Vikan - 10.03.1977, Page 6
aftur komin til Beatrice systur
sinnar.
Þriðji eiginmaður Övu var þeirra
frægastur, Frank Sinatra. Þau
giftust árið 1951, aðeins viku eftir
skilnað Franks við Nancy, fyrstu
eiginkonu hans. Þessi frægu hjón,
Ava og Frank, voru geysilega um-
töluð, og heimurinn fylgdist með
hverju þeirra fótmáli, pressan sá
um, að ekkert af þeirra gerðum
færi framhjá umheiminum og jók
að sjálfsögðu eitthvað við. Það
væri synd að segja, að þau hafi
lifað kyrrlátu lífi, enda bæði
skapheit og fræg, og þótt hjóna-
bandið entist á pappírnum í tæp
sex ár, var það raunverulega búið
að vera að minnsta kosti tveimur
árum fyrr.
Þrátt fyrir allan þennan tíma,
sem liðinn er síðan, og þrátt fyrir
allt, sem Ava og Frank hafa síðar
upplifað, samkvæmt áreiöanleg-
um heimildum, hefur pressan enn
mikinn áhuga á sambandi þeirra.
Þau eru nefnilega ennþá góðir
vinir. Sögur ganga um, að þau
talist reglulega við í síma og að
Ava hafi lykla að heimilum Franks,
hvar sem þau sé að finna. Ava
neitar þessu, en segir, að þau séu
bestu vinir og hittist stundum.
Hún fæst sjaldan til að tala við
blaðamenn, og þá sjaldan hún
gerir það, vill hún sem minnst um
Frank Sinatra tala. En geri hún
það, ver hún hann með oddi og
•gg, segir hann vera dásamlegan
mann, sem geri dásamlega hluti
og hafi varið miklu fé til
llknarmála, svo eitthvað sé nefnt.
Hún má ekki heyraJUa-um hann
talað og finnst fjölmiðlar hafa gert
honum ran'gt til.
Blaðamenn virðast ekki með
nokkru móti geta sagt neitt gott
um Frank, hvað sem hann gerir.
Þeir minntust varla á það, þegar
hann fór í hljómleikaferð fyrir
tveimur árum til að safna fé handa
þroskaheftum börnum. i þrjá
mánuði ferðaðist hann um ótal
lönd og greiddi alla reikninga
sjálfur fyrir sig og allt sitt
fylgdarlið, farseðla og hótelreikn-
inga.
Þegar Ava og Frank skildu,
brenndi hún fleiri brýr að baki sér
og fluttist þá meðal annars til
Spánar, þarsem hún bjó í mörg ár.
Næturlífið í Madrid hefði verið
fátæklegra í þá daga án Övu, en
sjálf segir hún of mikið gert úr
skemmtanafíkn sinni. Og alltaf
stundaði húri vinnu óaðfinnan-
lega. Vinsældir hennar sem kvik-
myndaleikkonu fóru síður en svo
minnkandi. Alls hefur Ava leikið í
um 40 myndum, og hún er ekki
hætt enn. Fyrir nokkrum mánuð-
um lék hún í njósnakvikmynd með
Dirk Bogarde, og þeir, sem séð
hafa, Ijúka lofsorði á framlag Övu.
Að Spánardvölinni lokinni fluttist
Ava til London, og þar er nú
hennar aðal heimili í fallegri íbúð í
Kensington. Hún býr ein, Beatrice
systir hennar er hætt að gæta
hennar hverja stund, en Ava
heimsækir hana oft til Hollywood,
og hún fer einnig í heimsóknir til
annarra ættingja. Eitt sinn langaði
Övu ákafttil þess að eignast barn,
en af því gat ekki orðið. Ava
saknar þess ekki nú. Hún vill
heldur vera ein.
Wýrbill...
Hazda
Nú kynnum vió nýjustu geröina af Mazda: Mazda 323. Þetta er 5
manna bíll byggöur í „hatchback“ stíl, sem sameinar kosti
stationbíls og fólksbíls og tryggir um leió frábæra plássnýtingu
og formfegurð. Vélarstæröir eru tvær 1000 eöa 1300 cc, í senn
aflmiklar og sparneytnar. Gormafjaórir eru á öllum hjólum og
tryggir þaö góöa fjöórun á misjöfnum vegum. Sílsar og grinda-
bitar eru úr galvaniseruðu stáli, og aðrir undirvagnshlutar eru
zinkhúöaöir. Mazda 323 er eins og aðrar geróir Mazda ríkulega
búinn aukahlutum. ViÖ fjölyróum ekki meira um þennan nýja
bíl en bjóöum ykkur aó koma og skoóa hann hjá okkur, því sjón
er sögu ríkari.
MAZDA ... mest seldi japanski bíllinn á íslandi í dag.
BÍLABORG HF.
Borgartúni 29 sími22680
6 VIKAN 10. TBL.