Vikan - 27.05.1971, Blaðsíða 45
I
Notið
INNOXA
Sérfræðingar hjá JNNOXA eru sífellt að leita að
nýjungum, sem gætu aukið sjálfstraust og vellíðan allra kvenna.
Þetta hefur ávallt sett INNOXA vörur feti framar
í gæðum. Ein þessara nýjunga er AMALENE.
Amalene er jurtaefni, — sérstakt rakaefni fyrir húðina.
Amalene er aðeins í INNOXA vörum.
Það er ekki éinungis Amalene, sem gerir INNOXA snyrtivörur
eftirsóknarverðar. INNOXA er gætt þeim eiginleikum, að konur
sem nota INNOXA njóta lífsins. Betri meðmæli eru ekki til.
Clean Face: Krem í stað sápu.
Tender touch: Græðandi næringarkrem.
Tissue Cream: Kælandi krem fyrir þurra húð.
Skin Balm: Varnarkrem gegn veðri og vindum.
One & All: Mýkjandi handáburður.
Kynnist úrvalinu hjá INNOXA.
INNOXA
Eykur yndisþokkann.
ekki betur, en sé einstæS iH
sinni röð. Richard Wiinch, for-1
stjóri stöðvarinnar og kynnir-
inn, rússnesk-austuríska söng-
og skemmtistjarnan Sonja
Michael senda út skemmtiefni
á sérstakri rás tvisvar á dag.
Þar er rætt við áhugaverða
menn í áhöfninni og farþega.
Talað um skemmtidagskrá
dagsins og fluttar fréttir og
tilkynningar. Á kvöldin er
einnig sýnd sjónvarpskvik-
mynd. Þessi sjónvarpsstöð er
tengd sjónvarpstækjum þeim,
sem eru í hverjum farþega-
klefa.
Og svo skulum við að lok-
um minna á Hansa-leikhúsið,
sem er kvikmyndahús með
leiksviði, sem getur rúmað 290
manns í sæti. Það er notað til
margs. Fyrir hádegi er 400
manna áhöfn tilkynnt þar um
dagsverkin — m. a. fer yfir-
brytinn Gunther Stein yfir 200
rétti matseðilsins með 52 mat-
sveinum skipsins.
Eftir matinn er sýnd kvik-
mynd. Við horfðum t. d. á Don
Camillo og Easy Rider, meðan
við vorum um borð. Á kvöld-
in er þar skemmtidagskrá,
hljómleikar o. s. frv. Á meðan
við vorum um borð kom m. a.
Peter Kreuder fram með sín
þekktu og velmetnu píanóverk
og Marvelli, töframaðurinn
þekkti lék á okkur með listum
sínum.
Hver einasti salur er búinn
smekkvíslega. Teppin eru þykk,
veggirnir fagurlega skreyttir,
sætin þægileg — allt bendir
frekar á Hilton-hótel en skip,
svo að við liggur að maður
gleymi því, hvar verið er.
Manner, prófessor og arkitekt
frá Múnchen sá um þessa
áhrifaríku skreytingu.
Á útiþilförunum er mikið af
mjúkum, skrautlegum þilfars-
stólum, en þar er einnig unnt
að fara í þilfarsleiki og íþrótt-
ir. Það er til æfingarbraut fyr-
ir golfleikara og þeir, sem eru
áhugamenn um skotkeppni
geta æft sig á afturþilfarinu
daglega.
Ef einhver hefur áhuga er
séð um skák- bridge- og spila-
keppni og margir hafa áhuga
á Bingo-spilinu, þar sem há
peningaverðlaun eru í boði.
Það þarf enginn heldur að
sakna morgunblaðsins. Á hverj-
um morgni fá farþegar ný-
prentað eintak af Hamburger
Abendblatt og þar er hægt að
fá nýjustu alþjóðlegar fréttir
auk — svona svo að fólk viti,
hvað því líður vel — veður-
frétta í Mið-Evrópu. Blaðið les
maður svo rólega, þangað til
að morgunmaturinn kemur.
Hann er nefnilega borinn inn
í klefana, eða snæddur í veit-
ingahúsum, já eða við sund-
laugina á Lido-þilfarinu. í
morgunsárið borða menn ný-
bakað brauð með alls konar
áleggi og nokkra heita rétti.
Það veitir ekki af að bæta á
sig!
Sagt er að hafloftið verki
örvandi á matarlystina og
sannleikurinn er sá, að klukk-
an hálfellefu fá þeir hungruðu
á þilfarinu heitt kjötseyði og
snittur. Hádegisverðinn er bæði
hægt að snæða á veitingahús-
unum og í snarlstofunni við
sundlaugina og ef menn fara
eftir matseðlinum fá þeir
svona fjögurra eða fimm rétta
fyrsta flokks máltíð. En þá er
líka sárasta sultinum svalað og
kl. 4 kemur kaffið með alls
konar þurrum, blautum og
rjómaskreyttum kökum. Þetta
er svona rétt til að minna
okkur á kvöldverðinn, þar
sem humar og kavíar eru
hversdagsréttir, og því neitum
við þriðja bitanum af rjóma-
tertunni. Eða er það kannski
áhyggjurnar, sem leita á okk-
ur, þegar við stígum á vogina?
Ekki má heldur gleyma þeim
mildu, en samt hitaeininga-
ríku drykkjum, sem renna of-
an í innyfli okkar við alls kon-
ar tækifæri. Ef farþegi á af-
mæli, meðan á ferðalaginu
stendur, fær hann ekki að
halda upp á það einn. Hátíðar-
höldin hefjast kvöldið áður,
rétt um það bil sem miðnætti
nálgast. Þeir listamannanna,
sem eru nálægir hópast saman
og á mínútunni tólf syngja
þeir „Hann á afmæli í dag“.
Afmælisbarnið verður þess svo
vart afmælisdaginn sjálfan, að
helft allra um borð hafa ein-
hvern veginn komizt að þessu
og honum er óskað til ham-
ingju á báða bóga. Við hádeg-
isverðinn eru leikin þjóðlög
frá heimalandi hans og bryt-
inn kemur með risastóra af-
mælistertu, þar sem afmælis-
óskir eru skrifaðar með súkku-
laðistöfum. Auk þess kemur
vitanlega ískalt, freyðandi
kampavín . . .
Síðast en ekki sízt er kalda
borðið kl. II um kvöld. Síld,
rækjur, steik og kalkúni valda
því, að maður verður einhvern
veginn ósjálfrátt glorhungrað-
ur aftur!
Já, það er gnótt boða, dans-
leikja og skemmtikvölda. Það
var strax gripið tækifærið til
21.TBL. VIKAN 45