Vikan - 11.09.1975, Side 12
Linguaphone
Þú getur lært nýtt tungumál á 60 tímum
LINGUAPHONE tungumálanámskeió kennir þér nýtt
tungumál á sambærilegan hátt og þú læróir íslenzku.
Þú hlustar, þú skilur og talar síóan. Þú hef ur meófædd-
an hæfileika til aó læra aó tala á þennan hátt. A ótrú-
lega skömmum tíma nemur þú nýtt tungumál, þér til
gagns og ánægju. — Þetta er RETT og ÞÚ getur
sannaó þaó. — Vió sendum þér aó kostnaóarlausu
upplýsingapésa um námió. — Þegar þú hefur tekió
ákvöróun, — sendum vió þér linguaphone námskeió
í því tungumáli, sem þú ætlar aó læra.
1
Pcusdöw^, Mons \Qaá
l'ajudobus iaumazv'o5d s‘avrút& ícá
LINGUAPHONE tungumálanámskeió
á hljómplötum og kassettum
Hljóófærahús Reykjavíkur- Laugav.96 -símN3656
pásturinn
Blómarækt.
Heill og sæll Póstur góður!
Mig langar til að fá hjá þér
upplýsingar um garöyrkjustörf
og sitthvað fleira, og þá er það
fyrsta spurningin:
1. Þarf maður að hafa ein-
hverja sérstaka menntun til að
reka gróðrarstöð, það er að
segja blómarækt og sölu?
2. Þarf maður að hafa
verslunarleyfi?
3. Hvernig eiga fiskar (kona)
og naut (karlmaður) saman?
Og svo þetta vanalega: Hvað
lestu úr skriftinni og hvað held-
urðu, að ég sé gömul.
Ég vonast til, að þú getir
svarað þessu sem fyrst, og sendi
þér fyrirfram þakklæti. Sonur
minn biður að heilsa þér.
Vertu blessaður.
Blómakona.
Ég les nostur úr skriftinni og
þú ert um tvitugt. Þakka
kveöjuna frá syni þinum og bið
að heilsa honum aftur. Ekki
býst ég við þvi, aö neinnar sér-
stakrar menntunar sé krafist til
reksturs gróörarstöövar, en
verslunrleyfi veröur þú aö hafa
til þess aö mega seija blóm, og
ekki er verra aö kunna eitthvað
fyrir sér i ræktun þeirra til þess
aö uppskeran veröi falleg.
Garöyrkjuskóli rikisins á
Reykjum I öifusi veitir hald-
góöa garðyrkjumenntun, og um
hann ættiröu aö geta fengið a 11-
ar upplýsingar hjá Grétari
Unnsteinssyni skólastjóra i
sima 99-4340. Fiskkona getur átt
von á þvi, aö nautskarl særi
hana oft, en þó eiga þau sinar
góöu stundir saman.
Happatölur og
handavinna.
Kæri Póstur!
Mig langar til að biðja þig að
svara nokkrum spurningum
fyrir mig.
1. Hvaða menntun þarf maöur
að hafa til þess að verða handa-
vinnukennari stúlkna og hvaö er
þaö langt nám?
2. Hvernig fara saman fiskar
(stelpa) og krabbi (strákur) og
fiskar (stelpa) og nautið (strák-
ur)?
3. Hver er happatala min, ef
ég er fædd i fiskunum og hver er
happaliturinn?
Og svo þetta vanalega:
Hvernig er skriftin og hvað lestu
úr henni: Hvaö heldurðu, að ég
sé gömul?
Biö að heilsa öllum I
Póstinum!
1 von um birtingu.
Ein, sem vonast eftir svari.
Til þess aö veröa handavinnu-
kennari þarf handavinnukenn-
arapróf, sem lokið er frá
Kennaraháskóla tslands eftir
þriggja ára nám þar. Inntöku-
skilyröi i Kennaraháskóla
tslands er stúdentspróf.
Kvenfiskur og karlkrabbi
komast vel af hvort viö annað.
Sjá svar við næsta bréfi á undan
hvaö snertir samband kvenfisks
og karlnauts. Til þess aö svara
spurningum þinum um happa-
tölu og happalit þyrfti ég aö vita
nákvæmlegan fæðingartima
þinn og fæðingarstað —
breiddargráöu og lengdar- og
hvaöeina. Skriftin þin er ómótuö
ennþá og litið hægt aö lesa úr
henni. Þó bendir hún til nokkurs
þolgæöis. Hvcrjir eru þessir all-
ir i Póstinum, sem þú biöur aö
heilsa? Pósturinn i Vikunni er
ekki nema einn. Þó tekur hann
kveöjuna til sin og þakkar hana.
Inga og Sigga.
Kæri Póstur!
Við erum hér tvær frá Hellis-
sandi og okkur langar til að
spyrja þig nokkurra spurninga:
1. Hvað þýða nöfnin Inga og
Sigga?
2. Hvernig er skriftin?
3. Hvað heldurðu, að við séum
gamlar?
4. Hvernig er starfsetningin?
Vertu sæll, kæri Póstur!
Tvær forvitnar frá Hellis-
sandi.
Fyrst langar mig til að benda
ykkur á, aö ef þiö eigiö nú heima
á Hellissandi eins og ég þykist
vita, aö sé, þá eruö þiö þar og
eigiö þvi að skrifa: Tvær
forvitnar á Hellissandi. Hafiö
þiö hins vegar átt heima á
Hellissandi lengst af frá fæöingu
en séuö nú fluttar þaöan, er
rétt af ykkur aö segja: Tvær
forvitnar frá Hellissandi.
Svo get ég ekki oröa bundist
um þa smekkieysu flestra
bréfritara, sem Póstinum
skrifa, aö þurfa ætiö aö setja
númer viö spurningar sinar.
Slikt bendir ekki til mikils valds
á tungunni. Til dæmis væri
ákaflega auövclt aö snúa bréf-
inu ykkar i samfcllt mál, og þá
veröur þaö strax þekkilegra.
Þaö myndi þá hljóöa eitthvaö á
þessa leiö:
Kæri Póstur!
Viö erum tvær stúlkur á
Hellissandi og heitum Inga og
Sigga. Okkur er mjög i mun aö
fá aö vita, hvaö nöfnin okkar
merkja. Þú mátt svo gjarnan
geta þess I framhjáhlaupi i
svarinu, hvernig þér þykir
skriftin á bréfinu, svo og
stafsetningin.
Og hvaö helduröu svo, aö viö
séum nú gamlar?
Meö kærri kveöju og árnaðar-
óskum.
Tvær forvitnar á Ilellissandi.
Og svar mitt við þessu
12 VIKAN 37. TBL.