Vikan


Vikan - 26.05.1977, Page 14

Vikan - 26.05.1977, Page 14
Kynhvötin er gmnntónn mannlífsins , ,Hvenær / sem mér finnst að syrti að / nálægð þín lagar það / þannig ert þú og hvenær / sem ég gleðst og uni mér þá er ég nálægt þér / þannig ert þú/’ Ég fann þessar línur í lítilli textabók, sem fylgir plötunni, ,Mannlíf,” sem Jóhann G. Jóhannsson gaf út seint á síðasta ári. Og því set ég þær hér, að mér finnst þær geta staðið sem einkunnarorð fyrir það, sem Jóhann G. vill gjama segja með lögum sínum og ljóðum. Mannleg samskipti eru honum hugleikið umhugsunarefni, og hann vill gjama leggja sitt af mörkum til betri samskipta mannanna. Ég heimsótti Jóhann G., þar sem hann býr í Kópavoginum, þar sem hann semur lögin sín og Ijóðin og þar sem hann festir liti á léreft — stundum gerir hann þetta allt í einu. Hann tekur á móti mér í gallabuxum, bol og gallaskyrtu — auðvitað. Og fyrstu áhrifin, sem ég verð fyrir, endast út þessa sam- verustund. Frá Jóhanni stafar innri gleði og rósemi, sambland af öryggi og feimni, samblandi af kímni og alvöru, samblandi af hœglæti og eldmóði. Ég byrja á að játa hreinskilnis- lega, að ég viti harla lítið um hann, svo við verðum að byrja á byrjuninni. -Fæddur í Keflavík — alinn upp í Ytri-Njarðvík, faðir minn ættaður úr Húnavatnssýslu, móðir mín úr Keflavik. NÁLÆGÐIN við kanann — Hvemig stendur á því, að svo margir popptónlistarmenn koma sunnan með sjó? — Ætli það sé ekki nálægðin við kanann. Það verður enginn popp- tónlistarmaður af því að hlusta á ríkisútvarpið. Hlustar þú nokkum tíma á ríkisútvarpið? — Lítið. En aldrei á kanann heldur. — Ég þurfti nýlega að koma við á ansi mörgum vinnustöðum einn daginn. Víðast var útvarp í gangi, og alls staðar var það kaninn. Jafnvel á Tímanum. — Er það rétt skilið, að þú sért heldur lítið hrifinn af ríkisútvarp- inu? — Já. það er rétt, og ég er ekki einn um það. Mér finnst hart, að við skulum þurfa að vera upp á kanann komin með músik í útvarpi. — Er nú ekki alltaf dálítið um poppmúsik í útvarpinu okkar? — Það er talsvert um poppmúsik, en stefnuleysið í tónlistinni er algjört. Hlustaðu ó morgunútvarp- ið, þar ægir öllu saman, og fólk, sem hefur einhvem tónlistarsmekk, þarf helst að slökkva og kveikja til skiptis til að afbera þetta. Fólk hefur ákaflega misjafnan smekk sem betur fer. Ég hefði ekki ó móti því, að til dæmis unnendur harmoníkutónlistar fengju þriggja klukkutíma þátt, bara að hægt væri að treysta því, að ekki sé sífellt verið að hræra öllu saman í einn graut. ÞRJÚ GRIP DUGÐU — Hvenær byrjaðirðu að spila? — Það var orgel heima, og ég byrjaði mjög ungur að reyna að spila. En fyrsta hljómsveitin, sem ég lék í, var skólahljómsveit ó Bifröst, þar sem ég var við nóm í tvo vetur. Það var merkileg hljóm- sveit, einn kennaranna spilaði með okkur, og við vomm mjög virðuleg- ir, sótum allir við að spila. Ég kunni þrjú grip á gítar og slapp með það inn í hljómsveitina, því enginn af þeim, sem þeir prófuðu, kunni meira. Ég var reyndar ekki öfunds- verður af gítarnum, hann var dálitið erfiður, það þurfti naglbít við að stilla hann. — Svo brá ég mér eitt sinn suður, og þegar ég kom aftur, gerði ég byltingu, heimtaði, að við stæðum, meðan við spiluðum, og tækjum fyrir allt aðra músík. Þá vom Bítlarnir að byrja. Byltingin tókst, og ég fékk nýjan gítar. — Nú, ég veit ekki, hvort ég á að rekja allan ferilinn rækilega, það hefur verið gert í blöðum áður. En við spiluðum saman eftir skólann, kjaminn úr skólahljómsveitinni ágætu, hétum Straumar. Svo komu Óðmenn I. og Oðmenn II. HEILHVEITIBRAUÐ OG MARMILAÐI — Óðmenn nutu meiri virðingar en vinsælda, var það ekki? — Jú, það má víst segja það. Við vomm þrír: Ég, Finnur T. Stefóns- son á gítar og Ólafur Garðarsson á trommur, en síðar tók Reynir Harðarson við af honum. Við vomm frá upphafi ákveðnir í því að setja 14V1KAN 21. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.