Vikan - 31.07.1975, Qupperneq 4
morgni, og tveir var&mennirnir
voru ekki á sinum staö.Fidel fann
mjög a& þessu.”
Baudillo Castellanos hefur
veriö vinur Fidels sf&an þeir
stunduöu saman laganám. Ariö
1953 var hann verjandi Castros i
máli, sem Batista, þáverandi
einvaldur og herforingi á Kúbu,
höf&áöi gegn honum. Eftir bylt-
inguna varö Castellanos sendi-
herra Kúbu i Paris. Fram-
kvæmdastjórn rommverksmiöj-
unnar er þriöja starfiö, sem þessi
lögfræ&ingur gegnir. „Mér þykir
óumræöilega gaman að vinna aö
uppbyggingunni,” segir hann.
Klukkan er orðin sex og frl-
kvöld framundan. Verkamenn 9.
byggingardeildar bregöa á leik I
byggingunni, og á þeim er ekki
teljandi þreytu að sjá, þótt þeir
eigi tiu stunda vinnudag aö baki.
Þeir búast til baseballleikja og
annarra Iþróttaiökana, sem þeir
stunda aö loknum kvöldveröi.
Þeir sofa I búöum viö bygginguna
I smlðum.Þegar þessi verksmiöja
er risin, flytja þeir sig til næstu
byggingar.
Byggingardeildirnar vinna 55
stunda vinnuviku. Allir aðrir
verkamenn vinna 44 stunda
vinnuviku. Annan hvern sunnu-
dag eru unnar 4 stundir I yfir-
vinnu.. Lægstu laun eru í kringum
19.500 krónur á mánuöi. Skattar
eru óþekkt fyrirbæri á Kúbu. Rik-
ið er rekiö á ágóðanum af fram-
leiöslunni. Allir fá fjögra vikna
orlof á ári. Karlar komast á eftir-
laun sextugir og konur fimmtlu
og fimm ára. Húsaleiga er aldrei
hærri en sem nemurtlu prósent
tekna. Menntun og heilbrigðis-
þjónusta er veitt án endurgjalds.
„Hins vegar þurfa allir að greiða
nokkurn hluta af lyfjum,” segir
Castellanos. „Og ekki er lengur
taliö nauösynlegt aö reka mat-
stofur, þar sem matur fékkst án
endurgjalds.”
Hvaö fær hann I laun sem verk-
smiðjustjóri? „78.000 krónur —
eins og Fidel. Ég fékk sömu laun
sem sendiherra I Parls. A Kúbu
halda menn sömu launum, þótt
þeir skipti um starf. Yfirleitt fá
verksmiöjustjórar 58.500 krónur á
mánu&i.” (Pedro bilstjóri fær
29.250 krónur og Raúl túlkur
39.000 krónur á mánuði.)
Er hætta á þvl, að tæknimenn
og menntamenn myndi nýja yfir-
stétt i landinu? Cstellanos svar-
ar þessari spurningu svona:
„Menntunaraöferð okkar á aö
koma i veg fyrir það. Allt náms-
fólk veröur að vinna I þrjár
stundir á dag að framleiðslustörf-
um. Einnig hér I verksmiðjunni.
Hingað kemur námsfólk frá Santa
Cruz meö hópferöabHum.” En
veröur samt ekki misbrestur á?
Castellanos segir: „Þaö er mjög
erfitt að réttlæta forréttindi sin.
Til dæmis hef ég verið spuröur að
þvi á fundum I verksmiöjunni,
hvers vegna ég drekki dýrt út-
flutningsromm, sem fæst alls
ekki I verslunum hér. Ég hef út-
skýrt það með þvl, að ég þarf aö
hafa þaö til að veita erlendum'
gestum, sem koma til að kaupa
sllkt romm.”
