Vikan

Issue

Vikan - 11.09.1975, Page 31

Vikan - 11.09.1975, Page 31
allt heföi skaðað sál telpunnar mest og hUn dó, áður en árið var á enda. Ég var að berjast viö að greina þetta allt. Einhvers staðar var veila I þessu og það var alltaf von til að finna réttu skýringuna. — En þarf það endilega að vera, að þetta hafi verið Benedict? Robert Vyner kinkaði kolli. — Það versta er eftir. 1 þessari dag- bók komst ég að þvi, að Trelawn- ey haföi stundað eiginmann þinn viö einhverju, sem hann kallar á mjög ólæknisfræðilegan hátt, sem æði. Og Treawney lýsir því á þann hátt, að maðurinn hafi hagað sér eins og bandótt villidýr. Ég lokaði augunum, en ég gat ekki losað mig við svipbrigðin á ásjónu Benedicts, þegar hann leit til mín í sjúkrastofunni minni og svipinn á honum, þegar við sát- um saman i járnbrautarvagnin- um. ,,Ég veit að ég hefi fengið erfitt skaplyndi að erfðum og það er er- fitt að búa við það, en ég verð nú samt að gera, sennilega kemst ég ekki hjá þvi, sjáöu nú til...” — Hann var heiðarlegur gagn- vart mér, hvislaði ég lágt. — Hann sagði mér það frá upphafi. En ég trúði þvi ekki þá og ég get ekki trúað þvi ennþá, að það hafi verið...verið.... — Geðveiki, sagði Robert Vyner. — öryggi þitt, — lif þitt er I veði. Þú verður að komast i burtu. — En hvers vegna skyldi hann vilja særa mig? sagðiég. — Hann kaus þó að kvænast mér. Það hef- ur ekkert komið fram i sambúð okkar, sem bendir til þess að hann vilji gera mér mein. — Telpan, Lucy Pollitt hafði ekki gert neitt, sem gat orsakað þessa meðferð á henni! sagði hann hörkulega. — En það bjargaöi henni ekki frá þessu dýrslega æði mannsins! En ég ætlaði ekki að yfirgefa Mallion að svostöddu, að minnsta kosti ekki þetta kvöld. Þegar við komum út í hús- garðinn, þar sem hestur Roberts og léttivagn voru, þá sá ég að Benedict var þar og að hann var ekki einsamall. — Menhenitt lögregluforingi hefur ýmislegt að segja okkur, drafaði I Benedict. — Ég sting upp á þvi að við förum öll inn. Þegar dyrnar höfðu lokast að baki okkar, dró Menhenitt samanbrotið bréf upp úr vasa sin- um. Hann slétti úr þvi og rétti Benedict það. — Hvað er þetta? spurði Bene- dict. — Það er rannsóknarheimild, sem veitir mér leyfi til að rann- saka staðinn hér og allar aðstæð- ur. Hann eyddi heldur ekki timan- um til einskis. Ég heyrði hann kalla á Janey Madden og ég var ekki I neinum vafa um að hann myndi flækja þennan einfeldning til að segja sitt af hverju um fyrr- verandi húsmóður sina og hún myndi ábyggilega blaðra of mik- ið. Þegar við heyrðum að hann var á leið til okkar aftur, gekk Robert út að glugganum. — Reyndu að herða þig upp, Joanna, ég held þeir hafi fundið það sem þeir leituðu að. Menhenitt kom frá vistarverum þjónustufólksins og Janey gekk á hlka honum. Ég þurfti ekki að láta segja mér það, að hún hafði sagt frá öllu, bréfinu og þvi sem hafði farið á milli okkar. Þrir einkennisklæddir lögreglu- þjónar voru nú komnir á vett- vang. Einn þeirra hvislaði eitt- hvað i eyrað á Menhenitt. — Það þarf ekki lengur vitn- anna við. Vyner læknir, viljið þér koma og athuga likið. Robert ræskti sig. — Já, að sjálfsögðu. Svo gengu þeir út. — Jæja? Það var Benedict sem sagði þetta. — Við höfum