Vikan


Vikan - 13.06.1974, Síða 5

Vikan - 13.06.1974, Síða 5
þetta svona, vildi ekki hafa mikið á veggjunum. Hann sagði: Þetta hús á að vera fullt af fólki! Og þetta hús er yfirleitt fullt af fólki a.m.k. kaffistofan og bókasafnið. Ég finn ekki til þess, að hér skorti hlýleika. Að visu finnst mér ein- stöku sinnum vera dálitið tómlegt hér, þegar ég geng um á kvöldin og slekk ljós og læsi dyrum. — Kanntu vel við að búa hér? — Að sumu léyti. T.d-. get ég að mestu leitt hjá mér ókosti islenzkrar veðráttu, þar sem ég þarf ekki að fara út frekar en mér sýnist. En það getur lika verið ókostur að búa i vinnunni. Maður á aldrei fri, nema hreinlega forða sér af staðnum. — Býrðu alein i húsinu? — Ekki þessa stundina, kærastinn er i heimsókn hjá mér. Það kom á mig við þessa yfir- lýsingu. Ég var nefnilega tilbúin með geysilega persónulega spurningu um ástæðuna fyrir þvi, að Maj-Britt væri ennþá ógift kona, og sjálf hafði ég imyndað mér ástæðuna þá, að hún hefði talið, að eiginmaður og heimilis- hald yrðu þröskuldur i vegi hennar til frama i starfi. — Það er kannski ekki fráleitt, að ég hafi hugsað svo. Að minnsta kosti er alls óvist, að ég.hefði sótt um þessa stöðu hérna, hefði ég verið gift kona, og raunar kostaði sú ákvörðun mig mikil heilabrot. Þá hafði ég tiltölulega nýlega kynnzt Kjell, sem hefur á hendi stjórn fullorðinsfræðslu i Sviþjóð og kom aldrei til greina, að hann hætti þvi starfi. En hann skildi ákaflega vel, að mig langaði til að spreyta mig hér og studdi mig á allan hátt. Hann hefur svo heim- sótt mig eins oft og hann hefur við komið, og þetta gengur bara vel ennþá. Enn hringir sihiinn, og i þetta sinn er það einmitt Kjell að hringja úr vinnunni. —Honum fannst hann ekki geta gengið um aðgerðarlaus i marga daga og fékk vinnu hjá Sambandinu við að bera kjötskrokka og segir, að það sé bara góö Filbreyting frá skrif- stofuvinnunni. — Hefur starf þitt hér uppfyllt þær vonir, sem þú gerðir þér um það? Og finnst þér húsið gegna sinu hlutverki? — Eg get svarað báðum spurningunum játandi. Aður en- ég kom hingað, hélt ég, að aðal- erfiöleikarnir yrðu að komast i samband við fólk og fá það til að koma hingað. En það reyndust óþarfar áhyggjur. Það er hins vegar ekki mér að þakka, heldur Ivar Eskeland, sem opnaði húsið fyrir alls konar félagsstarfsemi og kennslu, svo að fólk kemur hingað i svo margvislegum erindagjörðum. Og þegar það er einu sinni farið að koma hingað, þá kemur það aftur og aftur og sækir þá líka sýningar og annað á vegum hússins. — En er einhver þáttur i starf- seminni, sem þér finnst hafa mis- tekizt? ~Ég hef sagt það áður opinber- lega, að mér finnst leiðinlegt, hvað sýningar listamanna frá hinum Norðurlöndunum eru illa sóttar. Það er kannski skiljan- legt, fólk þekkir ekki nöfnin. Eitt er þó ánægjulegt við þessa* sýningar. íslenzkir listamenn sækja þær mikið, og þá má e.t.v. segja, að tilganginum sé að mestu náö. En ég hef von um, að starf- semi af þessu tagi geti komizt á betri grundvöll i framtiðinni, þvi að við höfum nú fengið meiri að- stoð. Nýlega tók til starfa hjá okkur Þóra Kristjánsdóttir, fréttamaður hjá útvarpinu, og helzta hlutverk hennar"verður að fylgjast með sýningum og öðru, sem er að gerast i þessu sviði á hinum Norðurlöndunum, og skipuleggja þennan þátt i starf- semi hússins betur en unnt hefur verið. — Þarftu að leita eftir verk- efnum fyrir húsið? — Það er miklu meira á hinn veginn, enda tel ég það æskilegra. Þetta er fyrst og fremst þjónustu- starfsemi. Þó langar mann auð- vitað til þess að framfylgja eigin hugmyndum við og við, og þá rekur maður sig á timaskortinn, húsakynnin eru stundum svo ásetin og upppöntuð langt fram i timann, að það getur reynzt erfitt 24. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.