Vikan


Vikan - 26.05.1977, Page 10

Vikan - 26.05.1977, Page 10
✓ i *• Hlaðrúmin vinsælu komin aftur í mörgum litum. Sendum í póstkröfu um allt land. 0 Húsgagnaverslvm Reykjavíkvu* hf. BRAUTARHOLTI 2 SÍMI 11940 W KÓTEK ★ DISKÓTEK★ DISKÓTEK★ DISKÓTEK★ DISK * FERÐA DISKÓTEK 2 UJ F- O * w OBELIX UMBOÐSSlMI 15699 KL. 9-12,30 FYRIR HÁDEGI. /*■ + O C/1 7* O H m * >4- O c/i O —I m * >isia*x3iQ>isia*>i3io>isia*>i3±Q>isia*>i3iQ>isia — Ég þarf bara að komast eins langt frá honum þarna eins og mögulegt er! _______________ PÓSTURIM SPÁDÖMUR Sæll Póstur góður, Ég var að lesa gamia Viku síðan 1975, og þar var viðtal viö mann, sem heitir Gestur Óskar Frið- bergsson. Veistu, hvort hann tekur á móti fólki til að spá fyrir þv( Ef svo er, hvað myndi það kosta? Mér finnst þetta nefnilega áhuga- vert. Svo rakst ég á bréfstúf ( Póstinum, þar sem einhver var að spyrja eftir Ijóðinu „Hjálmar og Hulda," en ég sá það f 28. tbl., 36. árg. 11.7.1974, ef sá hinn sami skyldi ennþá hafa áhuga. Ég er þá hætt í bili, en hvað lestu annars úr skriftinni, og ! framhaldi af þvl, í hvaða stjörnumerki heldurðu að ég sé? En ég þori nú ekki að sleppa pennanum, án þess að biðja fyrir kveðju til átvaglsins (Helgu), annars á ég það á hættu, að hún gleypi snepil þennan með húð og hári. Bless, bless. X Það er greinilegt, að áhugi fólks á framtíðarspám er gífurlegur, þvl að fyrirspurnum um Gest Óskar og annað spáfólk rignir yfir okkur hérna á Vikunni. Gestur Oskar Friöbergsson er í símaskránni, svo þú skalt bara einfald/ega taka þig til og hringja í hann og athuga, hvort hann tekur ekki á móti fólki. Pósturinn þakkar þér svo fyrir upp/ýsingarnar um ,,Hjálmar og Huldu" og vonar, að sá, sem spurði um þetta /jóð á slnum tíma, hafi gagn af þessum upplýsing- um. Skriftin ber vott um mik/a skynsemi, og þú yfirvegar örugg- lega hlutina, áður en þú fram- kvæmir. Gæti ekki verið, að þú sért fædd / fiskamerkinu??! Helga þakkar kveðjuna, og vildi ómögu- lega borða bréfið, þar sem skriftin og stafsetningin var hvort tveggja / sérf/okki. SVÖRT HÁR Á LÍKAMANUM Halló Pósturl Ég þakka Vikunni fyrir fjölbreytt og skemmtilegt efni, sérstaklega poppið. Ég á við vandamál að glíma. Hárin á maganum, fótun- um og höndunum eru svo svört, að það er eins og ég sé strákur. Er til gott krem eða eitthvaö annað til að losna við þetta? Og hvað heitir það, og hvernig er notkunin? Ég vona, að þú getir svarað þessu, en hendir ekki bréfinu. Með fyrirfram þökk, S.P. Pósturinn er persónulega ekkert hrifinn af háreyðandi kremum, þar sem hann hefur það fyrir satt, að þau auki hárvöxtinn, mörg hver a.m.k., og því vil ég ráðleggja þér að snúa þér ti/ snyrtistofu, þar sem þú getur fengið hárunum eyttmeð vaxi eða öðrum efnum. HVAÐ Á ÉG AÐ GERA? Kæri Póstur! Ég hef aldrei skrifað þér áður. Svo er mál með vexti, að ég er hrifin af strák, sem er þremur árum eldri en ég. Ég held, aö ég hafi ekki séns í hann vegna aldurs- munarins. Hann heilsar mér úti á götu, og ég hef talað við hann nokkrum sinnum, en ég veit ekki, hvort hann er hrifinn af mér. Hvað á ég að gera? Hérna fyigja tvær spurningar: 1. Ef strákar eru að reyna við stelpur, eiga stelpurnar þá að taka á móti og sýna ekki neinn mótþróa? 2. Hvað lestu úr skriftinni, hvernig er hún, og hvað helduröu, að ég sé gömul? Helga Ég held ekki, að nokkru breyti þessi þriggja ára aldursmunur. Ef hann hefur einhvern áhuga á þér, setur hann aldurinn sennilega ekki fyrir sig. Um hvað talið þið eiginlega, þegar þið hittist? Get- urðu ekki reynt að finna inn á það hjá honum, hvort hann hefur áhuga? Svo eru það spurningarn- ar þínar. Eiga stelpur að taka á móti?? Auðvitað EIGA þær ekki endilega að gera það, en ég álít nú bara, að þær MEGI alveg vera svolítið alúð/egar, ef þær hafa áhuga á viðkomandi manni og þá hafa þær varla áhuga á að sýna mótþróa, eða hvað? Skriftin bendir til þess, að þú sért mjög rólynd og látir yfirleitt heilann stjórna hjartanu. Ætli þú sért ekki svona 15-16 ára, og skriftin þín er hreinleg og áferðar- falleg. 10VIKAN 21. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.