitt er í hjarta minu, og þangað sem það fer, fer ég lika." Hún - kinkaði kolli og beindi nláli sínu að strokkn- um: ,,Og hvar er hjarta þitt nú, Kevin? Þefar það upp í vindinn eins og innilokuð vera, sem nemur angan strætanna í New Orleans, furanna í Kletta- fjöllum. eyðimarka Kalifoi'níu eða ef til ví 11 kiyddilm kara- bís-ku eyjanna, sem þú talaðir um? H.vernig er frelsið? Þekk- ir nokkuð ,af okkur, þessu „borgaralega" fólki, þá tilfinn- ingu? Flækingurinn þekkir frelsið og næturgalinn minn líka. Við öll hin erum læst inni í búrum okkar, sem mynd- uð eru úr velsæmi, öryggi, feimni og uppeldi. Spelkur cru festar við vængi okkar, og við svngjum aldrei." Þegai' Abbie hafði tekið þessa ákvörðun, flýtti hún sér inn i húsið, áður en hún skipti um’ skoðun. Hún hljóp upp á loft, klæddist nýja kjólnum sinum, greiddi úr hárinu og batl um það gula klútntim. Niðri i stássstofunni dró hún út kommóðuskúffu og náði í krumpað og velkt umslag. Hún taldi peningana úr því og stakk vænum skammti af þeim í svuntuvasa sinn. Úti teiknaði siðdegissólin tuttugu feta langan skugga af henni. Hann stikaði stórum á undan henni og var kominn að hlöóunni, löngu áður en hún náði þangað sjálf. Abbie barði fast að dyrum og kallaði: „Kevin, Kevin, hvar ertu?" Hann kom út úr hlöðunni og var að þurrka sér um hend- urnar á slrigapoka „Já, ung- frú," sagöi hann og bar hönd fyrir augu. Abbie bikaði og valdi orðin af nákvæmni. „Eg var að hugsa um það, sem þú varst að tala um í gærkveldi, að þig languöi að breytu til. Nú hef- ur mér boðizt annar kaupamaö- ur og mig langar til að hann byrji sern allra fyrst.“ Hún dró peningana upp úr svuntuvasan- um. „Hérna er kaupið þitt og einnar viku kaup aö auki, sem mér fannst þú yrðir að fá. vegna þess að þú heíur ekki haft tímg til að líta í kring- um þig eftir annarri vinnu. Svo er líka dálítil viðbót." Hún rétti peningana að hon- um, en hann íór að andmæla. „Nei, nei, taktu við þeim, þetta hei'ur verið gott sumar, hvað uppskeruna snertir . . . og allt. Það er sanngjarnt að ég láti þig njóta þess." Hún sneri sér undan. „Þetta hjálpar þér til að komast til þessa staðar í Karabíahafinu, þangað sem þig langaði svo mikið til að fara." „Þetta er ekki nauðsynlegt, ungfrú Abbie," sagði hann. „ég get ekki tekið við þessu." „Hvers vegna ekki? Þú hef- ur unnið fyrir peningunum." Hún var andstutt. „Ég borga vinnumönnum mínum alltaf dálítinn „bónus", ef ég get, og þetta hefur verið gott ár.“ Og við sjálfa sig sagði hún þann- ig að aðeins hugur hennar og hjarta gátu heyrt það: „Bezta árið af þeim ölium." Kevin sá, að henni varð ekki haggað. Hann stakk peningun- um í vasann á vinnugallanum sinum án þess að líta á þá. „Hvenær byrjar nýi maður- inn?" spurði hann rólega. „í fyrramálið," laug hún, „svo að bezt væri, að þú fær- ir af bænum í kvöld, ef þú getur. Eins fljótt og hægt er.“ Hann horfði á hana, síðan á húsið og loks á ávaxtagarðinn. Ekkert varð lesið úr augum hans. „Þarftu að láta mig gera eitthvað áður en ég fer?" „Nei, það held ég ekki." Hún fann tárin svíða að baki augn- anna, og sorgin sat eins og stór, þurr kökkur í hálsinum. Gegnum þykkan vegg dapur- leika heyrði Abbie sína eigin rödd segja: „Vertu sæll, Kev- in,“ og hún skammaðist sín, þegar hún hljóp, hrasandi eins og blindingi í áttina að húsinu. Hún fór inn og þrýsti bak- inu fast upp að hurðinni, þeg- ar hún heyrði marrið í hlöðu- dyrunum hálftíma seinna. Þá heyrði hún rólegt fótatak Kev- ins í rökkrinu fyrir utan. Hann barði á lokaðar dyrnar. „Ungfrú, Abbie." Rödd hans var mjúk eins og í fugli á júnídegi. „Ungfrú Abbie," kallaði hann aftur og það var eins og férskur vestanblær strykist um andlit hennar, blær, ilmandi af hunangi og smára og júliregni, s°m strykist yfir skrælnaða jörð, sem grátbændi um vökv- un. Abbie stóð kyrr i sömu spor- um, þögul uppi við hurðina með lokuð augu. Afakiukkan sló eitt högg og lét þannig ein i ljósi vanþóknun sina, en hélt síðan áfram að tifa. Hún heyrði. að Kevin skipti um hönd á slitnu töskunni sinni. „Vertu sæl, Abbie, vertu sæl.