Vikan - 28.03.1974, Síða 35
PASKAFONDUR
HVITIR PASKAHANAR
Klipptu út höfuö og vængi
(tvöfalt) úr hvitum teiknipapp-
ir, kamb, blööku og lappir úr
rauöum teiknipappir; gogginn
úr gulum, eöa gulmáluöum.
Limduefri hiuta hausanna sam-
an, tvo og tvo, og svo má stinga
kambinum, blöökunni og goggn-
um inn á milli. Breiddu svo út
neöri hluta haussins og limdu á
eggið. Klipptu skarö I stéliö eftir
punktalinunni, breiddú úr þvi og
limdu þaö svo fast á eggið. Þaö
getur veriö sniðugt aö lima
rauöa pipuhreinsara innan á
lappirnar, ef þær eru ekki nógu
stifar. Aö lokum eru vængirnir
limdir á búkinn.
SVONA ERU ULLAR-
KÚLURNAR BÚNAR
TIL:
Klipptu tvo tvöfalda pappa-
hringi eins og á myndum 1 og 2.
Þeir minni eiga aö vera i haus-
inn, þeir stærri i búk kjúklings-
ins. Svo vefuröu gulu ullargarni
yfir tvöfaldan pappahringinn
(3) þangaö til gatiö er oröiö
fullt. Klipptu svo garnið upp
milli pappahringjanna (4).
Veföu svo ullargarni fast um
miöjuna og um aö gera er, aö
ganga vel frá hnútnum. Svo get-
uröu tekiö pappann f burtu.
Klipptu ójöfnurnar og haltu kúl-
unni yfir gufu, svo hún veröi
jöfn og mjúk. A mynd 5 séröu
hvernig beygja skal pipuhreins-
arann i lappir.
13. TBL. VIKAN 35