Vikan

Ataaseq assigiiaat ilaat

Vikan - 11.09.1975, Qupperneq 6

Vikan - 11.09.1975, Qupperneq 6
undan teppinu: — Helduröu að þú komir ekki hérna og kikir hvort þetta er blóö úr mér? Hann gerði það, og við fundum, að hvergi hafði blætt úr mér. Þetta hlaut þvi að vera blóð úr Dagfinni, sem hafði runnið yfir mig, þegar ég var að dröslast með hann um nóttina. Mér létti auðvitað stór- um. — Nú tókum við til óspilltra málanna við að koma okkur sem best fyrir, og urðu vefnaðarvör- urnar.sem voru I farminum, okk- ur ákaflega notadrjúgar við það. Við fundum þarna lika nokkuð af fatnaði, sem við klæddum okkur i, þvi að við vorum nú farin að gera okkur grein fyrir þvi, að þarna kynnum við að þurfa að vera ein- hvern tima. Við höfðum hundana niu, sem eftir lifðu, hjá okkur i skotinu til að halda á okkur hita. Ég er sannfærð um að þeir hafa átt stóran þátt i þvi að halda i okkur lifinu þó svo að pestin af þeim hafi verið alveg óskapleg. — Var maturinn ekki af skorn- um skammti? — Jú, það var hann. Dagfinnur var rænulaus hátt á annan sólar- hring eftir slysið, en þegar hann komst loks til fullrar rænu var það fyrsta sem hann sagði, að það væri mikill og góður matur I lif- bátum. Þegar farið var að kanna það kom i ljós, að afaí erf- itt var að komast að þeim, og það tókst ekki fyrr en eftir nokkra daga. Þetta urðu okkur griðar mikil vonbrigði, þvi að við vorum vist öll farin að sjá fyrir okkur rjúkandi kjúklinga og steikur. Þetta dró þó ekki úr kjarkinum, við reyndum, og á endanum tókst okkur að komast að þeim. Við fundum að visu ekki mikinn mat, en við fundum annað, sem mikil- vægara var, við fundum neyðar- sendistöðina óskemmda, svo að við gátum sent frá okkur neyðar- skeyti. — Var ekki óskapleg gleði rikj- andi, þegar Vestfirðingur fann ykkur? — Jú, spenningurinn var vissu- lega mikill. Þeir hentu strax niður til okkar dagblöðum og is- landskorti, en á það höföu þeir merkt hvar við vorum stödd. Við urðum mjög hissa þegar við kom- umst að þvi, að við vorum stödd á Bárðarbungu, þvi að okkur hafði einna helst dottið i hug að við værum á Mýrdalsjökli. — Og nú hafið þið loks fengið nógan mat? — Já, það var stöðugur straumur flugvéla, og við fengum nógan mat eftir þetta. Þegar fyrsta matarsendingin kom röð- uðum við i okkur. En almáttugur, við fengum svo I magann af öllum þessum góða mat, þvi að við höfð- um verið nánast matarlaus I fjóra sólarhringa. — Við fengum fljótlega senda talstöð, og i gegn um hana gátum við fylgst með björgunaraðgerð- um. Við urðum afar fegin, þegar bandariska flugvélin kom. Hún kom frá Grænlandi, og flugmenn- irnir sögðu mér, að þeir hefðu rétt ætlað að lenda og fljúga siðan strax aftur með okkur innan- borðs. Þeir sögöust hafa flogið i miðju pókerspili, og ætluðu að klára spilið þegar þeir kæmu heim aftur. En pókerinn varð að biða, þvi að flugvélin komst ekki brott af jöklinum. Ég held að þá hafi ég orðið hræddari en nokkru sinni fyrr á jöklinum, þegar þeir voru að reyna að koma vélinni á loft. Undir henni voru einhverjar eldflaugar, sem áttu að skjóta henni á loft. Þær áttu að fara I gang ein af annarri, en þegar til kom dugði það ekki, svo að þær voru settar af stað allar i einu, og ég hélt, svei mér þá, að vélin væri að rifna i sundur. Ekki bætti það úr skák, að hundarnir ærðust af hræðslu við öll ósköpin. Þetta urðu okkur sár vonbrigði, ég held meira að segja að ég hafi ekki orðið vonsviknari i annað sinn á meðan á jökulvistinni stóð. — Hvenær kom svo leiðangur norðanmanna að sækja ykkur? — Þeir komu um miðjan dag þann tuttuga§ta, daginn eftir björgunartilraun amerikananna. Veðrið var þá aftur tekið að versna og ákaflega tvisýnt að þeim tækist að koma okkur niður af jöklinum i tæka tið áður en allt yrði kolófært. — Niður komumst við öll heil á húfi, en það var ekki þrautalaust, þvi að á miðri leið skall á svarta- Ingigerður og tveir björgunar- raannanna viö flak Geysis Ljósm. E.S. þoka. Og mikið var ég orðin þreytt, þegar niður kom. Þar tók á móti mér Þorsteinn heitinn Þor- steinsson frá Akureyri, en hann var leiðangursstjóri. Hann sat þarna eins og sheik I tjaldi og gaf mér flóaða mjólk að drekka. Ég var orðin afar þyrst, þvi að ekki hafði tekist að koma niður til okk- ar vistum eins og fyrirhugað hafði verið vegna þokunnar, og mér var harðbannað að borða snjó. Ég hefði nú getað hugsað mér eitthvað betra að drekka, en mikið var ég samt fegin mjólk- inni. — Eftir tveggja tima hvild vor- um við drifin af stað, þvi að þeir þorðu ekki að biða lengur við Kistufellið. Þá tók við tveggja tima ökuferð i jeppa, en þegar við komum yfir hraunið, þá biðu okk- ar þar tvær flugvélar frá Reykja- vik, sem hafði tekist að lenda þarna á sandinum. Við stigum auðvitað strax um borð og þær gripu flugið. Vélinni, sem ég var I, flaug Kristinn ólsen, og hann flaug með okkur tvo hringi yfir. flakinu áður en hann tók strikið heim á leið. Ekki hafði ég nú ýkja mikinn áhuga á þvi að lita niður, þvi að mér fannst þetta nú hálf ömurlegt að hafa verið I þessu rusli. — Siðan komið þið til Reykja- vikur. Var ekki gott að vera kom- in heim? — Jú, það var yndislegt. Það var tekið ákaflega vel á móti okk- ur, og við slðan drifin i læknis- skoðun. Þá kom I ljós að ég var býsna mikið meidd, meðal annars með brákaðan hrygg, og þurfti ég þvi að liggja á fjöl i rúminu i hálf- an annan mánuð. — Hélstu svo áfram flugfreyju- starfinu, Ingigerður? — Nei, það gerði ég ekki. Bæði þurfti ég að liggja lengi I rúminu eftir slysið og svo gifti ég mig stuttu seinna. Ég kveið mikið fyrir að fljúga I nokkur ár á eftir, flaug ekki i þrjú ár. En siðan hef ég alveg komist yfir þetta og þyk- ir nú gaman að fljúga. — Hefur þig aldrei langað til að bregða þér á jökulinn aftur, svona að gamni þinu? — Nei, á þvi hef ég svo sannar- lega ekki minnsta áhuga. Ég verð öll köld bara af þvi einu að tala um þetta. Mynd þessi var tekin skömmu eftir aö lagt var af stað niður jökulinn. Þá var bjart yfir og veður gott, en fljótlega dimmdi af þoku, svo niöurgangan var torsóttari en ella. Ljósmynd: E.S. 6 VIKAN 37. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.