Vikan - 10.03.1977, Page 16
— Þaö kom nú ekki til af góðu.
Á meöan við lékum í Storkklúbb-
num fengum við opinbert bréf,
þar sem okkur var tilkynnt, að
silfurmunaverksmiðja í Reykjavík,
sem bæri heitið Plútó, hefði
einkarétt á þessu nafni. Við urðum
alveg standandi hissa, þar sem
okkur hafði skilist, að hljómsveitir
hefðu leyfi til að taka sér hvaða
heiti sem væri, án þess að nokkur
amaðist við því. Við vorum því
engan veginn sáttir við að þurfa
að breyta nafninu, en ákváðum að
skrifa Plúdó í staðinn fyrir Plútó til
þess að koma til móts við ósk
silfurmunaverksmiðjunnar. En það
var engan veginn samþykkt, og
þegar við héldum áfram að
auglýsa okkur sem Plúdó, var
okkur stefnt og málið tekið fyrir
hjá hæstarétti. Við urðum að láta í
minni pokann og vorum dæmdir
til að leggja Plúdónafnið niður og
borga málskostnað. Plúdó var
ekki tekið til greina á þeim
forsendum, að linmælgi væri of
útbreidd til þess að greina mætti
mun á Plútó og Plúdó í talmáli. Þá
breyttum við nafninu i Lúdó.
Stuttu eftir þetta vorum við ráðnir
til að leika í Þórskaffi og vorum
Lúdó-sextett í 6 ár, eða til ársins
1967.
ÞURFTI FORSETALEYFI
Fylgdi því ekki óregla að
starfa í hljómsveitum í gamla
daga?
Jú. það er aldrei hægt að
koma í veg fyrir óreglu í hljóm-
sveitarbransanum, en ég hafði vit
á því að standast freistingarnar eftir
megni til þess að heltast ekki úr
lestinni. Ég gifti mig líka snemma,
eða á meðan ég söng í Þórskaffi,
og þá tók alvaran við.
— Þá var ég bara 19 ára, en
hann tvítugur, bætir kona Stefáns
við, enda þurfti hann forsetaleyfi
til að ganga í það heilaga.
— Flvað tók við, eftir að þú
hættir að syngja með Lúdó?
— Þá slóst ég í lið með sextett
Jóns Sigurðssonar um tíma, en
1971 bauð Elfar Berg mér að
syngja með hljómsveit sinni á
Keflavíkurvelli, og ég þáði það.
Árið 1972 var nafni hljómsveitar
hans breytt í Robots, þar sem við
lékum eingöngu á Vellinum. Þar
söng ég, þangað til ég sameinað-
ist Lúdó á ný. Áður en ég gerði
það höfðu gömlu Lúdó-Plútó
félagarnir leikið um skeið í
Átthagasal Hótel Sögu undir
nafninu Þyrnar, sem við lögðum
niður fljótlega og tókum upp
gamla nafnið Lúdó og Stefán.
FLESTIR VILJA
FLJÓTLÆRÐ LÖG
— Hvað heldur þú, að hafi
orsakað vinsældir plötunnar?
- Ég held, að flestir vilji hlusta
á einföld og fljótlærð lög, þegar
þeir eru að skemmta sér, svo að
vinsældir plötunnar hljóta að liggja
í einfaldleik laganna.
Lögðuð þið mikla vinnu i
þessa plötu?
- Nei, ekki gerðum við það nú,
enda er starfið í hljómsveitinni
aukastarf hjá okkur öllum, og þess
vegna gafst lítill tími til æfinga.
- Ertu ekki orðinn þreyttur á að
LÚDÓ OG STEFÁN
LÚDÓ OGSTEFÁN
ÚTI
ÁT.IÁX ÞO | ti/vLLÓ I
KáiiiiAK i:i= i?o '/mm\
l'ÓSII' ÉG ER GLATAOUR ÁN ÞIN
GLMMI 0G eílT/IRIíMM j BLÁBERJA -
GULUO Á RAUFARHÖFN LAUT
NC/LTLODID I GDJIDA
SG-hljómplötur óska Lúdó og Stefáni til
hamingju með vinsælustu og söluhæstu hljóm-
plötuna, sem út kom með íslenzkri
danshljómsveit árið 1976.
Athygli hinn fjölmörgu aðdáenda Lúdó og
Stefáns um land allt, er vakin á því, að önnur
plata er í undirbúningi með enn fleiri
skemmtilegum lögum og góðum íslenzkum
textum.
SG-hljómplötur
16 VIKAN 10. TBL.