Vikan - 11.09.1975, Síða 34
— Helstu erfiðleikar hljómsveita sem
halda útikonsert...
Fyrst var það Change...
Mikill menningarbragur hefur
rikt innan okkar bestu hljóm-
sveita að undanförnu og hafa þær
keppst við að gera fólkinu til hæf-
is á allan hátt. Nú, uppá siðkastið
með þvi að halda útikonserta, þar
sem öllum er heimill aðgangur án
þess að þurfa að borga krónu og
væri synd að segja, að poppá-
hugamenn kunni ekki að meta
þetta, þvi alltaf er mikið fjöl-
menni til staðar, þegar svona
konsertar eru haldnir.
Það var hljómsveitin Change,
sem reið á vaðið með hljómleik-
um i Austurstræti. Þar mætti
múgur og margmenni og fengu
þeir félagar mjög góöar móttökur
áhorfenda og heyrenda. Að visu
var sándið ekki sem best en það
verður ekki á allt kosið og ekki að
furða þó sándið sé ekki hundrað
prósent þegar ekki hefur verið
hægtað teista, eins og þaðer kall-
að, áður en byrjaö er að spila.
Næstir riöu á vaðið þeir
Pelicanar og völdu þeir sér Lækj-
artorg sem vettvang. Ekki þurftu
þeir að kvarta yfir dræmum
undirtektum, frekar en þeir i
Change, þvi múgur og marg-
menni mættitil að hlusta á þá. En
það var sama vandamálið hjá
þeim og Change, sándið var ekki
nógu gott. Það má geta þess til
gamans, að sjálfur Guðs-herinn,
Þá er Brimkló rúlluð yfir. Það
skeði að sjálfsögöu hljóðlega og
kom fáum á óvart, enda hefur
grúppan sú verið fremur andlaus
uppá seinni tiðina. Þó munu þeir
Raggi trommari og Arnar vera að
hugleiöa að halda áfram og stofna
aðra grúppu, með sama nafni.
Ekki er endanlega búið aö ganga
frá þeim málum, en við segjum
frá þvi, strax og tilefni gefst. Af
þeim sem úr bandinu fara, er það
aö segja, að Jónas ætlar nú að
snUa sér i rikara mæli að upp-
tökustjórn i fyrirtæki sinu Hljóð-
ritun jafnframt þvi, sem hann
verður eitthvað innandyra hjá
Sjónvarpinu. Pétur orgelleikari
hyggur á nám erlendis og Sigur-
jón Sighvatsson ætlar að stunda
kennslustörf, en mun jafnframt
hafa einhverja hönd i bagga með
Hljóðritun, en hann er, ásamt
Jónasi, einn af eigendum þess
fyrirtækis.
babblbabblbabbl
Hann Baldur Brjáns, töframað-
ur, er nú nýkominn úr utanför
sinni. Kappinn fór með það fyrir
augum aö endurnýja prógramm-
ið og verða sér úti um frekari vis-
dóm i göldrum. Að þvi er hann
tjáði okkur, þá gekk feröin bara
vel og þegar þið komið til með að
lesa þetta, verður hann sjálfsagt
búinn aö troða upp nokkrum sinn-
um með nýja prógrammið. Til
gamans má geta þess, að hann
var boðinn á galdramannaþing
sem haldið var i Osló, og mættu
þar ýmsir galdramenn frá hinum
Norðurlöndunum.
babblbabblbabbl
Það er orðiö nokkuð langt siðan
hann Svavar Gests ætlaði sér að
vera bUinn að koma upp sinu eig-
in stúdiói. Og lengi vel er máliö
bUiö aö vera I deiglunni. Hann var
bUinn að fá meö sér fyrrverandi
poppara, Sigurö Arnason, sem
einu sinni var bassaleikari i þeirri
frægu hljómsveit Náttúru og átti
hann að vera aðalupptökumeist-
ari. Höfum við fregnað það fyrir
satt, aö nú sé bara endasprettur-
inn eftir hjá þeim félögum, græj-
umar komnar og hUsnæðið tilbU-
ið, bara eftir að setja upp og
ganga endanlega frá. Stúdióið
verður til húsa i sama hUsi og
Tónabfó er, veröur þar upp á
þriöju hæð. Og með tilkomu þessa
S.G.-stUdiós, þá verðum við kom-
in með tvö alvörustúdió og er það
vel.
babblbabblbabbl
Og meira um stúdiómálin. Ein-
hver var að gauka þvi aö okkur
hér um daginn, að þeir kumpánar
I Hljóöritun, hinu stúdióinu okkar,
séu nU með það á hreinu, að setja
upp 24 rása græjur, með öðrum
orðum, koma upp græjum eins og
þær gerast bestar erlendis. Ef af
þessu verður, þá ætti að vera fyr-
ir þaö tekiö, að hljómsveitir þurfi
að fara út fyrir landsteinana, til
að fá nógu vandaöar upptökur.
Vonandi rætist þessi langþráði
draumur.
34 VIKAN 37. TBL.