Vikan


Vikan - 26.05.1977, Qupperneq 13

Vikan - 26.05.1977, Qupperneq 13
sjálfteinnig verið merkileg bygging i bænum. Það var hyrjað að kenna i þessu húsi 1846. Þetta var þá og er enn stórt, stílhreint, fallegt og höfðinglegt hús. Meðal vistarvera i þessu húsi er hátíðarsalurinn, eða ..Salurinn,” sem ennþá er kallaður svo, en vár þingsalur fyrst eftir að Alþingi var endurreist, og þangað til þinghúsið, sem ennþá er notað, var reist við Austurvöll 1881. Þarna í salnum i Menntaskólanum sat t.d. Jón Sigurðsson öll sín þirig, og í þessum sal var haldinn Þjóðfund- urinn 1851, einn merkasti atburður í stjórnmálasögu síðustu tíma hér hjá okkur. Eins og ég gat um áðan, þá hefur Menr.taskólinn verið merkileg fræðslu- og menntastofnun, þvi að margir rektorar og kennarar hafa verið höfuðskáld og ágætir vísinda- menn allt frá Sveinbirni Egilssyni, með Lexicon Poeticum og Homer- þýðingar sinar. Hér kenndu einnig Björn Gunnlaugsson með sina stærðfræði og landmælingar og kort og Jón Þorkelsson, sem var mikill málfræðingur. Skáld og náttúrufræðingur eins og Benedikt Gröndal var þarna lengi, Bjarni Sæmundsson með sínar ágætu fiskirannsóknir, Björn M. Olsen Vilhjálmur Þ. Gíslason á heimili sínu að Starhaga 2, umkringdur fræðibókum og minningarritum og mörgum góðum gjöfum, er honum hafa borist. með ágætar rannsóknir i íslenskum fræðum, Páll Melsted sagnfræð- ingur var þarna á sínum tima, Þorv’aldur Thoroddsen og seinga Jón Öfeigsson, Böðvar Kristjáns- son og margir aðrir, sem voru þarna í okkar minni, sem nú erum. Þetta var ekki í fyrsta skipti ,1846, sem skólinn var hér í Reykjavík. Hann var fluttur frá Skálholti til Reykjavíkur þar sem stofnaður var svonefndur Hóla- vallaskóli 1786. Skólahald þar gekk heldur illa, og þá var skólinn fluttur að Bessastöðum 1805 og síðan aftur til Reykjavíkur 1846. Ég hefi stundum imprað á því i nemenda- sambandi okkar, að í raun og veru mætti telja aldur skólans hærri en frá 1846, því að eiginlega var Skálholtsskóli aldrei lagður niður, heldur var hann fluttur á milli staða. Skólahald í Skálholti var fornt, en það mætti miða hér sérstaklega við einn atburð. eða eina tilskipun frá því i maí 1943, en þá var sett ný reglugerð. Jón Sigurðsson komst einu sinni svo að orði í Félagsritum um þá reglugerð: .,! raun og veru var hún grund- vallarlög skóla vors alla tíð síðan.” Þessvegna sýnist mér, að það mætti vel miða aldur skólans við þann tima. Það er kannski ekki ,,mikið sáluhjálparatriði," en það er gaman að því og nokkur virðug- leiki, ef svo væri gert. Annars er það svo, að Mennta- skólans minnumst við með mikilli ánægju og með mikilli virðingu fyrir skólanum og þeim störfum, sem þar fóru fram. Við vorum ekki alltaf sammála öllu, sem var gert og þóttumst stundum geta gert okkur merkileg yfir hinu og þessu. en alltaf var gleðskapur i skólanum. Hann hefur gegnt merkilegu hlut- verki í þjóðfélaginu. og þaðan komu margir brautryðjendur í stjórnmál- um, skáldskap og islenskum vis- indum.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.