Vikan


Vikan - 10.03.1977, Side 48

Vikan - 10.03.1977, Side 48
Mig dreymdi DRAUMUR EITT, TVÖ OG ÞRJÚ Kæri draumráðandi! Ég sendi þér hérna þrjá drauma, sem mig hefur dreymt með stuttu millibili, og langar mig til þess að biðja þig að ráða þá fyrir mig. Sá fyrsti er þannig: Mér fannst ég vera ásamt frænku minni að stífa dúka fyrir mömmu mína og vorum við að því i gömlum og Ijótum kofa. Mér fannst þvottasnúrur hanga eftir kofanum endilöngum. Gekk ég inn á milli snúranna og tók þar bleikan náttkjól, sem mér fannst mamma eiga og makaði hann allan í stífelsi, svo að hann varð næsum því hvítur af því. I sömu mund fannst mér pabbi minn koma í dyragættina á kofanum, og fannst mér hann vera að rífast um eitthvað við mömmu. Vildi hann ekki, að hún léti okkur stífa fyrir sig. Ég vil taka það fram, að faðir minn er dáinn, og við vorum með hvít vaskaföt, sem við stífuðum uppúr. Annar draumurinn var á þessa leið: Mér fannst ég vera stödd í mínum gamla heimabæ og inni í bókabúð, sem var þar einu sinni, en er nú ekki lengur til. Mér fannst ég fara þangað inn með dóttur mína og spurði konu, sem mér fannst vera innanbúðar, hvort ég mætti ekki skipta um bleiu á dóttur minni. Játti konan því. Þá fannst mér sitja maður innan við búðarborðið, og var það maður, sem ég kannast aðeins við. Fannst mér hann vera algjörlega tann- laus, en þótti mér þó ekkert athugavert við það. Svo tók ég bleiuna af dóttur minni, og fannst mér þá vera í henni eggjaskurn, brotin í tvennt, en heil að öðru leyti. Þriðji draumurinn var svona: Mér fannst ég vera að fara í bíó með systur minni. Voru hjá henni tvær barnapíur, sem ætluðu að þvo upp, því að við voru að verða of seinar. Mér varð þá litið ofan í einn pottinn, og fannst mér hann vera illa þveginn, þannig að hvít mjólkurskán var innan í honum. Þekkti ég aðra barnapíuna, en hina ekki. Skyndilega var ég komin í bíó með manninum mínum, en ekki systur minni, eins og ég hafði ætlað. Fór ég í sjoppu í bíóinu og keypti brjóstsykurs- poka með grænum brjóstsykri. Svo fannst mér ég kaupa Ijós- bleikar pillur fyrir afganginn af peningunum, og tók ég þær allar inn, nema nokkrar, sem maðurinn minn tók. Við hlið mér stóð maður, sem ég þekki, (sá sami og sat inni í búðinni í öðrum draumnum), og var hann með einhver læti. Maðurinn minn var hálf óþolinmóður og rak á eftir mér, því að myndin var að byrja. Síðan vaknaði ég. Vonandi geturðu lesið eitthvað úr þessu og birt ráðninguna fyrir mig. Kærar þakkir fyrir ráðning- una. Holla. Fyrsti draumurinn er viövörun. Þú skalt ekki vera ofstolt og reyna að lita á annaö fólk sem jafningja þína. Í draumnum er einnig fyrir- boöi um hættu, og gæti hann jafnvel boðaö veikindi móður þinnar. Annar draumurinn er ekkert sér/ega merkilegur. Þó gæti hann táknað einhvers konar mannorösspjöll eða sviksemi. Siö- asti draumurinn er fyrir efnahags- legum erfiöteikum, þó ekki mjög alvarlegum. Einhverjir, sem þú umgengst, eru óhreintyndir í þinn garð og ekki þess viröi, aö þú treystir þeim. Friöur mun ríkja á heimili þínu í framtiðinni. LAGÐI TIL SUNDS Kæri draumráðandi! Mig langar aö biöja þig að ráöa þennan draum fyrir mig, en það er dálítið síöan mig dreymdi hann. Ég var stödd á einhverri eyju, þegar ég varð þess vör, að einhver hætta var yfirvofandi. Til þess að bjarga mér varð ég að synda yfir í aðra eyju, sem virtist bara vera sandfjallaeyja. Það synti lítil stelpa með mér, en ég man ekki nákvæmlega, hvernig hún