Vikan - 10.03.1977, Blaðsíða 17
eyða flestum kvöldum á danshús-
um?
— Nei, ekki mjög, enda leikum
við aðallega á árshátíðum og
sjáum alltaf ný og ný andlit, og
það er tilbreyting í því.
— Annars er ekki óalgengt, að
aðrir líti á starf í hljómsveit sem
skemmtun en ekki vinnu, segir
Oddrún. Ég var til dæmis oft
spurð, þegar Stefán vann ein-
— Þaö er aldrei hægt aö koma í
veg fyrir óreg/u i h/jómsveitar-
bransanum, en ég hafði vit á því
aö standast freistingarnar eftir
megni til að heltast ekki úr lestinni
göngu við sönginn: ,,En hvar
vinnur hann þá?"
Gunnar, 12 ára sonur Stefáns,
fylgist spenntur með dægurlög-
um, en þegar hann er spurður,
hvernig honum líki aö eiga pabba,
sem syngur vinsælasta lagið
meðal jafnaldra hans, segir hann,
að það sé ekkert gaman, því að
margir eigi til að stríða sér. —
Sumir snúa sér við og syngja
Ölsen-Ólsen á eftir mér.
Svandís dóttir Stefáns, sem er
14 ára, segist alveg hafa farið í
kerfi eitt skiptiö I dansskólanum,
þegar danskennarinn spurði hana,
hvort henni væri ekki sama, þótt
leikið yrði lag af plötunni.
OFT ÆTLAÐ AÐ HÆTTA
— Hvað gerið þið í frístundum?
— Það er nú lltill tími fyrir mig,
segir Stefán. Ég vinn við af-
greiðslustörf í Ræsi hf. og syng á
kvöldin, svo að það eina sem ég
geri raunverulega í frístundum,
sem eru mjög fáar, er að horfa á
sjónvarpiö. Ég hef oft ætlað mér
að hætta að syngja, en einhvern-
veginn verður aldrei neitt úr því.
Enda kann ég í raun og veru betur
við mig í hljómsveit núna en í
gamla daga, kannski vegna þess
að ég tek það ekki eins hátíðlega
og þá.
— Er önnur plata í bígerð hjá
Lúdó?
— Já, reyndar, en hvenær hún
kemur út eða hvernig hún verður
get ég ekkert sagt um núna. Það
kemur allt í Ijós. Á.K.
CLINT
EASTWOOD Á
AÐ LEIKA
MILJÓNA-
MÆRINGINN
HOWARD
HUGHES
FYRRVER-
ANDI EIGIN-
KONA
HUGHES,
TERRY
MOORE,
FJÁRMAGN-
AR FYRIR-
TÆKIÐ.
Clint Eastwood fær hér skemmti-
legt hlutverk.
Flest ykkar hafa heyrt talað um
margmiljónerann Howard Hug-
es, sem nýlega er látinn. Um
hann hafa spunnist margskonar
sögusagnir, sem erfitt er að
henda reiður á, vegna þess að
hann lokaði sig af síöari ár ævi
sinnar og umgekkst ekki nema
fáeina útvalda. Hann var kvænt-
ur fimm sinnum og hafði síðar
ekki samband við fyrrverandi
konur sínar, m.a. af því að hann
var haldinn ótrúlegri hræðslu við
bakteríur og vírusa.
Nú hefur fyrrverandi /'eigin-
kona hans, Terry Moore ákveðið
að láta gera kvikmynd um ævi
hans og það er leikarinn Clint
Eastwood, sem á að leika
Hughes.
Hann hvarf af vettvangi árið
1955, og eftir það vissi enginn
með vissu hvar hann hélt sig,
sumir sögöu I Mexíkó og aðrir
sögðu f Alaska.
Howard Hughes á slnum yngri
árum áður en hann hvarf sjónum
manna.
Hughes var á unga aldri
myndarlegur, ríkur og ágætlega
gefinn. Hann var sonur olíu-
spekúlants í Texas og allt sem
Hughes kom nálægt færði
honum peninga. Hann átti flug-
félagið TWA, þar til hann seldi
það fyrir tíu árum. Hann átti
sjónvarpsstöðvar og kvikmynda-
ver. Stúlkurnar voru allt í
kringum hann.
Snúum okkur nú að leikar-
anum Clint Eastwood. Hann lék í
fjölda sjónvarpsleikrita, en fékk
aldrei aðalhlutverk. Einn góðan
veðurdag datt ítölum það snjall-
ræði í hug að hefja framleiðslu á
kúrekamyndum, og þá varð Clint
Eastwood fyrir valinu sem aðal-
hetjan. Ameríkanar áttuðu sig
senn á því, að þarna var á
ferðinni stórstjarna, sem þeim
hafði yfirsést. Þegar hann kom
aftur heim fékk hann hlutverk í
myndum á borð við 4,Arnar-
hreiðrið" og ,,Hinn friðlausi."
Hann segir um þetta nýja
hlutverk: ,,Þetta er allt öðru vísi
hlutverk en ég hef áður fengist
við, en ég hef litlar áhyggjur af
því — það ætlast til þess af
leikurum að þeir geti brugðið sér
í allra líki."
Clint Eastwood er heilbrigður
maður með báða fætur á jörð-
inni. Hann hefur öfugt við
Hughes látið sér nægja að
kvænast einni konu og hjóna-
bandið er farsælt. Um frægðina
hefur hann þetta að segja:
— Ég hef notið lífsins í ríkum
mæli og hef enga ástæðu til að
láta frægðina stíga mér til
höfuðs. Ég gleðst að sjálfsögðu
yfir velgengni, en ég veit að
dæmið getur snögglega snúist
við og ég hef átt mínar erfiðu
stundir eins og aðrir.
10. TBL.VIKAN 17