Vikan - 27.05.1971, Síða 28
Réttir
iii* m|ólk
Mjólk hefur skipað háan
sess hérlendis í mats-
eldinni. Það er mikið
eldað úr mjólkinni, s. s.
ýmiss konar spónamatur.
Erlendis eru húsmæður
verðlaunaðar fyrir að
koma með nýja retti úr
mjólk og mjólkurvörum.
Hér fara á eftir verð-
launaréttir frá norskum
húsmæðrum, og væri
skemmtilegt að reyna
nokkra þeirra.
SAGÖKREM
1 Itr mjólk
1 dl sagógrjón
2 eggjarauður
V2 dl sykur
3— 4 möndludropar
2 eggjahvítur
Suðan látin koma upp á mjólk-
inni. Sagógrjónunum stráð út á
og sjóðið í graut. Eggjarauður
og sykur þeytt vel. Hellið sam-
an við grautinn sem síðan er
aftur settur á hita til að þykkna.
Hrærið í allan tímann. Kælið
grautinn alveg. Rétt áður en
borið er fram eru stífþeyttar
eggjahvíturnar skornar í, þannig
að ábætisrétturinn verður eins
og kremkenndur. Berið fram í
ábætisskálum með rifnu súkku-
laði eða berið fram í glerskál
með frosnum eða niðursoðnum
jarðarberjum.
SKYRÁBÆTIR
V4 Itr úthrært skyr
V4 Itr rjómi
4— 5 msk. sykur
2 tsk. vanillusykur
1 dl rúsínur
V2 dl gróft saxaðar möndlur
Stífþeytið rjómann með sykrin-
um. Skyrinu bætt útí og bland-
að vel saman. Því næst er rús-
ínum bætt í, möndlum og van-
illusykri. Látið bíða I ca. 3—4
tíma þannig að rúsínur og
möndlur hafi náð að gefa gott
bragð.
SÚRMJÖLKUR-
ÁBÆTIR
% Itr súrmjólk
ca. 70 gr sykur
2 eggjarauður
örl. sítrónusafi
% Itr rjómi
50 gr möndlur
e. t. v. jarðarber
Eggjarauður og sykur þeytt
mjög vel. Bragðað til með ör-
litlum sítrónusafa. Kaldri súr-
mjólkinni hrært smátt og smátt
útí. Sett í kæliskáp og borið
fram með þeyttum rjóma, skreytt
með möndlum og niðursoðnum
jarðarberjum.
DIPLOMATAÁBÆTIR
V2 Itr mjólk
7 bl. matarlím
150 gr sykur
50—100 gr súkkat
50—100 gr rúsínur
V4 Itr rjómi
1 dl romm (eða rommessens)
Látið suðuna koma upp á
mjólkinni, sykrinum og rúsínun-
um. Súkkatið skorið í litla bita
og sett útf mjólkina. Matarlímið
sem áður hefur legið í bleyti í
köldu vatni er sett útí heita
mjólkina og látið leysast þar
upp. Að síðustu er stífþeyttum
rjómanum og romminu bætt útí.
Skolið form úr köldu vatni og
setjið ábætinn í formið. Síðan
er forminu hvolft þegar ábætir-
inn er orðinn stífur.
ÖMMUPARTAR
1 V4 kg hveiti
250 gr sykur
1 tsk. kardemommur (eða kan-
e 11)
2V2 tsk. hjartarsalt
V2 Itr súrmjólk
125 gr smjörlíki
Smjörlíkið brætt. Hveiti, sykri,
kardemommum, hjartarsalti og
súrmjólk bætt í. Hnoðið allt
saman. Fletjið út í ca. V2 cm
þykka köku og skerið út í stóra
parta, t. d. 5x9 cm. Bakið við
ca. 200° í um það bil 15-20
mínútur.
Kvíarkökur.
SÚRMJÖLKUR-
HRINGIR
500 gr smjörlíki
500 gr hveiti
2 dl súrmjólk
Smjörlíkið mulið í hveitið. —
Blandið síðan mjólkinni saman
við. Hnoðið saman og látið
bíða á köldum stað. Fletjið ekki
of þunnt út, og takið út eins og
hringi (líkt og kleinuhringir). —
Penslið með eggjahvítu og strá-
ið sykri yfir. Bakið Ijósbrúna.
Geymast mjög vei.
KVÍARKÖKUR
V2 Itr mjólk
1 tsk. salt
V2 tsk. natron
250 gr hveiti
Öllu hrært saman. Steikt á
pönnu og kökurnar hafðar á
stærð við undirskál. Steikt á
báðum hliðum. Síðan má smyrja
þær með smjöri eða strá á þær
sykri.
DOKTORSSÚPA
1 Itr mjólk
2 egg
1 msk. sykur
1 msk. kartöflumjöl
1 tsk. vanillusykur
Egg, sykur, vanillusykur og kart-
öflumjöl hrært saman í skál.
Sjóðandi mjólkinni hrært smátt
og smátt útí. Hrærið vel í allan
tímann. Berið fram með jarðar-
berja- eða hindberjamauki á
hverjum diski.
ÍR
KÍMIICSKA
UJIIHSIM
EGG Á KÍNVERSKA
VÍSU
Þennan rétt tekur um það bil
5 mínútur að útbúa en 3 tíma
að sjóða og V2 til 1 klst. að
kæla. Kínversk egg má bera
fram heit eða köld en flysjið
þau rétt áður en þau eru bor-
in fram.
6 egg
1 msk. kínverskt te
V4 msk. salt
Hýði af 1 mandarínu eða
V4 appelsínu
Eggin sett í pott með svo miklu
vatni að það aðeins fljóti yfir.
Sjóðið í 1 klst. Köldu vatni
hellt yfir eggin og þau látin
kólna. Brjótið skurnið á eggjun-
um en takið það ekki af. Eggin
sett aftur í pottinn og nýju
vatni hellt á. Suðan látin koma
upp og bætið -teinu á, salti og
appelsínuhýði. Sjóðið í 2 tíma
við vægan hita. Setjið pottinn
til hliðar og látið eggin vera f
vatninu þar til þau eru borin
fram.
eldhús
vikunnar
28 VIKAN 21.TBL.