Vikan


Vikan - 26.05.1977, Side 18

Vikan - 26.05.1977, Side 18
HROLLVEKJANDINÝ FRAMHALDSSAGA EFTIR SHEILU HOLLAND 3. HLUTI Kölski & Caroline Þau hrukku við, er eitthvert þrusk heyrðist. Frá eikarstiganum í hominu barst hljóð af hægu og varfæmu fótataki. Fætur komu í ljós. Hún hafði háð erfiða baráttu við að útrýma Nick úr huga sér, reynt að slíta öll tilfinninga- tengsl við hann. Hvernig dirfðist hann að hertaka svona hug hennar aftur? Og hvernig gat hún verið svona heimsk að leyfa honum það. Hún bylti sér fram og aftur í rúminu. En það var fleira, sem hvíldi á hug hennar. Þessi heimsku- lega ímyndun hennar með munkana í klausturgarðinum, einhvern veg- inn skaut hugsuninni um þá aftur og aftur. Af hverju höfðu bæði djákninn og Tony brugðist svona einkennilega við þessu? Og hvað var allt þetta með Guillaume ábóta og djöflatrúna? Hún hafði lesið allt, sem hún hafði getað náð í um Haidansbury, og hvergi var minnst á neitt slikt. En samt hafði Tony fundið það einhvers staðar. Hún ætlaði að athuga á morgun, hvort Nick hefði nokkra bók með sögusögnum frá Haidansbury. Næsta morgun var hún önnum kafin við vinnu sína i dómkirkjunni. Eftir hádegisverð gekk hún ósjálf- rátt í átt að bókabúð Nicks. Framherbergi búðarinnar var mannlaust. Hillurnar voru fullar af gömlum klassiskum verkum í leðurbindum. það glampaði á gljá- fægt gólfið i sólinni. Það lyktaði af ryki. Hún gekk áfram inn i litið innra herbergi, og þar var hann. ,,Nick,” sagði hún lágt. ,,Nick, mig vantar bók um sögu dómkirkj- unnar. Ekki samt neitt svona formlegt, heldur eitthvað um sögu- sagnir frá Haidansbury, eða eigin- lega kjaftasögur frá gamalli tíð. Heldurðu, að þú hafir eitthvað svoleiðis?” ,,Við skulum sjá,” sagði hann í sínum viðskiptatóni. Hann gekk að einni hillunni, og eftir dálitla íhugun kom hann með nokkur gömul bindi. „Þetta er saga Henrys Campion, Útgefin 1800. Það gæti verið eitthvað þar.” Hún tók eitt bindið og leit yfir efnisyfirlitið. Hann sagði lágum rómi: ,,Svo þú ætlar að koma í kvöld.” ,,Já.” ,,Þú sýnir mikið hugrekki.” ,,Það er fallega gert af Laurel að bjóða mér.” Hún leit á hann, sá háðslegt bros hans og sagði fljótmælt: „Hvað segirðu mér af Suzanne? Mig minnir, að hún hafi verið í heimavistarskóla, þegar..” Augu þeirra mættust. „Já,” sagði hann. „Haltu áfram. Þegar hvað?” Andstutt sagði hún: „Hvað er Suzanne orðin gömul?” N ICK hló. „Þú ert huglaus.” Síðan bætti hann við: „Suzanne er orðin sextán ára. Hún var rekin úr heimavistarskólanum fyrir að strjúka þaðan í sífellu. Hún vinnur núna í gestamóttöku á hóteli.” „Og bara sextán ára? Er hún ekki full ung?” „O, hún vinnur ekki ein. Hótel- stjórinn hefur eftirlit með henni.” Hann nuddaði hugsandi hökuna. „Suzanne er ekki sú manngerð, sem vinnuveitendur eru áfjáðir í að ráða.” „Nú, hvers vegna ekki?” „Þú sérð það ef til vill sjálf í kvöld.” Caroline fór aftur að blaða i sögu Campions. Textinn var prentaður með smáu letri, og hingað og þangað voru fallegar teikningar. Hún tók sérstaklega eftir einni. Hún leit á hana aftur og saup hveljur. „Hvað fannstu?” „Bara teikningu af einum af iðrunartáknunum úr dómkirkjunni. Þú veist, þau eru á litlu syllunum aftan á bekkjunum, sem munkarnir krupu á við guðsþjónustur.” „Já, min kæra, ég er ekki algjörlega úti að aka, hvað við- kemur kirkjubyggingum.” Hin óvænta bliða í rödd hans fór ekki fram hjá henni. „Jæja, þú veist þá, að bekkirnir voru oft útskornir með smámynd- um af dýrum og atvikum úr sveitalifinu, og vegna þess hve myndir þessar sáust lítið, gætti oft mikils hugmyndaflugs hjá lista- mönnunum. Ég hef að sjálfsögðu kynnt mér þessa útskurði af bókum, en er ekki búin að skoða þá i sjálfri kirkjunni. En þessi... ég hafði bara ekki gert mér grein fyrir, hve mjög hann minnir mig á....á..” „Á hvað? Leyfðu mér að sjá.” „Þegar ég var ein i klausturgarð- inum, kvöldið sem ég kom,” sagði Caroline hraðmælt, „fannst mér ég sjá fylkingu munka i bogagöngun- um. Þetta var auðvitað bara ímyndun min, en þetta er svo likt því...” N ICK horfði á teikninguna. Hún sýndi útskorna röð munka. Sá fremsti bar kross. Krossinn var á hvolfi. „Hefurðu tekið eftir krossinum?” spurði hann. „Já.” „Var líka kross í þessari sýn þinni?” „Já, en — „Á hvolfi?” „Nei, nei. Ég er alveg viss um, að hann sneri rétt. Ég hlyti að hafa tekið eftir því, ef svo hefði ekki verið.” „Þú veist, hvað kross á hvolfi táknar, er það ekki? Þú veist, að það mundi þýða, að þeir stunduðu svartagaldur.” „Auðvitað veit ég það.” Hinn skyndilegi taugaóstyrkur hennar gerði hana snögga upp á lagið. 18VIKAN 21. TBL.

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.