Vikan - 13.07.1972, Qupperneq 5
M1ÐAPRENTUN
Skriftin er of slæm til aS nokkuð
sé úr henni lesandi, og ekki er
heldur hægt að hrósa stafsetn-
ingunni.
Fingralangur
Kæri Póstur!
Ég hef aldrei skrifað þér áður
en læt nú verða af því. Þannig
er mál með vexti að ég var með
strák um daginn á balli, en ég
var búin að vera hrifin af „hon-
um" lengi. Ég dansaði allt
kvöldið við „hann". Eftir ballið
fórum við að ganga og „hann"
gerðist anzi fingralangur, ég
var feimin og vildi ekki leyfa
„honum" það. Næst þegar ég
hitti „hann", heilsaði hann mér
bara. Og nú er „hann" farinn
út á sjó. „Hann" er sextán ára
og ég líka. Ég tek það fram að
við erum bæði svolítið feimin.
Elsku Póstur, hvað á ég að gera
til að ná í hann?
Ein í vanda.
P.S. Hvernig er skriftin og hvað
lestu úr henni? Og hvernig er
stafsetningin?
„Hann" er feiminn, segirðu, og
trúlega hefur þetta oftast hör-
undsára karlmannsstolt hans
orðið fyrir hnekki þegar þú
varst ekki nógu eftirlát við
hann að hans dómi. Vertu bara
hress og vinsamleg við hann,
þegar þú hittir hann næst, og
láttu sem ekkert hafi í skorizt.
Þá ætti þetta að jafna sig, svo
fremi að hann sé eitthvað hrif-
inn af þér. Og fyrir alla muni,
farðu ekki að leyfa honum
„það" bara til þess að krækja í
hann. Það dygði áreiðanlega
skammt ef það kæmi á daginn
að hann væri lítið eða ekkert
skotinn i þér.
Skriftin er skýr og lagleg, það
má lesa úr henni reglusemi og
skapstyrk. En í stafsetningu
mætti þér fara fram.
Og ennþá eru það
stjörnumerkin
Kæri Póstur!
Eftir því sem mér hefur skilist
þá ert þú svoddan stjörnuspek-
ingur og ætla ég þessvegna að
spyrja þig svolítið um stjörnu-
merkin. Hvernig fara Hrúturinn
og Hrúturinn saman, og Hrútur-
inn og Sporðdrekinn og Hrútur-
inn og Steingeitin og Hrúturinn
og Vatnsberinn og Hrúturinn og
Ljónið og Sporðdrekinn og Stein-
geitin og Sporðdrekinn og Vatns-
berinn og Sporðdrekinn og
Ljónið og Steingeitin og Vatns-
berinn og Steingeitin og Ljónið
og Vatnsberinn og Ljónið.
Jæja, þá er summan komin og
ég þakka þér innilega fyrir, ef
bréfið fer ekki í ruslafötuna.
A.S.K.E.B.
P.S.
Hvað lestu úr skriftinni?
.------------A_. ^
Tveir hrútar eiga yfirleitt vel
saman, en þó er viss hætta á
að athafnaþörf sú og metnað-
ur, er þessu merki fylgir, gangi
út í öfgar þegar tveir einstakl-
ingar úr þvi leggja saman. Hrút-
ur og Sporðdreki eru báðir á-
gengir og lenda því gjarnan í
árekstrum, en geta þó stundum
unnið saman og náð góðum ár-
angri sem félagar, en miklir
kærleikar eða ástir takast sjald-
an á milli þeirra. Hrúturinn er
blóðheitur, Steingeitin kaldrifj-
uð; þau fá yfirleitt ósjálfrátt and-
úð hvort á öðru. Hrútur og Vatns
beri eiga hinsvegar ágætlega
saman, Hrútur og Ljón sömuleið-
is. Sporðdreki og Steingeit geta
náð góðum árangri saman, ef
þau gæta þess að keppa ekki
innbyrðis um metorð og virð-
ingu. Sporðdreki og Vatnsberi
eiga erfitt með að láta sér lynda
saman, og eru mjög gjarnir á
að espa hvor annan upp. Sporð-
dreki og Ljón eru fljót að fara í
hár saman. Steingeit og Vatns-
beri eiga ágætlega saman, og
Steingeit og Ljón eiga einnig að
geta náð góðum árangri í félagi.
Vatnsberi og Ljón eru mjög
gjörn á að lenda í deilum, en
ef Vatnsberinn sættir sig við yfir
ráð Ljónsins á þetta að geta tek-
ist.
Skriftin bendir til þess að þú
sért talsvert tápmikil og fram-
sækin.
Takið upp hina nýju aðferð og látiö prenta
alls konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, til-
kynningar, kvittanir o.fl. á rúllupappír. Höf-
um fyrirliggjandi og útvegum með stuttum
fyrirvara ýmis konar afgreiðslubox.
LEITIÐ UPPLYSINGA
HILNIH hf
Skipholti 33 - Sími 35320
28. TBL. VIKAN 5