Vikan - 26.05.1977, Síða 5
iders Tuxen skrifar
rengi meðal?
Það er líka ágætt aö nota áfengi
handa eldra fólki til að víkka
æðarnar, þær hafa tilhneigingu til
að verða stífar og 'kalka með
aldrinum. Æðakölkun kemur með-
al annars fram í því, að manni er
kalt um hendur og fætur, og þá
getur vínsopi haft þau áhrif að
víkka út æðarnar, að minnsta
kosti í húðinni, þannig að hún
verður heit og rauð og það gerir
gott.
Skoðanir eru skiftar um áhrif
áfengis á sjálfar hjartaæðarnar
með tilliti til kransæðaverkja, sem
margir eldri menn fá, sérstaklega
þegar kalt er á vetrum. Sumir
segja, að einn sopi af áfengi geri
gagn við þeim — aðrir þverneita.
En eitt eru menn þó sammála um:
Hófleg notkun áfengis skaðar ekki
hjartað.
Eins eru skiptar skoðanir á þvi.
hvort raunverulega gagni nokkuð
að fá sér sterkan drykk, þegar
maður verður kvefaður eða fær
flensu. Það er svolítil huggun í
eymdinni — að minnsta kosti gerir
það engum mein.
Áfengi er líka notað útvortis
sem bakteríudrepandi meðal.
Hreint áfengi er ekki gott, eða spíri
eins og það er kallað (100%) Það
þarf að þynna það í 70%, og þá er
það ekki sérlega árangursríkt. Það
er meira af vana en nauðsyn, sem
húðin er þvegin með spritti, áður
en sprautaö er í fólk.
Undir vissum kringumstæðum
má ekki nota áfengi, eins og gildir
um öll læknislyf: Þeir sem eiga við
vandamál ofdrykkju að stríða, eiga
að ganga í stórum sveig fram hjá
áfengi. Einn sopi getur komið
miklu illu af stað. Sama gildir um
ýmsa lifrarsjúklinga, þar sem
áfengi er á bannlista.
Við hvaða tækifæri á að nota
áfengi? Ja, þau er mörg, en það er
upplagt, þegar komið er heim eftir
amstur dagsins. Það er eins og
tíðkast í hitabeltinu: Ekki drekka á
daginn, en þegar sólin er gengin til
viðar, er tilvalið að fá sér sól-
setursdrykk. Þá er ágætt tækifæri
að fá sér eitt glas með maka sínum
og spjalla um viðburði dagsins,
stóra og smáa. Á þennan hátt
njótum við þeirra áhrifa, sem
áfengi veitir sem róandi meðal,
það veitir hvíld og skapar notalegt
andrúmsloft, auk þess örvar þaö
góða lyst á kvöldmatnum. En í
þessum efnum sem fleiri verða
menn þó að finna sínar eigin leiðir
og ákveða, hvað þeim sjálfum
finnst eiga við.
★
— Mér hefur verið boðið sæti í
björgunarbáti skipstjórans.
— Við erum allir sammála um að
þessar samlokur voru óætar!
21. TBL.VIKAN 5