Vikan - 29.03.1973, Blaðsíða 7
MIG DREYMQ
MARTRÖÐ UM SJÁLFSMORÐ
Kæri draumráðandi!
Eg hef aldrei skrifað þér áður, en nú langar mig að biðja
þig að ráða fyrir mig draum, sem mér hefur orðið tíðhugs-
að um, vegna þess hve óhugnanleg áhrif hann hafði á mig.
Það eru nokkrar vikur síðan mig dreymdi hann, og mér
finnst hann alltaf jafn ógeðslegur. En hér kemur hann:
Ég var stödd í herbergi hjá stelpu, sem ég þekki dálítið
og er með mér í bekk. Með okkur voru fleiri stelpur, sem
ég þekki vel. Við vorum búnar að ákveða að drepa okkur,
fremja sjálfsmorð. Við vorum með svarta þunna leðju í dalli.
Við létum hana í sprautu og síðan ávaxtasafa eða eitthvað
efst til þess að fá gott bragð. Einhvern veginn fannst mér.
að við ættum svo að sprauta úr sprautunni upp í okkur, og
þá mundum við deyja. Hinar stelpurnar fóru að gera þetta.
Þá greip mig allt í einu óhugur. Ég sagðist ekki vilja deyja
strax. Hinar ætluðu að neyða þessu ofan í mig og vildu
láta mig deyja líka. Ég streittist á móti, vegna þess hve
máttlausar þær voru af þessu eitri og slapp ég út um dyrn-
ar. Þær voru þá farnar að skjögra og detta. Þetta var
óhugnanlegt. Ég vissi, að þær voru að deyja. Ég hljóp og
hljóp, því að ég hélt, að mér mundi verða kennt um að
hafa drepið þær.
É'g heyrði einhvern koma á eftir mér. Það var dökkhærð-
ur strákur í svartri úlpu. Ég hef aldrei séð hann fyrr. Hann
hughreysti mig og sagði, að mér mundi ekki verða kennt
um neitt af þessu. Ég lét segjast og stilltist af orðum hans,
en annars var ég bæði æst og hrædd. Við gengum burt.
Hann hélt utan um mig.
Þótt ég vissi, að stelpurnar væru dánar, fannst mér, að
þær mundu lifna við eftir 5 daga. Mér fannst það mjög
skrítið. En svo vorum við komin heim til mín. Hann líka.
Þá heyrðum við skothvelli úti og ég vissi, að það var verið
að reyna að drepa mig, vegna þess að ég hafði svikið stelp-
urnar og átti að deyja líka.
Gamall maður í hjólastól var úti á svölum. Hann átti að
hafa gætur á þeim, sem úti voru. Við hlupum út á sval-
irnar og sáum, að hann var dáinn.
Þar með var draumurinn ekki lengri, en ég man sérstak-
lega vel, hvernig stirðnað andlitið á gamla manninum var.
Jæja, ég vona, að þú getir ráðið þennan draum fyrir mig.
Með fyrirfram þakklæti.
Ester.
Þessi draumur flokkast undir martröð, en eitthvað kann
hann að merkja þrátt fyrir það. Það hendir flesta menn
einhvem tíma á lífsleiðinni að örvænta og vilja leggja árar
í bát. Þú Iendir í þessari aðstöðu og sérð ekkert framundan
nema svartnætti. 'En strákurinn í svörtu úlpunni verður
þér til bjargar og fær þig aftur til að sjá björtu hliðarnar
á lífinu.
AFI f ERFIÐLEIKUM
Mig dreymdi, að ég væri í ókunnugri íbúð í blokk. Þar
var margt fólk að skemmta sér með hávaða og látum. Mér
leiddist þetta háttarlag fólksins og var að reyna að hreinsa
til og hirða tómar flöskur. Ég fór fram á gang og sá þar
mér til mikillar undrunar hann afa minn. Hann var í dökkri
köflóttri skyrtu girtri ofan í hvítar nærbuxurnar og var að
hífa upp um sig buxurnar. Mér varð starsýnt framan í
hann, því að hann var órakaður, með úfið hár og mjög
óhreinn kringum munninn, eins og af tóbaki.
