Vikan - 26.05.1977, Blaðsíða 15
Einu sinni var mér sárt um að láta aðra fá lögin min, en nú geri ég dálitið af þvi. Fiskurinn hennar Stinu hefúr hleypt fjöri i þetta.
markið hátt, gerast atvinnumenn
og spila þróaða tónlist. Og við
vorum þeirri stefnu trúir, ó hverju
sem gekk. Þetta var óneitanlega oft
erfitt. Ég man til dæmis einu sinni
eftir því, að við höfðum ekkert
fengið að gera í hálfan annan mánuð
og vorum orðnir ansi aðþrengdir,
átum ekkert annað en heilhveiti-
brauð og marmilaði undir lokin. Þá
hringdi Jónas R. til okkar og bað
okkur að spila á balli fyrir sig, því
hann hafði skyndilega orðið hás.
Við urðum afskaplega ánægðir.
— Ef ég man rétt voruð þið
viðriðnir poppleikinn Öla, þegar
hann var færður upp.
— Já, það var skemmtilegt verk.
Leikhópurinn, sem stóð að Öla,
fékk einhvem ágætan mann, Ólaf
að nafni, til að leggja drög að þessu
verki. En Ölafur þessi sást ekki
meir, leikhópurinn annaðist sjálfur
samningu verksins, og nafnið Óli,
var til heiðurs höfundinum, sem
aldrei sóst. Leikurinn fjallaði um
göngu mannsins gegnum kerfið, og
Öla var vel tekið, en aðstæðumar
vom erfiðar, og nágrannar kvört-
uðu yfir hóvaða. Ég er viss um, að
Óli hefði getað gengið miklu lengur
við betri aðstæður, það hefði jafnvel
verið ágætt að fara með hann inn í
skólana.
ÞURRASTA BANDIÐ
I BRANSANUM
— Það er kannski úrelt og
margþvælt að spyrja þig um sukkið
og brennivínið í sambandi við
hlj óms veitarbransann?
— Ég hef ekkert á móti því að
ræða það. Þetta er vandamál hjá
mörgum hljómsveitum, þó við i
Öðmönnum fyndum ekki mikið fyrir
því. Við vomm hugsjónamenn,
höfðum svo gaman af að spila, að
við þurftum ekki hjálparlyf. Auð-
vitað kom það fyrir, að við
dmkkum, meðan við vomm að
spila, en gerði einhver það þannig,
að það kæmi niður á spilamennsk-
unni, var það ekki vinsælt. Strax
þegar Öðmenn I urðu til, stakk
Engilbert Jensen upp á því, að við
settum lög um það, að só, sem
drykki, meðan hann væri að spila,
yrði kauplaus það kvöldið! Ég held
það sé engin lygi, að Óðmenn hafi
verið eitt þurrasta bandið í brans-
anum. Hvað menn gerðu svo eftir
ball, var annað mál. Persónulega er
ég á móti neyslu eiturlyfja, hvort
sem það er tóbak, brennivín, hass
eða eitthvað annað. Ég þekki,
hversu illa þetta getur farið með
fólk, og þegar ég gerði mér grein
fyrir því, ákvað ég að sleppa öllu
sliku, nema ég fæ mér stundum létt
vín.
HLJÓMSVEITARSTARFIÐ
MINNIR Á HJÓNABAND
— Nú vinnurðu mest einn i
tónlistinni. Saknarðu ekki þessara
daga, þegar Óðmenn vom og hétu?
— Nei alls ekki. Það var sórt.
21.TBL.VIKAN 15