Vikan - 11.01.1973, Side 29
Sibylla gat ekki leynt þvi, að Carl
Gustaf var hcnnar yndi og eftirlæti.
Hér er hann sjö ára gamall.
Sibylla prinsessa hafði meiri áhuga á mannkostum tengdasona sinna cn titlum. Margaretha, elz.ta
dóttirin, var henni alltaf mjög nákomin, og mæðgurnar ljómuðu hvor I kapp við aöra, þegar
Margaretha trúlofaðist enska kaupsýslumanninum, John Ambler.
Og þannig sá sænska þjóðin hana, Sibylla prinsessa kom i siðasta skipti fram opinberlega á niræðisafmæli tengdafööur sins. Hér sitja
alvarlcga, jafnvel fráhrindandi. Hún þau i konunglegu stúkunni i Öperunni ásamt börnum hans, Ingrid, Carl Johan, Sigvard og Bertil.
viðurkenndi hana þó að lokum.
/
bess vegna var Sibylla alveg
jafn hamingjusöm, þegar
Margaretha þremur árum siðar
giftist enska kaupsýslu-
manninum John Ambler, aðeins
nokkrum vikum eftir brúðkaup
Désirée prinsessu og Niclas
Silverschiöld friherra.
Hinn 7. marz 1965 bar andlát
Louise drottningar að, og þar með
var Sibylla orðin tignasta kona
Sviþjóðar. Það hafði i för með sér
margvislegar opinberar skyldur,
en prinsessan vék sér oft undan
þvi að taka við heiðurs-
útnefningum. ,,Þær eiga að biða
minnar væntanlegu tengda-
dóttur”, sagði hún. Sibylla hefði
svo gjarna viljað lifa brúðkaup
Carls Gustafs krónprins.
Kóngafólk er alltaf vinsæll
skotspónn almennings, og Sibylla
fór sannarlega ekki varhluta af
þvi. Hún fékk oft þann dóm i
skrifum og umtali, að hún væri
köld og fráhrindandi, næstum
hrokafull. Dómur vina hennar
hljóðar þvert á móti upp á það, að
hún hafi verið glaðlynd, f jörleg og
vingjarnleg. En hún var alltaf
svolitið taugaóstyrk, þegar hún
kom fram, og i öðru lagi hafði hún
viðkvæm augu, sem þoldu illa
glampa frá ljósmyndavélunum,
sem alltaf voru nálægar við opin-
berar athafnir. Þetta tvennt telja
vinir hennar hafa hjálpast að við
að skapa ranga hugmynd fólksins
Sibylla prinsessa naut
virðingar Svia hin siðustu ár. Þeir
höfðu loksins viðurkennt hana til
fulls, og þegar hún lézt, var saga
hennar rifjuð upp i sænskum
blöðum og rykið dustað af
gömlum myndum, og blöðin
komust að þeirri niðurstöðu, að
hún hefði gegnt sinu erfiða hlut-
verki af hinni mestu prýði.
2. TBL. VIKAN 29