Vikan - 10.03.1977, Qupperneq 10
PÓSTlRim
GEFM UPP Á MILLI BARNA
Kæri Póstur!
Mig langar að leita ráða hjá þér.
Ég á þrjú eldri systkini og eitt yngra,
og mér finnst pabbi og mamma
gera upp á milli okkar. Til dæmis
finnst mér mamma og eldri systir
mín eiga mjög vel saman, þær eru
alltaf að tala eitthvað saman, en
mamma virðist engan áhuga hafa á
mér. Hún hjálpar systur minni oft
með heimanám, en segir, að ég geti
bara lært sjálf. Þegar ég segi, að
mérfinnisthúnalveg einsgetatalað
við mig og að hún geri upp á milli
okkar, þá verður hún vara vond og
segir, að það sé bölvað bull í mér.
Mérþykirvænt um mömmu, og ég
vilgetatalaðviðhana. Hvaðáégað
gera? Hvernig er skriftin?
Lina
Langf/estum hefur einhvern tíma
fundist þeir hafðir útundan, þegar
þeir voru börn, ekki síst þeir, sem
aldireru upp í stórum systkinahópi.
Yfir/eitterþað á misskilningi byggt,
þvi það er í rauninni ákafiega
sjaidgæft, að foreidrar geri upp á
millibarna sinna. Hitt er annað mái,
að þeir geta átt fleira sameiginlegt
meðeinubarnienöðru, oghvaðþig
snertir, ermálið áreiðanlega þannig
vaxið, að systir þín og móðir eiga
fleira sameiginlegt eins og er. Þegar
þú verðureldri, kemur röðin eflaust
að þér. Þú ert ákaflega ung ennþá,
en þú getur huggað þig við, að
flestir hafa orðið að ganga i gegnum
svipað og þú. Ég he/d þú ættir bara
að trúa mömmu þinni, þegar hún
segir, að þetta sé bull I þér. Skriftin
er jöfn og falleg.
SAGÐI HONUM UPP
Elsku Póstur!
Ég skrifa þér, af því nú er ég í
ferlegum vandræðum. Ég var með
strákiáföstu ídálítinntíma ísumar,
ensvosagðiéghonumupp. Núveit
égeiginlegaekkiafhverju, þvíégsé
alveg ferlega eftir honum. Ég veit
bara ekki, hvað ég á að gera til að ná
í hann aftur. Hann er nefnilega
kominn á fast með annarri stelpu,
en ég held kannski, að hann sé
ennþáeitthvaðhrifinnaf mér. Hvað
finnst þér ég geta gert? Hvernig
eiga saman hrútur (stelpa) og
steingeit (strákur)? Hjálp!
Eva
Það verðurannað hvort himnaríki
eðahelvíti, allteftirþví, hvernigþér
gengurað brjóta odd af oflæti þínu,
segir í stjörnuspá ástarinnar um
samband hrúts og steingeitar. Mér
er hins vegar vandi á höndum að
ráðleggja þér eitt eða neitt I
sambandi við þennan strák. Ertu
svo a/veg viss um, að þú sért hrifin
af honum? Getur ekki hugsast, að
þú hafir bara orðið svolítið
afbrýðisöm, þegar hann náði sér
fljótlega í aðra, eftir að þú sagðir
honum upp? Reyndu bara að snúa
huga þínum eitthvert annað.
ÓREGLULEGAR BLÆÐINGAR
Kæri Póstur!
Þakka þér fyrir allt gamalt og
gott. Mér finnst margt gott í
Vikunni, en nú er eiginlega ekki
orðinn nokkur friður með hana fyrir
krökkunum, síðan öll heilabrotin
komu.
Jæja, en ég ætlaði nú að spyrja
þig að svolitlu, sem ég hef ekki
þorað að reyna að komast að
annars staðar. Ég er orðin þrettán
ára, og allar mínar vinkonur eru
byrjaðar á túr fyrir löngu. Ég fékk
blæðingar í fyrsta skipti á ágúst og
svo ekki aftur fyrr en um áramótin.
Geta svona ungar stelpur fengið
krabbamein í leg? Hvernig er
skriftin?
S.S.P.
B/æðingar eru oft mjög óreglu-
legar hjá stúlkum í fyrstu, og hjá
mörgum kemst ekki regla á þær,
fyrr en þær hafa fengið /æknis-
aðstoð. Hins vegar held ég það sé
engin ástæða til þess fyrir þig að
leita læknis, nema þú hafir þrautir
eða óeðlilega útferð. Hikaðu þó
aldrei við að leita læknis, ef þú ert
eitthvað kvíðafuH. Það er ástæðu-
laust fyrirþig að óttast krabbamein,
þótt mér detti ekki í hug að taka
fyrir, að allt getur gerst I þeim
efnum. Skriftin er gjörsamlega
ómótuð ennþá.
10 VIKAN 10. TBL.