Vikan


Vikan - 10.03.1977, Page 41

Vikan - 10.03.1977, Page 41
Hann beið eftir svari, en þetta „elskan mín” var ekki annað en uppgerð. Hann sagði elskan mín við svo margt annað fólk. Reiðin sauð í mér, vegna þess að hann virtist enn líta svo á, að ég væri sami grænjaxlinn og hann hafði verið trúlofaður, ófær um að standa á eigin fótum. ,,Ja, ég veit ekki”, sagði ég í bliðum hæðnistón. ,,Mér finnst húsið vel staðsett og ég kann því alls ekki illa að vera ein. Kannski ég komi til með að búa þarna.” Það varð algjör þögn, en svo heyrði ég, að hann dró djúpt að sér andann. Ég sá fyrir mér útitekið andlit Michaels, munnurinn opinn til hálfs, augun uppglennt. ,,Þú...þú ert þá búin að skoða það?” sagði hann. „Vitaskuld.” „Hver fór með þér?” „Enginn.” Aftur varð þögn en svo sagði ég: „Mér er ekki ljós tilgangur þinn með þessu öllu saman, en þakka þér engu að síður fyrir. Hins vegar er ég hrædd um, að þú verðir að segja þessum væntanlega kaupanda, að ég ætli mér ekki að selja.” Michael hló og þegar ég heyrði þennan nærgöngula hlátur kom á mig fát. „Það er bara svona,” sagði hann, en bætti svo við. „Eigum við ekki að borða hádegisverð saman á morgun, Alexa? Við Marsalforn- flóa, sem er hinum megin á eyjunni, er hótel og þar framreiða þeir ágætan mat. Gerðu það segðu já.” Rapa lögregluforingi hafði sagt mér, að bátur föður míns væri geymdur við Marsalfornflóa. Ég fór að hugsa um, hvort Michael vissi þetta. Mér til sárra leiðinda bar rödd mín vott um, að ég var hikandi. . „Ég veit eiginlega ekki”, sagði ég. „Bara svona til þess að hreinsa andrúmsloftiðð,” sagði Michael .„svo að ég viti, að þú sért búin að fyrirgefa mér.” „Jæja, segjum það þá,” sagðiég. „Gott. Ég hringi þá til þín. Eigum við að segja klukkan tólf?” Ég hafði það á tilfinningunni, að ég væri að fara of mjúkum höndum um brenninetlu og myndi stinga mig. „Allti lagi,” sagðiég, „ogþakka þér fyrir”. Fyrir hvað var ég eiginlega að þakka þessum fyrrverandi unnusta minum? Þetta hugsaði ég um leið og ég fór aftur að borðinu. Enn einu sinni hafði ég gefið honum tækifæri til þess að valda mér ástarsorg. Það hlaut að vera eitthvað athugavert við mig. Ég tók aftur til við matinn minn, en tók um leið eftir því, að hr. Stark var farinn að hnakkrífast við Randal. Ég þóttist hins vegar ekki sjá þetta og dreypti á víninu. Fyrir konu, sem er ein á hóteli, er matmálstíminn heldur leiðinlegur. Um leið og ég var búin að borða, flýtti ég mér út á veröndina og ætlaði að panta kaffið mitt þangað. Ekki veit ég, hversu lengi ég hafði setið þarna og látið mig dreyma, er maður sagði gott kvöld við mig. Við borðið mitt stóð stæðilegur, velklæddur maður. Hr. Stark var þrátt fyrir allt eini karlmaðurinn, sem var einn á báti þarna á hótelinu, og ég var eina konan. Það var því ekkert ein- kennilegt, að hann skyldi reyna að nálgast mig, en mig undraði, hversu fljótt kom að því. Framhald í næsta blaði. /* Electrolux aj ÞVOTTAVÉL Verð kr. 166.000 Við bjóðum hagstæð greiðslukjör þ.e. útborgun kr. 66.000 og eftirstöðvar greiðist á sjö mánuðum. Vélin tekur 5 kg. af þurrum þvotti. Vinduhraði 520 snún/min. ..^ VfTTVATT + FÖftTvÍtT m •VltTVÁri '&l KUW>«TVÁTT KUIÖRTVÁÍT 1 EXTftA rÖHTVÁTT t CXTttA SÁÖUNING 9 CJQ VUETVÁTT Vio? t----ðOÍ SVNTET - f(NTVÁn K*Sl C SYftmtvÁTT XSff t--- C 5 J — C£«tAiru«fMNC c ARMULA A lO.TBL.VIKAN 41

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.