leit út. Sjórinn var alls ekki kaldur og fremur tær. Á leiðinni bað ég stelpuna að geyma fyrir mig hringana mína, en þeir voru þrír. Einn silfurhringur með rauðgulum steini og tveir gullhringar með Ijósbláum steinum. Einnig var ég með snúru systur minnar, sem ég hafði tekið í leyfisleysi, en hún er með fjórum bláum steinum. Um leið og ég rétti stelpunni hringana duttu tveir eða þrír þeirra í sjóinn. Ég ætlaði þá að stinga mér á eftir þeim, en komst ekki og flaut bara. Ég hugsaði þá með mér, að þetta hefði verði mér mátulegt fyrir að hafa tekið hring systur minnar. Þá datt mér í hug, að þetta væri allt í lagi, því ég gæti bara leitað að hringunum í fjörunni. i draumnum fannst mér, að þá myndi reka þangað. Því næst var ég stödd í einhverjum kaupstað, og fór ég þar niður í fjöru til þess að leita að hringunum. Það kom hins vegar aldrei fram, hvort ég fann þá. S.E. Þessi draumur er fyrir þvi, aö þú munt missa vináttu einhvers, sem er þér kærkominn. Viröist mér af draumnum sem þessi vinamissir sé aö mestu leyti þln eigin sök. Ekki er þó a/lt sem sýnist og gæti því átt sér staö, að þú sættist aftur við viðkomandi persónu. Draum- urinn bendir einnig ti/ heppni í viðskiptamálum, einkum og sér í lagi, ef stór fyrirtæki eiga í h/ut. BARNSFÆÐING Kæri draumráðandi! Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig draum, sem mig dreymdi fyrir skömmu. Ég var stödd á sjúkrahúsi hjá vinkonu minni, sem var að fæða barn. (Hún er 14 ára). Læknirinn var mjög skrítinn, lítill, feitur, með mikið skegg og skellihlæjandi. Hann kom til mín, en var þá með tvö börn og sýndi mér þau. Allt í einu var ég komin inn á sjúkrastofu og var að sópa þar gólfið. Vinkona mín lá þar, en þegar hún sá mig, stóð hún á fætur og fór með mér fram til þess að sýna mér börnin. Þetta voru strákar, og var hún búin að skíra þá. Ég fór svo út og niður í bæ til þess að kaupa gjafir handa þeim, en var þá skyndilega stödd í æskulýðsheimilinu. Þar hitti ég strákinn, sem ég vissi, að átti börnin, og sagði ég honum frá þeim. Hann varð mjög glaður og hljóp upp um hálsinn á eftirlits- manninum í æskulýðsheimilinu og sagði honum frá þessu. Einnig dreymdi mig mikið þessa nótt einhvern geðveikan mann. Draumurinn var ekki lengri, og vona ég, að þú getir ráðið hann fyrir mig. Með fyrirfram þökk. D.G. Þessi draumur boöar þér bætta lífsstöðu, sem þó mun reynast þér óhei/lavænleg að einhverju leyti. Bráðlega munt þú bæta fyrir eitthvað, sem þú hefur gert. Gifting þín mun vera skammt undan. Skiptu þér ekki af málefnum annarra fyrst um sinn. LÍK Kæridraumráðandi! Mig dreymdi, að ég var heima hjá mér, inni í stofu, og á sófa- borðinu var lík af konu. Utan um líkið var grátt efni. Mér fannst ég vera að gæta líksins fyrir mann, sem heitir Ársæll. Ég var að hugsa um að fá fimm þúsund krónur fyrir að gæta líksins, en ég er mjög peningalítil. Þá komu maður og kona, og áttu þau að taka líkið. Er þau lyftu því upp af borðinu, voru tveir vatnspollar eftir. Fóru þau síðan með líkið út í venjulegan fólksbíl, en enga peninga fékk ég. Vaknaði ég síðan við hina megnustu nálykt. Með fyrirfram þökk og von um ráðningu, Ástrós. Þú munt fá fréttir af manni, sem er hættulega veikur. Áhyggjur þinar munu aukast á næstunni, og ættir þú helst aö reyna aö taka Hfinu meö ró. Nályktin er feigðar- boöi, en ekki verður þaö séö af draumnum, hvers feigö hún boðar. 48 VIKAN 10. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.