Vikan

Eksemplar

Vikan - 11.01.1973, Side 20

Vikan - 11.01.1973, Side 20
FRAMHALDSSAGA EFTIR FRED MUSTARD STEWART 4. HLUTI En þegar hún lá i rúmi sínu, andvaka á hverri nóttu og horfði á hylkið, þar sem maður hennar lá, eins og steik i frystikistu, f annst henni allt snúast í höfðinu....... Laföi Kitty opnaöi dyrnar og lyfti undrandi brúnum. — Jæja, sagöi hún hægt, — svo þég hafiö skipt um skoðun? Bill brosti. — Mér er kannski þörf á aö vikka sjöndeildarhring minn, þegar á allt er litið. — Það er prýðilegt, ég er einmitt i ágætisskapi til að hugsa um víðáttumikinn sjóndeildarhring Gjörið svo vel að ganga inn. Húh hélt dyrunum opnum. — En ef satt skal segja, þá er ég alveg uppgefin á að skrifa öll þessi boðskort fyrir afmælis- veizluna rnina eftir nokkrar vikur. Það á að verða grimudans- leikur, regluleg svallveizla og ég býð öllum sem ég þekki, já lika mörgum, sem ég þekki ekki neitt . . . . Ég vona að ég geti átt von á yður lika. — Með mestu ánægju. — Hvað viljið þér drekka. Martini er sérstaklega hressandi fyrir sálina. — Þakka yður fyrir, ég vil gjarnan Martini. Meðan hún blandaði drykkinn horfði Bill i kringum sig. Þetta var jafn glæsileg ibúð og sú sem Brandywinhjónin höfðu, full af gömlum húsgögnum og dýrgripum. Eini munurinn var að á öllum borðum, kommóðum og hillum voru myndir af frúnni sjálfri i mismunandi hlutverkum frá yngri árum, allar i silfur- römmum. — Hvað finnst yður um mynda- safnið mitt? spurði hún og virti sjálfa sig fyrir sér i stórum spegli. Ég er reglulegur sjálfs- dýrkandi og ég hef þetta mynda- safn með mér hvert sem ég fer. — Þær eru mjög athyglisverðar, sagði Bill. — Athyglisverðar: Þér talið eins og þetta séu safngripir. — Það var ekki meining min. Þér vorum mjög fögur. Hún horfði á hann, isköldu augnaráði. — Það er ég ennþá. Viljið þér sitrónu? — Já takk. Ég átti heldur ekki við að þér væru ekki lengur fögur. Reyndar get ég trúað yður fyrir þvi að ég er yfirleitt hrifnari af þroskuðum konum. — Drottinn minn, þetta er hryllilegt orð. Þegar talað er um þroskaðar konur, dettur mér alltaf i hug ávextir, sem eru það þroskaðir að þeir detti sjálfir af trjánum. Gjörið svo vel. Hún rétti honum glasið. — Ég vildi óska að ég gæti drukkið yður til samlætis, en þvi er ekki að heilsa, það gerir þetta andstyggilega vinbann, það er sannarlega orðið þreytandi. En maður verður aö hlýða læknis- boðum, sérstaklega þegar maður greiðir þessar upphæðir fyrir ráð- leggingarnar ásamt öðru. Ég er viss um að lifurin fer að segja til sin eftir allan þennan appelsinu- safa, sem ég er búin að belgja i mig. En fáið yður nú sæti. Hann hlýddi og hún settist i hægindastól á móti honum. — Hvað kom til að þér skiptuð um skoðun? — Ég var einmana. — Góði minn, ég skil hvernig yður liður. Og þér gátuð ekki dottið niður á betri stað til að njóta skilnings og hlýleika. Þessi staður er dapurlegur og við erum ÖU i sama báti. Við verðum að gera allt sem i okkar valdi stendur til að hressa hvert upp á annað. Hún brosti bliðlega til hans. — Það var einmitt það sem ég var að hugsa, sagði hann og sötraði úr glasinu. — Hvernig smakkast þetta? — Prýðilega. — Og hvernig liður litlu Brandywine frúnni? Er hún búin að ná sér eftir hugaræsinginn? — Já, það held ég. Hvað var eiginlega gert við hana? — Það var einhver kjánaleg tilraun, sem Mentius var að gera. Þér vitið hvernig þessir visindamenn eru. — Herra Brandywine sagði að það hefði verið einhver svefn- tilraun. — Já, einmitt, svefntilraun. Sjálf þekki ég miklu betri aðferð til að sofa vel . . . Hú hló og Bill ók sér vandræðalega i stólnum. — Hefur Mentius lika gert þessa svafntilraun á ykkur þremur? spurði hann. — Ég á þá við yður, herra Brandywine og herra Hirsch? — Hafið þér ekki séð svefn- hylkin okkar? Þau eru reyndar alveg stórkostleg. Takið glasið með yður, þá skal ég sýna yður mitt hylki. Það er i svefn- herberginu. Hún stóð upp, tók i hönd hans og næstum dró hann upp úr stólnum. — Ég skrið niður i þetta á hverju kvöldi, þrýsti á þennan litla hnapp og dreg lokið yfir mig, og eins og hendi sé veifað er ég sofnuð og út úr veröldinni. Súr- efnið hreinsar frumurnar og öll þessi vitleysa er i fullum gangi, en ég verð að viðurkenna að ég vákna eins og ný manneskja á hverjum morgni. Það eina sem ég hef út á þetta tæki að setja, er að það rúmar ekki tvo........Sjáið, þarna er það. Hún hafði dregið hann með sér inn i svefnherbergið og þar stóð þetta hylki, svo undarlega dauð- hreinsað innan um allt skrautið i herberginu. Hún opnaði glerlokið. — Sjáið bara, þarna eru hnappar- nir, sem maður þrýstir á. Hita- stigið fellur fljótlega, en meður finnur það ekki, þvi þá er maður sofnaður. Og á morgnana af- frystir það sig sjálft áður en maður vaknar. Doktor Mentius hefir sjálfur fundið þetta upp, hann er hreinasti galdramaður. — Er það þá svona hylki sem frú Brandywine svaf i allan þennan tima? Hún hrukkaði ennið. — Nei, það er eitthvað annað, svaraði hún, stutt i spuna. , — Segið mér eitt, hverja afstöðu hafið þér til parbaða? — Karbaða? spurði hann skilningsvana. — Nei, parbaða, vinur minn. Hafið þér aldrei prófað það? Bill tók andann á lofti. — Nei, svo frægur hefi ég ekki orðið. — En þá hafið þér aldrei lifað lifinu. Langar yður til að prófa? — Eigið þér við að prófa það núna? — Auðvitað meina ég núna. Ég hefi alveg stórkostlegt bað- herbergi, stórt og glæsilega búið. Þér mynduð kunna að meta þsð. Baðkarið er gert fyrir tvo og ég þarf hvort sem er að fara i bað fyrir miðdegisveröinn. Viljið þér koma i bað með mér? Bill reyndi að bera sig karl- mannlega. — Þér hagið yður eins og köttur kringum heitan graut. Hún hló. — Það fer nú liklega allt eftir þvi hvernig grauturinn er. Mér lizt vel á yður og ég held að fljótasta leiðin til að kynnast, séað fara i bað saman. Það er svo dásamlega eðlilegt. Ég læt þá renna i baðið. Þér getið afklætt yður hér á meðan. Hún gekk að baðherbergis- dyrunum og sneri sér við i gættinni. — Þér sögðuð sjálfur að þér vilduð vikka sjóndeildarhring yðar. Hann hikaði andartak, siðan 20 VIKAN 2. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.