Vikan - 17.06.1971, Qupperneq 21
Bandaríska loftfarið „Los Angeles". ÞaS var smíðaS samkvæmt þýzkum teikningum.
eins og risabuxur. Leiðsögu-
maður farþeganna forðaðist að
geta þess, að þessir gasklefar
höfðu inni að halda 7 milljón
kúbikfet af hydrogen, léttasta
gasi sem þekkist og jafnframt
öflugasta við sprengingu. —
Bandarísk loftskip notuðu hel-
íum, sem ekki var alveg eins
öflugt til lyftingar flugfarsins,
en heldur ekki eldfimt. Þjóð-
verjar áttu ekkert helíum.
Myrkir skuggar styrjaldarinn-
ar voru þegar teknir að þétt-
ast, og Ameríkumenn voru því
ófúsir að hjálpa væntanlegum
óvinum sínum um fágæt hern-
aðarleg efni.
Teiknarar Hindenburgs skildu
hættuna mætavel. Eins konar
reykháfur leiddi það hydrogen,
sem út kynni að síast, út úr
flugfarinu. Sjá mátti eftirlits-
menn í tölulausum asbestföt-
um, með flókasólaða skó á fót-
um, athuga þessa reykháfa
mjög vandlega. Þeir athuguðu
líka gasklefana með engu
minni nákvæmni.
Þegar gengið var aftur í flug-
farið, framhjá íbúðum yfir-
mannanna, kom maður ístjórn-
klefann. Veggir hans voru úr
gleri. Hann var rúmgóður og
minnti að mörgu leyti á stjórn-
pall á skipi.
Það þurfti aðeins tvo menn
til að stjórna loftfari. Stýri-
maðurinn, sem snert fram, hélt
því á réttri braut með hinu
tröllaukna stýrishjóli sínu.
Lyftumaðurinn sneri andlitinu
til hliðar og fylgdist með halla-
mæli og hæðarmæli — til þess
að halda því í réttri hæð.
Fyrir aftan stjórnklefann var
svo farþegarýmið. Á Hinden-
burg voru tvö þilför. Á A-þil-
farinu var farþegunum ætlað
rúm til skemmtigöngu. Þar
voru á báðar hliðar breiðir,
skásettir gluggar, jafnframt
setustofa og borðsalur. Frá A-
þilfarinu lá mjór gangur til
hinna 25 farþegaklefa. í hverj-
um klefa voru tvær svefnkoj-
ur, hægindastóll, sundlaug, bað
ker, spegill og rafljós.
Barinn var lokaður með tvö-
faldri hurð, sem þjónn lauk
upp, þegar maður hringdi
bjöllu. Þar var loftþrýstingn-
um haldið lítið eitt hærri en
annars staðar í farinu, svo að
ekki væri hugsanlegt, að nokk-
ur minnsta hydrogen-gufa gæti
síazt þangað inn.
Framháld á bls. 48.
Bygging loftfars var hreinasta völundarsmíð. Járngrindin minnti á hvelfingu í dómkirkju. Hér er frægasta loftfar Breta, R-100, í smíðum.