Vikan

Eksemplar

Vikan - 11.09.1975, Side 3

Vikan - 11.09.1975, Side 3
■an. Leiðangurinn lagði af stað strax að kvöldi 18. september — sama dag og slysstaðurinn fannst — og var kominn að Kistufelli kvöldið eftir. Þaðan var talið, að 34kilómetrar væru á slysstaöinn. Leiðangurinn hafði nætursetu við Kistufell, þvi að ekki þótti ráðlegt að leggja ájökulinn undir nóttina. Morguninn eftir, þann 20. september, var svo haldið af stað i býtið. Daginn áður kom hingað til lands bandariskur björgunarleið- angur. Kom leiðangurinn á neyðarmerkið SOS endurtekið i sifellu. Kallið var svo dauft, að Kristján greindi ekki kallmerki stöðvarinnar ifyrstu,en datt helst i hug, að neyðarkallið væri frá erlendu skipi langt á hafi úti. Skömmu seinna tókst Kristjáni að greina orðin: Staðarákvörðun ókunn — allir á lifi. Skristján fór nú að gruna margt, en vildi ekki vekja falskar vonir hjá neinum, og lét engin boð út ganga fyrr en hann gat stafað, að TFRVC var kallmerki stöövarinnar, sem sendi út neyðarkallið — hið sama og Geysis. Einnig tókst Kristjáni að greina, að vélin hefði hafnað á jökli. Að þessum upplýsingum fengn- um sendi Kristján þegar skeyti til Reykjavikurflugvallar, þar sem Vestfirðingur var fyrir, nýkom- inn úr leitarflugi. Ahöfn Vestfirð- ings steig þegar um borð I vélina aftur, og tók stefnu á Vatnajökul. Þegar kom þangað austur, brá svo við, að þokunni fyrir hábungu Dyngjujökuls, þar sem Bárðar- bunga heitir, hafði létt, en flogið haföi verið þarna yfir áöur, en þá i svartaþoku, svo ekki sást neitt niður á bunguna. Jóhannes Markússon flugstjóri Vestfiröings beindi vélinni þegar inn yfir Bárðarbungu, og kom áhöfn hennar þá þegar auga á flak Geysis og áhöfn hans, sem öll virtist hress og heilbrigð að sjá. Fleiri vélar búnar matvælum og skjólfatnaði handa Geysismönn- um voru kvaddar á vettvang, og vörpuðu þær þessum útbúnaði ásamt betra senditæki niöur til fólksins á jöklinum. Þegar fréttin um, að áhöfn Geysis væri fundin heil á húfi, varð mikill fögnuður u'm allt land, enda höfðu landsmenn allir fylgst með leitinni að vélinni i ofvæni. önnur þraut var eftir — að bjarga áhöfn Geysis af jöklinum. Að ráði varð, að Þorsteinn Þorsteinsson formaður deildar Feröafélags tslands á Akureyri tæki að sér að stjórna björgunar- leiðangri, sem færi á bifreiðum suöur öræfin úr Mývatnssveit aö Kistufelli og legði á jökulinn það- dakotaflugvél á skíðum og skymastervél, sem flutti þyrlu. Ætlunin var að lenda dakotavél- inni á jöklinum og flytja áhöfn Geysis á henni til Keflavikur, en þegar til átti að taka, tókst ekki að hefja vélina til flugs af jökl- inum. Var þvi allt traust sett á björgunarleiðangurinn að norðan, sem þegar var lagöur af stað upp jökulinn. Björgunarleiðangursmönnum var tekið tveim höndum af áhöfn- um vélanna tveggja, sem á jökl- inum voru. Þar var höfð skömm viödvöl, heldur búist undireins til niðurgöngu. Förin niður af jöklin- um var erfið, enda var þar mjög kalt og þoka yfir öllu. Þá tafði það einnig förina, að sumir banda- risku flugmannanna lerkuðust fljótt á göngunni. Ingigerður flug- freyja hafði meiðst I baki við slys-* ið, og var hún flutt á sleða fyrsta spölinn frá flakinu, en þegar einn bandarlkjamannanna var að þvi kominn að gefast upp á göngunni, skipti Ingigerður við hann, og gekk það sem eftir var leiðarinn- ar að Kistufelli. Þangað kom fólk- ið I birtingu þann 21. september, og var um það bil sex og hálfur sólarhringur frá þvl slysið varð. Morguninn eftir að leiöangur- inn kom að Kistufelli, flugu tvær flugvélar Loftleiða að upptökum Jökulsár á Fjöllum, sem eru I grennd viö Kistufell. Þar hafði Björn Pálsson flugmaður fundið nothæfan landingarstað daginn áður. Flugvélar Loftleiöa fluttu siðan áhafnir Geysis og banda- rlsku, björgunarvélarinnar til Reykjavikur og gekk sú ferð aö óskum. Björgunarmenn að norð- an héldu á hinn bóginn heimleiöis norður öræfin, sömu leið og þeir höfðu komið. 37. TBL. VIKAN 3

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.