Vikan

Tölublað

Vikan - 11.09.1975, Blaðsíða 26

Vikan - 11.09.1975, Blaðsíða 26
AÐFERÐ I: BUNDIÐ Á EGGJALEIÐARA. Nú eru notaðar nokkrar mis- munandi að- f er ð i r v i ð ó f r j ó - semisaðgerðir á konum. Allar eiga þær það þó sameiginlegt, að vegi eggsins f rá eggjastokki til legs er lokað. Þessi aðferð er elst og sú, sem mest reynsla er af. Læknir- inn kemst að eggjaleiðaran- um gegnum lít- inn skurð (i kringum þriggja senti- metra langan), nær í hann með töng og bindur á hann eins konar slaufu. Konan þarf að dveljast í sjúkrahúsi í um það bil viku. AÐFERÐ II: BRENNT MEÐ KANNA. Læknirinn ger- ir tvo smáskurði, annan fyrir Ijóskíki og hinn fyrir kanna. Á enda kannans er eins konar töng, sem unnt er að hita. Með henni er eggja- leiðarinn brenndur. Kon- an getur farið heim sam- dægurs. Bundið á eggjaleiöarana Eggjastokkur Eggjastokkur Leggöng Eggjaleiðarar teknir sundur er óvenjulega hátt hlutfall. Svör kvennanna báru það nær undan- tekningarlaust með sér, að aö- gerðin heföi aðeins verið þeim til góðs. (í þeim fáu undantekning- um, sem töldu sér hafa orðið and- lega meint af aðgerðinni, var um að ræða konur, sem orðiö höfðu að gangast undir aðgerðina af heilsufarsástæðum). Niðurstöður voru þessar i einstökum atriðum: Iieilbrigði: Ekkert dauðsfall var unnt að setja i samband við aðgerðina. 94% kvennanna sögðust ekki hafa fundið fyrir neinum kvillum vegna aðgerðar- innar. 35% þeirra sögðust meira að segja vera heilsubetri eftir hana, 62% sögðust ekki hafa orðið varar við neina heilsufars- breytingu, og 3% kvennanna sögöu heilsu sina lakari en fyrir aðgerðina. Wille: „Athyglisvert er, að dagleg liðan margra kvennanna var betri eftir aö- gerðina. Þær voru taugastyrkari, lystugri og sváfu betur.” Kynlif: 66% kvennanna sögðu kynlif sitt vera betra eftir að- gerðina en áður, 30% sögðust ekki hafa orðið varar við neina breyt- ingu og 4% sögðu kynlif sitt verra en fyrir aðgerðina. Af þeim 269 konum, sem sögðu kynlif sitt hafa verið „slæmt” eða mjög „slæmt”, sögðu 201 það hafa orðið „gott” eða „mjög gott” eftir aðgerðina. Tiunda hver kona fékk ekki kynferðislega fullnægingu fyrr en eftir aðgerðina. Næstum helmingur kvennaanna taldi kyn- orku sina meiri en áður. Ósk um barn á ný Mjög hæpið er, að unnt sé aö tengja eggja- leiðara aftur, ef ófrjósemisaðgerð hefur verið framkvæmd. Kona, sem lætur gera sig ófrjóa, verður semsé að búa sig undir það að vera ófrjó upp frá þvi. Helstu áróöursmenn fyrir ófrjósemisað- gerðum telja mestu hættuna fólgna i þessu. Hvað ef konan skilur og giftist aftur? Hvað ef maðurinn hennar deyr? Hvað ef einkasonurinn deyr? Er nokkurn tima hægt að fullyrða, að kona muni ekki einhvern tima' seinna óska þess að eignast barn? — öll svörin i könnuninni voru sam- hljóða. Allar mögulegar kring- umstæöur voru hjá konunum, sem spurðar voru. Þó kvaðst ekki ein einasta iörast þess að hafa látið gera sig ófrjóa. Engin þeirra fann hjá sér löngun til að eignast barn eftir aðgerðina. „Það versta, sem fyrir gæti komið,” segir Dohrn, „er að ófrjó kona missi öll börnin sin i einu, til dæmis i slysi. Ég hef alltaf óttast, að eitthvað slikt kæmi fyrir. Og ég hef sjálfur orðiö vitni að þvi. Hjón nokkur misstu þrjú börn i umferðarslysi. En þessi hjón 26 VIKAN 37. TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.