Vikan - 29.12.1975, Page 6
I Cardena suður á Spáni er munkaklaustrið
San Pedro de Cardena. Norskir blaðamenn
voru þar á ferð ekki alls fyrir löngu og segja
hér frá heimsókn sinni til Cisterciensbræðr-
anna í klaustrinu.
Klausturlíf er ekki einungis bænir
og hugleiðingar. Bræðurnir vinna
einnig líkatnlega erfiðisvinnu, að
meðaltali fimm klukkustundir á
dag.
Þungar trédyrnar. lokast, það
hringlar í lyklakippu, lásinn
•hrekkur attur — og allt í einu
erum við lokaðir inni í kla.ustri,
spænsku munkaklaustri af Cister-
ciensreglunni.
Hvítkalkaðir veggirnir og dauf
birtan frá glugga hátt á veggnum
eykur á einangrunartilfinninguna.
Við þetta bætist enn kyrrðin, sem
ríkir þarna innan veggja. Okkur
er boðið sæti á bekk, sem er mjög
óþægilegur. Okkur líður næstum
eins og munkum.
Bróðir Salvador verður að fvrir-
gefa okkur þennan inngang. Hann
átti alls ekki von á gestum, þegar
við knúðum dyra, og hann hafði
ekki leyfi til þess að opna fyrir
okkur. Hann varð að spyrja ábót-
ann leyfis.
Hann útskýrði þetta fvrir okk-
ur seinna: — Miðað við það líf,
sem lifað er innan klausturveggj^-
anna, má nánast líkja því við of-
beldi, þegaf menn með mynda-
Vélar og óteljandi spurningar ryðj-
ast allt í einu inn í klaustrið.
Bróðir Salvador vildi þó ekki
sjálfur bera ábyrgðina á því að
varna okkur inngöngu. Hann
spurði ábótann.
Þess vegna urðum við að bíða
í fimmtán 'mínútur og virða fvrir
okkur skiltið á hinum dyrunum:
Prohibido el paso — aðgangur
bannaður. Þær dyr voru einnig
vandlega læstar.
Við erum ekki einir í biðsaln-
um. Parna bíður líka ungur mað-
ur með blíðlegt andlit og leitandi
augu. Hann er stuttklipptur og
klæddur óbrotnum fötum. í hend-
inni heldur hann á lítilli tösku.
Hann stendur á miðju gólfi og
bíður, uns munkur kemur og
bendir honum þegjandi að fvlgja
sér. Hann lítur svolítið spvrjandi
í áttina til okkar. Ætli við séum
líka að hefja munkalíf?
Bróðir Salvador er kominn aft-
ur. För hans á fund ábótans hefur
borið árangur. Við megum ganga
inn fyrir og sjá allt. sem okkur
langar, ef við aðeins gætum þess
að virða kyrrð hugleiðingarinnar
innan veggja klaustursins.
Síðan göngum við gegnum for-
boðnu dyrnar, og samstundis
finnst okkur sem við stígum
margar aldir aftur í tímann. Ekki
fyrst og fremst vegna e'ndalausra
ganganna og dimmra salarkynn-
anna, heldur af því okkur finnst
Ur svefnsal klaustursms. Hver
munkur hefur sinn klefa.
6 VIKAN 52. TBL.