fundið llkið af ungfrú Mapollion. — Það er grafiö hérna i gamla garðinum. Vissuð þér um það? herra Trevallion. — Já, sagði Benedict. — Vitið þér hver gróf það þarna? — Það gerði ég, sagði maöurinn minn án þess að hika. — Hver aöstoðaði yður herra Trevallion. — Ég bar hana út sjálfur. — Herra Trevallion, sagði foringinn, — ég neyðist þá til að taka yður fastan og fara með yður til Turo. Sem stendur verð ég að ásaka yður fyrir morðið á ungfrú Mapollion. Það er lika sennilegt að það verði ýmsar aðrar ákærur i þvi sambandi. Benedict kom til min. Hann brosti; — svo bliðu brosi, aö ótti minn hvarf eins og dögg fyrir sólu. — Það er svo margt að segja, Joanna, — svo margt óskiljan- legt. Ég get ékkert gert annað en að biöja þig að hafa umburðar- Ó, nei, þetta er nú einum of mikiö. Þetta er konan mln!!!! lyndi og fyrirgefa mér allt sem ég hefi gert þér á móti. Vertu sæl, Joanna. — Vertu sæll, hvislaði ég. Ég horfði á eftir þessum há- vaxna, glæsilega manni, þegar hann gekk eftir forsalnum og tók hatt sinn og hanska af borðinu við dyrnar, svo gekk hann á eftir lög- regluþjónunum. Menhenitt var kyrr. Svo heyrði ég hávaðann, þegar hestar og vagnar fóru út úr húsagarðinum. Robert kom inn aftur. — Þér hafið skoðað likið, læknir? spurði Menhenitt. — Já, það er lik Feyellu Mapoilion. — Og hafið þér fundið dánaror- sökina? Robert leit I áttina til min og svaraði lágt: — Hún var...kyrkt. Það var Robert sem hjálpaði mér i gegnum það versta. Vogar- merkift 24. sept. — 22. okt. Það, sem þú hefur á prjónunum, er algjör fásinna. Reyndu eins og þú getur að efla félagsandann á heimili þinu og styrkja fjölskylduböndin. Þú hefur sniðgengiö persónur. sem þú finnur til vanmáttar þins gegn, reyndu aö gera þér grein fyrir af hverju. Dreka- merkift 24. okt. — 22. nóv. Þú hefur komist i nánari kynni við ákveðna persónu, sem, ef þú ferð rétt að, þú getur vænst þin mikils af. Likur eru til þess að ráðgerðir þinar fari út um þúfur. Þú verður trúnaðar- vinur ákveðinnar persónu, sem meö þvi kemur þér i vanda. Bogmanns- merkift 23. nóv. — 21. des. Þú hefur gert áætlun um vinnuhagræöingu. Ef þú lætur letina ekki ná tökum á þér, þá ertu örugglega á grænni grein. En þú skalt blanda sem fæst- um inn i þessar til- raunir þinar. Maður, sem hefur veitt þér atvinnu, hefur sam- band við þig. Geitar- merkift 22. des. — 20. jan. Þú hefur fengið eitt- hvert hlutverk, sem þú unir þér mjög vel við. Ættingi þinn, af sama kyni, leggur fyrir þig gildru, sem þú átt erfitt með að varast. Þú verður óviljandi þátttakandi i óeirðum nokkurra ná- granna þinna. Vatnsbera- merkift 21. jan. — 19. febr. Þú hefur mjög mikið að gera, og sérð ekki út úr augum. Skyn- samlegt fyrir þig, væri að leita hjálpar við ýmis atriði i þessu sambandi. Þegar minnst vonum varir, og á mjög óliklegum stað, dynur rómantik- in yfir þig. Heillalitur er blár. Fiska- merkift 20. febr. — 20. marz Athugaðu hvort það er ekki sprottið af öfundsýki. sem þú gefur i skyn um ákveðna persónu. Þér er áriðandi að gefa gaum að þessari við- vörun, þvi að afleið- ingarnar geta orðið miður skemmtilegar. Haltu hópinn með gömlum félögum þin- um. 37. TBl. VIKAN 31

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.