Talið er, að 650.000 manns hafi
fariö frá Kúbu eftir byltinguna —
einkum kaupmenn, iönrekendur
lögmenn og tveir þriðju hlutar
allra lækna. Þetta var I senn gott
og slæmt fyrir stjórnina. Brott-
flutningurinn hafði áhrif á við-
skiptaáfallið, en jók einnig bar-
áttuþrek þeirra, sem eftir urðu.
Til dæmis varð tiltölulega auðvelt
aö fá starf við sitt hæfi að loknu
háskólanámi, og flestir kúbanskir
vísindamenn eru mjög ungir.
Engir embættismenn hafa sest
að I hinu einstæða lúxusvillu-
hverfi Miramar i Havana.
Villurnar eru nú notaðar sem
skólar, barnaheimili og verka-
manna- og stúdentagarðar. Að-
einsein undantekning er á þessu.
Fidel Castro býr I meðalstóru
húsi I hverfinu.
La Bodeguita, sem áður var
einn helsti svallstaður borgarinn-
ar, en meðal tíðra gesta þar var
Ernest Hemingway, er nú opin-
ber móttökustaður. Vertinn seg-
ir okkur, að hann hafi gefið bylt-
ingunni staðinn, og nú fær hann
46.800 krónur á mánuði fyrir að
reka hann.
Við ferðumst um landið — ök-
um hundrað, þúsund kilómetra.
Hvarvetpa blasa sykurakrarnir
við augum. Blöðin brennd af,
áður en stönglarnir eru skornir.
Eldana ber við loft. Sykur-
skurðurinn er erfiður. Tiu milljón
tonna markið árið ’70 voru að visu
viðskiptaleg mistök, en það hafði
eigi að siður mikla þýðingu. Oll
þjóðin kynntist erfiðinu á ökrun-
um og tók virkan þátt i þvi að
sækja að sama marki. 1 landi, þar
sem ekki hefði annað þurft fyrir
llfinu að hafa en tína banana af
trjánum, hefði byltingin ekki
orðið jafn auðveld.
Matanzas, Santa Clara, Cien-
fuegos, Trinidad, Gamagiiey,
Holgunln, Santiago de Cuba —
alls staðar nýir skólar og barna-
sjúkrahús. Tvennt hefur byltingin
óumdeilanlega haft í för með sér
— allir kúbanir eru læsir og skrif-
andi, og barnadauði er minnstur
á Kúbu af öllum rlkjum S-
Amerlku. Og meðan önnur ríki S-
Amerlku leggja allt fjármagn I
frekari verksmiðjubyggingar i
borgunum, hafa kúbanir valið
aðra leið. Þvi lengra er dregur
frá Havana, þeim mun greinilegri
eru merki um framfarirnar. Lítil
hreinleg þorpin bera ibúunum og
byltingunni fegurt vitni. Berfætt
börn sjást þar naumast, og Ibúða-
byggingarnar eru einkar snotrar.
1 Jovellanosfylki milli
Cienfuegos og Santa Clara eru 16
stórir heimavistarskólar á aðeins
25 kllómetra löngu svæði. 1 hverj-
um þeirra stunda um 500 börn
nám. Þau dveljast hjá foreldrum
TISKUSTOLLINN
FRÁ EVRÓPU
Síðasta sending í sumarer komin. Stóllinn, sem alls staðar hæf ir: í eldhús-
1ð, stofuna, skrifstofuna félagsheimilið, safnaðarheimilið, veitingastof-
una, gistihúsið, barnaherbergið, sumarbústaðinn, svalirnar og garðinn, úti
sem inni. Stóllinn er smíðaður úr völdu brenni og plasthúðaður og þolir því
bleytu.
Bestu arkitektar hérlendis og erlendis mæla með þessum stól, enda augna-
yndi.
6 litir: rauður, svartur, hvítur, grænn, orange og blár. Verðið ótrúlega lágt
Umboð í Keflavík: Sportvík, Hafnarg. 36
Borgarfell, Skólavörðustíg 23 símar 11372/ 86153*
4 VIKAN 31 „ TBL.