Ég hugsaði með mér, að nú hefði afi gamli svikizt um að
þvo sér fyrir háttinn.
„Andskotans hávaði er þetta,“ sagði hann, þegar ég kom
til hans. Svo horfði hann á mig mjög eymdarlega og sagði:
„Ég held bara, að mér sé óglatt."
Ég tók utan um hann og sagði blíðlega, að ég skyldi koma
með honum á salernið. En áður en hann kom þangað, kast-
aði hann upp á öxlina á mér.
Þá fór afi að kjökra.
Ég sagði, að þetta væri allt í lagi, en þó fannst mér
þetta leiðinlegt, því að ég var í grænröndóttum kjól af vin-
konu minni utan yfir mínuin eigin.
Svo fór ég að hugsa um, hvers vegna í ósköpunum ég
væri í kjólnum, því að hann væri allt of víður á mig.
Ef þú heldur, draumráðningamaður góður, að þessi
draumur merki eitthvað, þætti mér gaman að vita það. Ég
hef einu sinni áður sent þér draum, og hann var ráðinn —
mjög vel.
Með fyrirfram þakklæti. Á. H.
Það er enginn vafi á því að þessi draumur táknar eitt-
hvað, hitt er erfiðara að segja til um, hvað það er. Við
reynum þó að spreyta okkur eins og venjulega. Það er yfir-
leitt talið vera fyrir óvæntri arfs- eða peningavon að sjá
afa sinn í draumi. Hins vegar tákna uppköst eignatjón.
Ráðning okkar er því á þá leið, að þú munir fá arf eða
peninga með einhverju öðru móti — en hins vegar verður
upphæðin mun minni en þér liöfðu verið gefnar vonir um
í fyrstu.
KERTI OG JOLASKRAUT
Mig langar til að fá ráðinn draum, sem mig dreymdi
fyrir stuttu. Mig dreymdi, að ég kom í verzlun' að kvöldi
Þorláksdags og fannst mér að mamma ætti þessa verzlun.
Það var mikið jólaskraut þarna ásamt öðru dóti, en samt
var farið að minnka í búðinni af vörum. Ég fór þá að tína
upp af gólfinu og hingað og þangað jólaskraut, þar á meðal
svissneskar bjöllur. Ég mátti fara með það sem mig vant-
aði án þess að borga.
í búðinni var dálítið dimmt, en ég setti það ekki fyrir
mig. Þá fór ég í aðra búð og keypti kerti. Ég leitaði í kassa
fullum af kertum alla vega litum og vildi fá tvö hvít kerti.
Mér fannst ég eiga kertastjakana.
Jæja, hvað um það. Það var dimmt í þessari búð líka, og
ég bað búðarmanninn að kveikja ljós, á meðan ég leitaði að
kertunum. Hann gerði það, en slökkti strax, þegar ég var
búin að finna kertin. Ég spurði hann, hvers vegna þeir hefðu
ekki ljós í búðunum. Hann svaraði, að það ætti að vera
slökkt í öllum verzlunum frá kl. 10 til 12 um kvöldið, en
samt ætti að borga rafmagn í þessa tvo tíma og rynni ágóð-
inn til Vestmannaeyinga.
Ég er mjög berdreymin og get því alveg séð þennan
draum fyrir mér og sérstaklega þó hvítu kertin, sem ég
keypti, en í kassanum voru líka svört kerti, sem ég snerti
á, en ég ýtti þeim til hliðar.
K. G.
Ekki fáum við betur séð en þessi draumur sé til heilla.
Kerti eru gott tákn, sérstaklega ef þau eru hvít. Þau geta
verið sjúkum fyrir bata og einnig fyrir trúlofun, ef ógiftan
dreymir, þótt það eigi líklega ekki við í þessu tilviki. Og
jólaskrautið getur táknað gjafir. Niðurstaðan verður þá sú,
að draumurinn sé fyrir því, að við munum enn frekar en
orðið er þurfa að leggja hart aff okkur vegna eldgossins í
Vestmannaeyjum, þar sem bjartar manna um ástandiff þar
dofna stöðugt.