Vikan


Vikan - 10.03.1977, Blaðsíða 43

Vikan - 10.03.1977, Blaðsíða 43
g alltaf Islands VIÐTAL VIÐ SNORRA SNORRASON FLUGSTJÖRA. BOEINC 727 Anton Axelsson, sem dreif mig í „sólo 7. sept. 1946, hann var þá kennari skólans og var alltaf jafn bjartsýnn, jákvæður og hvetjandi. Þetta fannst mér mikill dagur, en flugvélin var Tiger Moch TFKBD.Ég var ekki nema sextán ára og varð því að fá undanbágu. Ég held ég hafi verið sá fyrsti, sem fékk það. Síðan var ég í skóla á Akureyri veturinn '46-47, en flutti þá suður. Atvinnuprófinu lauk ég 1950. Kennarar mínir voru tveir miklir heiðursmenn, sem nú eru báðir látnir, þeir Jón Jónsson og Sverrir Jónsson. Þeir voru flug- stjórar hjá Flugfélagi íslands í fjölda ára. Blindfluginu lauk ég 1951 lika hér heima og var sá fyrsti sem lauk þvi hér, m.ö.o. allt mitt flugnám var hér. Þegar ég hætti hjá Cumulus haustið 1947, fór ég að vinna sem hlaðmaður hjá Flugfélag- inu, og þar hef ég unnið síðan. Sumarið 1950 fékk ég aðstoðar- flugmannsréttindi á Douglas DC 3 og flaug í afleysingum það sumar, eins svolítið 1951, en var svo fastráðinn sem flugmaður 1. maí 1952. Þá byrjaði alvaran og hinu langþráða takmarki var náð. Ég var svo aðstoðarflugmaður i tvö ár, en varð síðan flugstjóri á Douglas vélunum vorið 1954. Þær voru alveg dásamlegar og margar minn- ingar erum þeim tengdar, bæði ljúfar og hasarkenndar, þegar vetrarveðrið var að gera okkur lífið erfitt hér í innanlandsfluginu. Ég Þegar Snorri var í innanlands- fluginu, tók hann mikið af mynd- um. Á þessari mynd hefur Snorri samflot við DC3 vél frá Flug- félaginu. held að skemmtilegasta flugið á þessum árum hafi verið fyrir Landhelgisgæsluna. Það var eilíft lágflug að eltast við togara. Sérstaklega þó haustið 1958, þegar fært var út í 12 mílur. En leiðin Klaustur, Fagurhólsmýri og Horna- fjörður voru mínar eftirlætis flug- ferðir, á þessum stöðum kynntist ég líka öndvegis fólki, sem er enn mínir bestu vinir. — Nú er oft talað um að islenskir flugmenn séu þeir allra færustu i heimi, er þetta satt? — Þetta er eins og hvert annað kjaftæði. Hins vegar skal ég segja þér, að innanlandsflugið hér er harður skóli og óvæginn, þar reynir Akureyrar, þá er það skemmtileg. asta leiðin, sem ég flýg á þotunni. — Varstu aldrei hræddur um að vélinni yrði rænt, og þér sagt að fljúga til Kúbu eða á einhvern álíka stað, þegar mest gekk á í sambandi við flugræningja og sprengjur? - Nei, en tilhugsunin er auðvitað ekki skemmtileg. Mér var verst við að slíkt myndi geta tafið mann eða teppt einhversstaðar úti í löndum. — Vilt þú hvetja unga menn til að læra flug sem atvinnugrein? — Nei, það held ég ekki. Samkeppnin um lausar stöður hjá flugfélögunum er mikil. Þetta er óregluleg vinna, og seinni árin orðin hálf sálarlaus. — Ef þú mættir velja þér flugvél til þess að fljúga á i tvo tima, hver yrði fyrir valinu? — Tvimælalaust Douglas DC 3. A.B. námskeiði hjá Boeing í mars '71. Mannskapurinn er talið frá vinstri, Ingibergur vélstjóri, ó- nefndur bandarikjamaður, Stefán Jónsson vélstjóri, Yngling kennari, Jón Ragnar flugstjóri og sjálfur kappinn Snorri Snorrason. að fljúga þessum fullkomnu þotum, eða þeim vélum, sem þú varst á i byrjun? — Já, það er eins og dagur og nótt. Þessar þotur, sem við erum með núna, eru þær bestu, sem völ er á, enda eru Boeing verksmiðjurnar stanslaust að framleiða þessa tegund og hafa ekki undan. Ég held, að þegar séu nálægt eitt þúsund og fjögur hundruð 727 þotur til, og allar í notkun. — Hvenær byrjaðir þú að læra að fljúga? — Ég byrjaði 1946. Ég hafði átt heima á Akureyri og var alinn upp þar. Ég fylgdist mikið með fluginu hjá hernum á striðsárunum. Það gláptu allir strákar á þessar orrustuflugvélar, svo ég tali nú ekki um í þau skipti, þegar þjóðverjarnir komu á Junkers 88. Þá voru allir reknir inn, en ég skaust gjarnan út með kíki. — Jóhannes bróðir minn, Magn- ús Guðmundsson og Smári Karls- son, allir flugstjórar hjá Flugfélag- inu, stofnuðu flugskólann Cumulus og ég fékk vinnu hjá þeim sumarið 1946 við að setja bensín á kennsluvélarnar og sitthvað fleira, og þetta átti svo sannarlega vel við mig. Það var nú reyndar vinur minn miklu meira á hæfni og dómgreind flugstjórans en i öllu öðru flugi, sem ég hef starfað við. Þeim, sem búnir eru að „pæla” hér innanlands, veitist létt að fljúga öðrum flugvél- um, t.d. milli landa. — Var ekki miklu meira álag á flugmönnum, þegar þú varst að byrja, heldur en núna? — Jú, ég held það. Þar kemur svo margt til. Flugvélarnar voru svo miklu ófullkomnari á ýmsan hátt, og svo voru hjálpartæki á jörðu niðri fá og léleg. Oftast var þá flogið sjónflug undir skýjum. Grænlands- flugið, sem við vorum mikið í. var líka erfitt. Stundum þurftum við að klifra Skymaster vélunum upp í 16000 fet yfir jökulinn. til þess að geta verið ofar skýjum, þá vorum við með súrefnisgrímur. — Hvert finnst þér mest gaman að fljúga? — Ef ég á þess kost að fara til 10. TBL. VIK.AN 43
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.