“ Hún heyrði rödd hans, i þetta skipti var það hást kvísl, sem barst til hennar gegnum hurðina. Hún gat ekki svarað, tárin vörnuðu henni máls. siðan fjarlægðist fótatak hans, unz það sameinaðist þögn næt- urskugganna. Nokkrum andartökum seinna stóð hún við herbergisglugg- ann sinn og heyrði það. í fyrstu hikandi leit að tónum, en síðan kom tónlistin, full- þroskuð, blómstrandi eins og gullin draumsóley, sem lýkst upp fyrir sólinni. Frjálst og fagnandi lag var blístrað, og blíður kvöldblærinn bar það til hennar. Þetta var lag um fjallgöngu á tindum mánans, líf í haustlitum dölum guðs og sund í hlýju, svörtu stjarn- djúpinu. „Nú hlýtur Kevin að vera að fara yfir brúna á læknum. Ef ég hleyp, næ ég honum, áð- ur en hann kemst út á þjóð- veginn," sagði Abbie við kirsu- berjatréð. „Nú hlýtur hann að vera að fara framhjá eikunum, ef ég stytti mér leið . . .“ „Nú er hann næstum kom- inn út á þjóðveginn, það er ekki of seint, Abigail, það er ekki of seint. Ó, farðu, Abi- gail, ó, farðu," kallaði hún. Söngurinn hljóðnaði, þangað til hún vissi ekki, hvort hún heyrði hann með eyrunum eða ímynduninni. Brátt hljóðnaði hann alveg, hann var farinn ... Söngur hans er hljómlist Töfrapíparans, hugsaði hún. Hún greinir frá töfrum ljóm- andi staða, og ég er fatlaði drengurinn, sem gat ekki fylgzt með og var skilinn eftir. Abbie hallaði sér áfram. „Kev- in,“ hvíslaði hún að trénu. „Mig langar að fara með þér, mig langar að fara með þér.“ Síðan hærra: „Kevin, ég er orðin 39 ára. ó, enn get ég fætt þér börn. Ég myndi elska þig svo heitt. Ég elska þig svo heitt.“ „Kevin, Kevin," æpti hún, „taktu mig með þér, hvert sem þú ferð . . . Kevin . . .“ Nú var hún farin að snökkta. Hún var að drukkna í öldum sárra tilfinninga, sem streymdu fram úr djúpum, ókyrrum lindum sálar hcnnar. Brátt sagði hún: „Vertu sæll Kevin rninn." Þetta voru Ennþá á ég eftir að koma þér á óvart! blessunarorðin, sem hún sökkti undir yfirborð örvæntingarhafs- ins. Abbie var að búa sig í hátt- inn og hafði þegar slökkt ljós- in, þegar hún heyrði i nætur- galanum. Blíður og ljúfur var söngur hans. Hann hafði grip- ið stjörnu í nefið og lagði hana á altari mánans. Tónarnir svifu yfir ávaxtatrén, yfir kirkju- turninn, hærra en fjöllin, hærra en himinninn, tónar, sem glitruðu, þyrluðust og sveifluðust eins og haustlauf á engjum himinsins. Aldrei hafði fuglinn kvakað eins dill- andi, skýrt og fallega eða eins lengi í einu. Hún hugsaði, að það væri eins og næturgalinn yrði að koma henni og ávaxta- garðinum í skilning um, hvers vegna hann flygi um loftið. Fuglinn lyfti sér yfir trén. Nú gat hún séð hann, ofurlítinn depil, sem dansaði næturball- ett á andliti risavaxins haust- mánans. Síðan sveif hann í burtu. Söngurinn dvínaði smátt og smátt. Skrítinn tunglsgeisli brauzt i gegnum greinar kirsuberja- trésins og gægðist inn um gluggann til Abbiear. Hún var að ljúka bænum sínum . . .' „og, Drottinn, vaktu yfir fugl- inum mínum og Kevin mínúm, hvert sem þá ber. Gerðu leið þeirra greiða og gefðu þeim báðum frjálsa og glaða lund. Amen.“ Utan við gluggann hennar fór vindurinn i eltingarleik við þurr blöðin, sem fallið höfðu af vínviðnum, sem vafðist um laufskálann. Hún skalf og sagði við sjálfa sig: „Haustið kemur. bráðum.“ Rétt áður en svefninn sigr- aði Abbie, heyrði hún blístur í lest, langt í burtu eins og ánægjuóp konu og fannst hún heyra næturgalann í fjarska syngja mansöng sinn til mán- ans. Anna Maria Þórisdóttir þýddi. 21. TBL. VIKAN 39

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.