Vikan - 11.09.1975, Síða 10
NATHALIE VADIM
er sautján ára menntaskólastúlka í París, og nú er hún
að hef ja feril sinn í kvikmyndaheiminum. Hún á ekki
langt að sækja áhugann á þeim málum, því faðir
hennar er enginn annar en franski leikstjórinn Roger
Vadim, sem meðal annars hefur verið kvæntur Brig-
itte Bard og Jane Fonda og eignast barn með Cather-
ine Deneuve. Móðir hennar er Annette Stroyberg, sem
meðal annars lék aðalhlutverk í kvikmyndinni Hættu-
leg sambönd. Nathalie fer hægt í sakirnar og vinnur
enn sem komið er á bak við myndavélarnar hvað sem
siðar verður.
SVIAKÓNGUR
er ekki óvanur því að fá hlýlegar móttökur, þar sem
hann er á ferð, en fáir heilsa honum jafn hjartanlega
og Marie Johansson, enda virðist kóngur í svolitlum
vandræðum með, hvernig hann eigi að taka þessu
óvænta faðmlagi. Carl XVI. Gustav var þarna í óopin-
berri heimsókn í Janköping, og Marie, sem er aðeins
17 ára, vildi fullvissa hann um það, að hann ætti vin-
sældum að fagna meðal unga fólksins í bænum.
Bekkjarbræður Marie skemmtu sér vel yfir tiltæki
hennar.
10 VIKAN 37. TBL.