Vikan - 11.08.1977, Side 9
/" 1
— Helmingurinn af þeim lyga-
sögum, sem ganga um mig,
eru ósannar.
synlegt, aö maðurinn minn taki
lyfið inn í köldu vatni?
eftir!
— Ég vissi, að þetta myndi
gerast einhvern daginn.
I NÆSTU VIKU
PALL HELGASON I
FORSÍÐUVIÐTALI
Hann heitir Páll Helgason og er Vestmannaeyingur í
húð og hár. Hann er sonur hins kunna athafnamanns
Helga Ben. og ekki hefur eplið fallið langt frá eikinni,
því athafnasemi er Páli í blóð borin. Hann ræðir
lífshlaup sitt við blaðamann Vikunnar, opinskátt og
fjörlega. ,,Hver er þessi maður,” spyr ókunnugt fólk,
þegar það er búið að aka með honum í kynnisferð um
Vestmannaeyjar og hlusta á fjörlegar og umfram allt
fróðlegar lýsingar hans á Eyjum fyrir og eftir gos.
Vikan segir ykkur margt um Pál Helgason í næsta
blaði.
MEST UM PRINSA
I þættinum Mest um fólk verður fjallað um alla hina
ógiftu og myndarlegu prinsa í Evrópu. Það hefur færst
í aukana á undanförnum árum að kóngafólk giftist bara
venjulegu fólki og yfirleitt bíður almenningur spenntur
eftir þvi hver verði sá lukkulegi eða sú lukkulega. Það
er talsvert um ógifta prinsa í Evrópu og spurningin er
svo hver verður sú lukkulega, þegar þeir fara á stúfana?
DAGUR MEÐ BÖRN-
UNUM í BÚSTÖÐUM
Hvað verður um böm á skólaaldri, sem ekki komast i
sveit á sumrin, og eiga foreldra sem vinna úti? — Flest
þeirra sjá um sig sjálf og eyða deginum við leiki úti við.
En það getur verið ósköp einmanalegt að koma alltaf
aleinn heim i hádeginu og fá sér að borða, eða dvelja
einn inni við, ef veður er slæmt. — Hermann Ragnar
Stefánsson er mörgum kunnur fyrir danskennslu og
hann hefur kennt börnum allt frá fjögurra ára aldri um
margra ára skeið. Nú hefur hann tekið sig til, og í
samráði. við Æskulýðsráð Reykjavikur og Bústaða-
sókn, annast hann gæslu þessara barna á daginn.
Vikan fylgdist með Hermanni og börnunum hans 64 á
ferðalagi um Kjalarnes.
VIKAN Útgefandi: Hilmir hf. Ritstjóri: Kristin Halldórsdóttir. Blaðamenn: Aðalsteinn Ásb. Sigurðsson,
Anna Kristine Magnúsdóttir, Sigurjón Jóhannsson. Útlitsteiknari: Þorbergur Kristinsson. Ljósmyndari:
Jim Smart. Auglýsingastjóri: Ingvar Sveinsson. Ritstjórn, auglýsingar, afgreiðsla og dreifing í Síðumúla
12. Símar 35320___35323. Pósthólf 533. Verð í lausasölu kr. 350. Áskriftarverð kr. 3.900 fyrir 13 tölublöð
ársfjórðungslega, eða kr. 7.370 fyrir 26 tölubiöð hálfsárslega. Áskriftarverð greiðist fyrirfram. Gjalddagar:
Nóvember, febrúar, maí, ágúst.
32. TBL. VIKAN 9